Hnoðraholt norður - Uppfærsla deiliskipulags
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (940). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 24. apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norðurs sem gerir ráð fyrir uppfærslu deiliskipulagsskilmála ásamt fjölgun íbúða í fjölbýlishúsum norðan Vorbrautar um 13.
Tillagan var auglýst 25. janúar 2024 og var frestur til að gera athugasemdir við tillöguna til 8. mars 2024. Athugasemdir við tillöguna voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 14. mars 2024 og var þeim vísað til úrvinnslu umhverfissviðs og deiliskipulagshöfundar. Svör við athugasemdum liggja fyrir.
Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni, þar sem brugðist er við umsögnum og athugasemdum.
-bílastæðum á lóð að Vorbraut 19 verði fjölgað úr 6 í 8.
-að leiðrétt verði villa um breidd byggingarreits á mæliblaði lóðarinnar Vorbraut 7.
-að legu aðkomuramps fyrir bílageymslu á lóðinni Vorbraut 3 verði breytt.
-að fjölgað verði íbúðareiningum á lóðinni Vorbraut 5 um 2, Vorbraut 11 um 1, Vorbraut 15 um 2 og Vorbraut 17 um 1.
-að hámarksbyggingarmagn einbýlishúsa við Skerpluholt verði aukið um 15 fermetra, úr 225 í 240.
-að breytingar verði gerðar á kafla 1.3. í skipulagsgreinargerð sem gerir ráð fyrir því að raðhúsalengjur við Vorbraut í austasta hluta deiliskipulagsvæðis Hnoðraholts norður verði talið til Hnoðraholts suðurs í viðmiðunartöflum rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland enda eru þau innan landnotkunarreits Hnoðraholts suður á aðalskipulagsuppdrætti.
-að breidd raðhúslóðanna við Útholt 5-9 verði minnkaðar lítillega.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga." (Mál nr. 2312130)
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (2117). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 24 apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norðurs sem gerir ráð fyrir uppfærslu deiliskipulagsskilmála ásamt fjölgun íbúða í fjölbýlishúsum norðan Vorbrautar um 13.
Tillagan var auglýst 25. janúar 2024 og var frestur til að gera athugasemdir við tillöguna til 8. mars 2024. Athugasemdir við tillöguna voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 14. mars 2024 og var þeim vísað til úrvinnslu umhverfissviðs og deiliskipulagshöfundar. Svör við athugasemdum liggja fyrir.
Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni, þar sem brugðist er við umsögnum og athugasemdum.
-bílastæðum á lóð að Vorbraut 19 verði fjölgað úr 6 í 8.
-að leiðrétt verði villa um breidd byggingarreits á mæliblaði lóðarinnar Vorbraut 7.
-að legu aðkomuramps fyrir bílageymslu á lóðinni Vorbraut 3 verði breytt.
-að fjölgað verði íbúðareiningum á lóðinni Vorbraut 5 um 2, Vorbraut 11 um 1, Vorbraut 15 um 2 og Vorbraut 17 um 1.
-að hámarksbyggingarmagn einbýlishúsa við Skerpluholt verði aukið um 15 fermetra, úr 225 í 240.
-að breytingar verði gerðar á kafla 1.3. í skipulagsgreinargerð sem gerir ráð fyrir því að raðhúslengjur við Vorbraut í austasta hluta deiliskipulagsvæðis Hnoðraholts norður verði talið til Hnoðraholts suðurs í viðmiðunartöflum rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland enda eru þau innan landnotkunarreits Hnoðraholts suður á aðalskipulagsuppdrætti.
-að breidd raðhúslóðanna við Útholt 5-9 verði minnkaðar lítillega.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norðurs sem gerir ráð fyrir uppfærslu deiliskipulagsskilmála ásamt fjölgun íbúða í fjölbýlishúsum norðan Vorbrautar um 13. Athugasemdir og umsagnir sem bárust á auglýsingartíma lagðar fram ásamt minnisblaði deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni og þar með brugðist við umsögnum og athugasemdum.
-bílastæðum á lóð að Vorbraut 19 verði fjölgað úr 6 í 8.
-að leiðrétt verði villa um breidd byggingarreits á mæliblaði lóðarinnar Vorbraut 7.
-að legu aðkomuramps fyrir bílageymslu á lóðinni Vorbraut 3 verði breytt.
-að fjölgað verði íbúðareiningum á lóðinni Vorbraut 5 um 2, Vorbraut 11 um 1, Vorbraut 15 um 2 og Vorbraut 17 um 1.
-að hámarksbyggingarmagn einbýlishúsa við Skerpluholt verði aukið um 15 fermetra, úr 225 í 240.
-að breytingar verði gerðar á kafla 1.3. í skipulagsgreinargerð sem gerir ráð fyrir því að raðhúslengjur við Vorbraut í austasta hluta deiliskipulagsvæðis Hnoðraholts norður verði talið til Hnoðraholts suðurs í viðmiðunartöflum rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland enda eru þau innan landnotkunarreits Hnoðraholts suður á aðalskipulagsuppdrætti.
-að breidd raðhúslóðanna við Útholt 5-9 verði minnkaðar lítillega.
Að mati skipulagsnefndar kalla breytingar á tillögu ekki á endurauglýsingu hennar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
3. fundur
Tillaga að uppfærðu deiliskipulagi Hnoðraholts norður lögð fram að lokinni kynningu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu á umhverfissviði og hjá deiliskipulagsráðgjafa.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
18. (933). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að uppfærslu deiliskipulagsskilmála norðurhluta Hnoðraholts ásamt greinargerð þar sem allar breytingar sem gerðar hafa verið verða innfærðar.“ (Mál nr. 2312130)
Bæjarráð Garðabæjar
07
48. (2101). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að uppfærslu deiliskipulagsskilmála norðurhluta Hnoðraholts ásamt greinargerð þar sem allar breytingar sem gerðar hafa verið verða innfærðar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
15. fundur
Tillaga að uppfærslu deiliskipulags Hnoðraholts norður lögð fram.
Á uppdrætti og í greinargerð hafa allar þær breytingar sem átt hafa sér stað síðan að deiliskipulagið tók gildi verið færðar inn. Ákvæði í greinagerð hafa verið lagfærð og sett fram með skýrari hætti til þess að stuðla að því að markmið deiliskipulagsins nái fram að ganga. Til samræmis við deiliskipulag Vetrarmýrar verður gert ráð fyrir að við útreikning nýtingarhlutfalls verði tekið tillit til allra A-rýma.
Skipulagsnefnd vísar uppfærðu deiliskipulagi Hnoðraholts norður til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Samhliða er auglýst tillaga að breytingu deiliskipulagsins vegna lóða við Vorbraut. Fella skal þá breytingu inn í uppfært deiliskipulag að lokinni auglýsingu ef hún nær fram að ganga.