Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi notkun íbúðarhússins Þórukots á Álftanesi sem bráðabirgða golfskála.

Málsnúmer 2311540

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

27. (2128). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 9. júlí 2024 að samþykkja að húsið verði nýtt sem golfskáli með veitingaðstöðu til bráðabirgða, eða þangað til golfvöllur hefur hafið starfsemi annarsstaðar á Álftanesi og íbúðarhús verði samþykkt við Þórukot eins og deiliskipulag gerir ráð fyrir.
Notkun hússins sem golfskáli er tímabundin eða þar til golfiðkun á svæðinu leggst af, enda er ekki gert ráð fyrir golfvelli þar í skipulagsáætlunum.
Fjarlægð frá næstu íbúðarhúsum er um 100 metrar og aðkoma að húsinu er beint frá Suðurnesvegi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á íbúðarhúsinu Þórukoti sem gerir ráð fyrir því að notkun breytist úr íbúðarhúsi í golfskála.
Notkun hússins sem golfskáli er tímabundin eða þar til að golfiðkun á svæðinu leggst af enda ekki gert ráð fyrir golfvelli þar í skipulagsáætlunum.
Fjarlægð frá næstu íbúðarhúsum er um 100 metrar og aðkoma að húsinu er beint frá Suðurnesvegi. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að húsið verði nýtt sem golfskáli með veitingaaðstöðu til bráðabirgða eða þangað til að golfvöllur hefur hafið starfsemi annarsstaðar á Álftanesi og íbúðarhús verði samþykkt við Þórukot eins og deiliskipulag Helguvíkur gerir ráð fyrir.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum fundarlið.

Bæjarráð Garðabæjar

03

18. (2119). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingafulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109, leyfi fyrir innanhússbreytingum vegna snyrtingu í aðalhúsi, þar sem bætt er við snyrtingu fyrir fatlaða í fasteigninni Þórukoti.
Húsnæðið er skv. samkomulagi við Garðabæ, nýtt tímabundið sem golfskáli.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

3. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

2. fundur

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.