3. fundur
3. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
14.03.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigþrúður Ármann - varamaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Formaður óskaði eftir því í byrjun fundar að tveimur málum yrði bætt við dagskrá sem ekki var hluti af upphaflegu fundarboði. Nefndin samþykkti það. Um er að ræða fundarliði nr.18 og 19.
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 8.Arnarnesháls/Arnarland
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til svonefnds Arnarlands norðan Arnarnesvegar og austan Hafnarfjarðarvegar.
Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkun svæðisins breytist úr því að vera svæði fyrir verslun og þjónustu í miðsvæði. Ennfremur er gert ráð fyrir því að Borgarlína liggi um landnotkunarreitinn frá Arnarnesvegi að bæjarmörkum við Kópavog. Nákvæm lega Borgarlínu innan reitsins er ekki skilgreind enda er það viðfangsefni deiliskipulags sem er í mótun.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 3.mgr.30.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóra falið að senda tillögunni til athugunar hjá Skipulagsstofnun.
Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi Arnarlands sem nær til sama svæðis.
02
Arnarland. Deiliskipulag
Jóhanna Helgadóttir hjá Nordic arkitektum og Lilja Karlsdóttir samgönguverkfræðingur hjá VSB gerðu grein fyrir drögum að tillögu deiliskipulags fyrir Arnarland og með hvaða hætti unnið hefur verið úr ábendingum og umsögnum sem borist hafa við forkynningu tillögunnar.
Tillögu vísað til deiliskipulagsráðgjafa og umhverfissviðs til úrvinnslu.
03
Lambamýri sorpskýli verslunar, dsk br Breiðamýri
Lögð fram tillaga að útfærslu sorpskýlis verslunar að Lambamýri 3 og tengsl hennar við spennistöð.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur að framlögð útfærsla á sorpskýli og spennistöð sé ekki fullnægjandi og vísar til hugmynda um útfærslu sem koma fram í umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útfærslu á yfirborði "göngugötu" eins og tillaga Landhönnunar gerir ráð fyrir og vísar í því sambandi til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Útfærslu á sorpskýli vísað til frekari úrvinnslu hjá framkvæmdaaðila, umhverfissviði og deiliskipulagshöfundi.
04
Grásteinsmýri - dsk br. Breiðamýri
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem nær til Grásteinsmýrar sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga sem stuðlar að meiri fjölbreytni á stærðum íbúða í Breiðumýri.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögu sem gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða aukist úr 84 íbúðum í 102 til auglýsingar.
Tillagan verði auglýst sem breyting á deiliskipulagi Breiðumýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr. og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
05
Engimýri 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingar á einbýlishúsinu að Engimýri. M.a. er sóttu um að fá leyfi fyrir þegar byggðum kjallara undir húsinu sem ætlað er að nýtist sem vinnuaðstaða og geymslur.
Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Hofstaðamýri.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga.
Grenndarkynna skal eigendum að Engimýri 3,4,5,7 8 og 10.
06
Hnoðraholt norður - Uppfærsla deiliskipulags
Tillaga að uppfærðu deiliskipulagi Hnoðraholts norður lögð fram að lokinni kynningu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu á umhverfissviði og hjá deiliskipulagsráðgjafa.
07
Hnoðraholt norður - Breytingar á fjölbýlishúsum norðan Vorbrautar
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður lögð fram að lokinni kynningu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu á umhverfissviði og hjá deiliskipulagsráðgjafa.
08
Útholt 5-9 - minnkun á byggingarreit - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að raðhúslengjunni Útholt 5-9 um óverulega minnkun á byggingarreit, á miðlóð og stækkun á endalóðum sem því nemur.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga fellir skipulagsnefnd niður grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa og Garðabæjar.
09
Skerpluholt 3 - auka byggingarmagn - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um byggingarmagn, útbyggingar og byggingarreit.
Svar: Vísað er til umsagnar deiliskipulagshöfundar. Skipulagsnefnd fellst á að hámarksbyggingarmagni verði breytt í 240 fermetra til samræmis til viðmiðunarflatarmáls gatnagerðargjalda. Ekki er fallist á að stækka byggingarreit né breyta ákvæðum um útbyggingar.
Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til tillögu að uppfærslu deiliskipulagsskilmála sem athugasemd en uppfærslan hefur verið í auglýsingu og liggur fyrir þessum fundi.
10
Skerpluholt 5 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útbygginga, útfærslu þaks, byggingarmagn og byggingarreit.
Svar: Vísað er til umsagnar deiliskipulagshöfundar og tekur skipulagnefnd undir hana í flestum atriðum. Skipulagsnefnd fellst á að hámarksbyggingarmagni verði breytt í 240 fermetra til samræmis til viðmiðunarflatarmáls gatnagerðargjalda.
Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til tillögu að uppfærslu deiliskipulagsskilmála sem athugasemd en uppfærslan hefur verið í auglýsingu og liggur fyrir þessum fundi.
11
Útholt 35-41 fjölgun lóða - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og umsögn deiliskipulagshöfundar. Lýtur fyrirspurn að því hvort heimilað verði að fjölga íbúðareiningum í raðhúslengjunni um eina, úr fjórum í fimm.
Skipulagsnefnd telur að til greina komi að fjölga íbúðum í raðhúslengjum sem hafa nú þegar 4 íbúðareiningar eða fleiri ef að byggingarmagn eykst ekki. Það kallar hinsvegar á breytingu á viðmiðunarfjölda íbúðareininga í Hnoðraholti norður sem sett er fram í rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að vinna að tillögu að verkefnislýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga í raðhúslengjum um eina sbr.ofangreint.
12
Stekkholt 22 - Dsk.br.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður sem nær til einbýlishúslóðarinnar Stekkholt 22.
Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
13
Vorbraut 5,9,11,15 og 17 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa fjölbýlishúslóðanna Vorbraut 5,9,11,15 og 17.
Fyrirspurn vísað til tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem athugasemd.
14
Vorbraut 8-12 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Vorbrautar 8-12. Lýtur fyrirspurn að því hvort heimilað verði að fjölga íbúðareiningum í fjölbýlishúsinu um tvær, úr tólf í fjórtán.
Skipulagsnefnd telur að til greina komi að fjölga íbúðum í fjögurra hæða fjölbýlishúsum sunnan Vorbrautar ef að byggingarmagn eykst ekki. Það kallar hinsvegar á breytingu á viðmiðunarfjölda íbúðareininga í Hnoðraholti norður sem sett er fram í rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að vinna að tillögu að verkefnislýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúðareininga fjölbýlishúsum sunnan Vorbrautar um tvær sbr.ofangreint.
15
Hnoðraholt N, dsk.br. Þorraholt 2 og 4.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður sem gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-hámarkshæð húss númer 2 hækki um 2,5 m en breidd byggingareitsins minnki um 3 metra
-að austurhluti 1.hæðar í húsi númer 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu
-að kjallarar verði 4 í stað 2-3
-að kjallari 2 verði atvinnurými í stað bílageymslu
-að 3.000 m2 bætist við bílageymslu í kjallara
-að staðsetning dælustöðvar færist til.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Vekja skal athygli á auglýsingunni með því að senda erindi til eigenda annarra eigna í Þorraholti og í Útholti 2,4,6,8 og 10 sem og Útholti 1-3, 5-9 og 11-17.
16
Vinastræti 22-28 - Deiliskipulag
Lögð fram tillaga að breytingu Urriðaholts norðurhluta 3 sem nær til lóðarinnar Vinastræti 22-28. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með þeim sem gerðu athugasemdir.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði, arkitektum hússins og deiliskipulagshöfundi.
17
Kjóavellir - Dsk.br Andvara- og Rjúpnahlíðarhverfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kjóavalla að lokinni auglýsingu.
Deiliskipulagsbreytingin felst í breikkun byggingarreita úr 12m í 13m á öllum hesthúsalóðum innan Garðabæjar á Kjóavöllum. Auk þess felst breytingin í því að viðhalda núverandi þakformi á hesthúsum í Andvarahverfi, bæði á núverandihesthúsum og 8 nýjum hesthúsum vestast í Andvarahverfinu, um leið og heimildir fyrir kvistum og þakgluggum eru rýmkaðar.
Skilmálar fyrir þakform húsa norðan megin við Andvaravelli 2a-8a, haldast óbreyttir.
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma og er tillagan því samþykkt sem breyting á deiliskipulagi Kjóavalla. Senda skal tillöguna Kópavogsbæ til afgreiðslu þar sem að deiliskipulag Kjóavalla nær til beggja sveitarfélaga.
18
Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir stöðu mótunar tillögu að deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Vísað til áframhaldandi mótunar.
19
Framkvæmdir - Efnislosun
Lögð fram umsókn umhverfissviðs um viðbótar efnislosun í Glerhallardýi. Umsókn fylgir uppdráttur Landslags ehf sem sýnir staðsetningu og umfang efnislosunar með ákveðnum skilyrðum.
Efnislosun er til bráðabirgða þar til deiliskipulag Norðurness liggur fyrir en samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði og aðliggjandi svæði ætluð undir golfvöll og mun efnið þá nýtast til landslagsmótunar. Að öðrum kosti þarf að flytja efni sem losnar vegna framkvæmda í Breiðumýri um langan veg með tilheyrandi umhverfisáhrifum.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir 30.600 m3 til viðbótar í Glerhallardýi í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010 sem eru í samræmi við framlögð gögn með þeim skilyrðum að það verði nýtt til landslagsmótunar þegar að uppbygging golfvallar verður hafin.
20
Skotæfingasvæði á Álfsnesi - Breytingi á aðalskipulagi
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
21
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 2
Fundargerð lögð fram.
21.1 - 2402098 - Steinprýði 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
21.10 - 2402096 - Blómahæð 7 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Bæjargils 2.áfanga (Hæða) sem gerir ráð fyrir stækkun raðhúslóðarinnar Blómahæð 7 til suðurs að göngustíg.
Stærð raðhúslóðarinnar hefur ekki verið breytt í deiliskipulagi Hæða. Ósamræmi er á milli mæliblaðs og deiliskipulags og lóð hefur verið útfærð á annan hátt en opinber gögn sýna.
Málinu vísað til mótunar tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi Hæða sem vísað hefur verið til forkynningar.
21.11 - 2402387 - Þorraholt 11-19 - Deiliskipulag
Lögð fram tillaga að breytingu Hnoðraholts norður sem nær til lóðanna; Þorraholt 11,13,15,17 og 19. Tillögunni fylgir umsókn lóðarhafa um deiliskipulagsbreytingu.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
· Byggingarreitir neðanjarðar breytast á lóðum Þorraholt 11,13,15,17 og 19.
· Byggingarmagn neðanjarðar eykst á lóðum Þorraholt 11,13,15,17 og 19.
· Rampar/ skábrautir að bílakjallara mega fara út fyrir byggingarreit
· Mögulegt verði að samnýta rampa milli lóða.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að deiliskipulagsbreytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
21.2 - 2311540 - Þórukot - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
21.3 - 2402397 - Útholt 3 - bílastæði - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um tilfærslu á bílastæðum innan lóðarinnar við Útholt 3.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Útholti 4 og 6 sem og að Úholti 5-9. Heimilt er að stytta tíma grenndarkynningar ef viðkomandi lóðarhafar staðfesta með áritun sinni á uppdrátt að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 118/2022.
21.4 - 2402135 - Skerpluholt 3 - auka byggingarmagn - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu byggingar sem kallar á aukningu byggingarmagns í deiliskipulagi.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Fyrirspurn og umsögn vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
21.5 - 2402418 - Skerpluholt 5 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Stækkun á útkraga byggingareits og þakhalli
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu byggingar ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Fyrirspurn og umsögn vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
21.6 - 2312388 - Skerpluholt 7 - Breyting bílastæði - -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir tilfærslu á bílastæðum innan lóðar að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.ml.3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
21.7 - 2401387 - Eskiás 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.
Fjöldi íbúða á lóð er samkvæmt uppdráttum 29 en eru 27 samkvæmt töflu sem fram kemur í greinargerð deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til Eskiáss. Þar sem að tafla er til viðmiðunar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við umrætt frávik enda ekki um breytingu á heildarfjölda íbúða við Eskiás að ræða.
Við útreikning á bílastæðaþörf er hluti bílastæða innan lóðar og hluti í götu. Ef horft er til byggingarmagns og íbúðarfjölda í næstu húsum er ljóst að framboð bílastæða í götu nærri íbúðum að Eskiás 8 er í samræmi við ákvæði deiliskipulagsins.
Hæðarkóti húss nærri götu er 30 cm hærri en hæðarkóti á hæðarblaði en hámarkshæð húss er skilgreind í deiliskipulagi og fer heildarhæð húss ekki upp fyrir þá hæð.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
21.8 - 2305174 - Mávanes 22 - stækkun á byggingarreit
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir stækkun á byggingarreit lóðarinnar Mávanes 22 að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.ml.3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
21.9 - 1909198 - Blikanes 23 -Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna glerskála undir núverandi verönd. Sú breyting er í samræmi við skilmála deiliskipulags Arnarness.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis á grundvelli skipulagsskilmála.