Beint í efni

48. (2101). fundur

19.12.2023
Bæjarráð Garðabæjar

48. (2101). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

19.12.2023

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2206112

01

Fjárhagsáætlun 2023- Viðauki nr. 3.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2023.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun 2023 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki nr. 3.

Brekkuás 2 - nýr íbúakjarni fyrir fatlað fólk.

Í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 var gert ráð fyrir að forstöðumaður yrði ráðinn í nóvember til að undirbúa rekstur á árinu 2024. Framkvæmdir við byggingu hússins gengu betur en áætlað var. Því var ákveðið að taka búsetukjarnann í notkun í haust.

Samþykkt var að ganga til samninga við Ás styrktarfélag um umsjón með rekstrinum og var samningur undirritaður 14. september sl. Fyrstu íbúar fluttu í íbúðirnar í lok október sl., fyrr en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir.

Rekstrarframlag á árinu 2023 40.000.000

Strætó bs.

Aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta skv. niðurstöðu Landsréttar vegna útboðsmáls sbr. bréf Strætó dags. 13. desember 2023.

Aukaframlag til Strætó 27.000.000

Samtals útgjaldauki 67.000.000

Fjármögnun

Staðgreiðsla útsvars -67.000.000

Samtals -67.000.000

Málsnúmer 2312196

02

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi undirritun samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk.

Í tilkynningunni kemur fram að ríki og sveitarfélög hafa undirritað samkomulag um breytingu á fjárhagsramma þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Samkomulagið felur í sér að hámarksútsvar sveitarfélaga hækkar um 0,23% og fer úr 14,74% í 14,97%. Samsvarandi lækkun verður á tekjuskattprósentu ríkisins.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn, með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15. desember 2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15. desember 2023, að samþykkja að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,71%. Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að samhliða hækkun á álagningu útsvars sveitarfélaga um 0,23% komi til lækkunar á tekjuskatti ríkisins um sömu prósentu. Hækkun útsvars í Garðabæ um 0,23% felur því ekki í sér auknar álögur á íbúa.

Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 30. desember nk.

Málsnúmer 2003173

03

Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkri afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Antoni Kristni Þórarinssyni, kt. 140379-4339, leyfi til að taka í notkun óuppfyllt gluggalaust rými og tengja við kjallara einbýlishússins við Haukanes 24.

Málsnúmer 2304158

04

Kumlamýri 1- Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Svölu B Heiðberg Guðmundsdóttur, kt. 250395-2139, leyfi til að stækka parhús í byggingu við Kumlamýri 1.

Málsnúmer 2309596

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðarinnar við Borgarás 10.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðarinnar við Borgarás 10. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2305174

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu á óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Mávanes 22.

Lögð fram.

Málsnúmer 2312163

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skiptingu einbýlishússins við Víkurgötu 11 í tvær íbúðir.

Lögð fram.

Málsnúmer 2312167

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts vegna heimildar til fjölgunar á íbúðum í fjölbýlishúsum við Vorbraut að norðanverðu.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir heimild í skilmálum um kjallara fyrir bílgeymslur og fjölgun íbúða um eina við Vorbraut nr. 1, 11, 13, og 17 og um þrjár íbúðir við Vorbraut nr. 3. 7 og 9.

Málsnúmer 2312130

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að uppfærslu deiliskipulags norðurhluta Hnoðraholts og tillögu um breytingu á deiliskipulagi vegna lóða við Vorbraut.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að uppfærslu deiliskipulagsskilmála norðurhluta Hnoðraholts ásamt greinargerð þar sem allar breytingar sem gerðar hafa verið verða innfærðar.

Málsnúmer 2310034

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 18.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna lóðarinnar við Hraunhóla 18. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2310085

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Víðiholts og deiliskipulagi Breiðumýrar og norðanverðs Sviðsholts vegna stækkunar á lóðinni við Lyngholt 19.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Víðiholts og deiliskipulagi Breiðumýrar og norðanverðs Sviðsholts í tilefni umsóknar um breytingu á lóðarmörkum lóðarinnar við Lyngholt 19.

Grenndarkynna skal eigendum lóða við Víðiholt og Lyngholt 4, 6, 8, 10, 13, 15 og 17.

Málsnúmer 2311098

12

Tillaga bæjarfulltrúa Garðabæjarlistans og Viðreisnar varðandi inngildingu kynsegin fólks við tilnefningar íþróttafólks Garðabæjar.

Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar og nánari útfærslu íþrótta- og tómstundarráðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2312177

13

Bréf Strætó bs. um auka framlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta skv. niðurstöðu Landsréttar í máli 344/2022, dags. 13.12.23.

Í bréfinu er greint frá niðurstöðu stjórnar Strætó bs. um að una niðurstöðu Landsréttar samkvæmt dómi í máli Teits ehf. gegn Strætó bs. Samkvæmt niðurstöðu dómsins ber Strætó að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 193.918.137 ásamt vöxtum til 11. september 2020 og dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags. Heildarfjárhæðin nemur kr. 351.458.794. Í bréfin er farið fram á aukaframlag frá eigendum og nemur hlutur Garðabæjar kr. 26.891.595. Vísað er til afgreiðslu, sbr. 1. tl., fundargerðarinnar varðandi viðauka vegna málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009072

14

Tillaga um uppsögn samnings um sorphirðu og undirbúning nýs útboðs.

Bæjarráð samþykkir tillögu um uppsögn samnings við Íslenska gámafélagið ehf., kt. 470596-2289 með sex mánaða fyrirvara miðað við 31. desember 2023. Jafnframt samþykkir bæjarráð að unnið verði að undirbúningi nýs útboðs sorphirðu frá heimilum í Garðabæ og að nýr samningur taki gildi frá og með 1. júlí 2024.

Málsnúmer 2309301

15

Útboð vegna endurnýjunar á áhorfendabekkjum í Íþróttamiðstöð Álftaness.

Lagt fram minnisblað Strendings ehf. varðandi nýja áhorfendabekki í Íþróttmiðstöð Álftaness.

Bæjarráð samþykkir að auglýsa útboð vegna kaupa á nýjum áhorfendabekkjum í Íþróttamiðstöð Álftaness. Gera skal ráð fyrir að útboðið taki til svæðis A og að í boði verða tvær tillögur eins og fram kemur í minnisblaði.

Málsnúmer 2306192

16

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi innleiðingu á legu græna stígsins í skipulagsáætlanir, dags. 14.12.23.

Í bréfinu er upplýst um samþykkt frá fundi svæðisskipulagsnefndar sem haldinn var 8. desember 2023 þar sem bókuð var hvatning til aðildarsveitarfélaga um að innleiða legu græna stígsins í skipulagsáætlanir sveitarfélaganna.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2309016

17

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi reglur um hvatapeninga 2024.

Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga árið 2024. Samkvæmt reglunum verða hvatapeningar óbreyttir kr. 55.000. Í reglunum er nýtt ákvæði um viðbótarhvatapeninga kr. 15.000 sem eru tekjutengdir. Viðmið tekna erum þau sömu og í reglum Garðabæjar um tekjutengingu afslátta.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2301456

18

Útboð vegna kaupa og endurnýjunar á loftræstibúnaði í Garðaskóla.

Lögð fram úttekt Líf bygginga ehf. á loftræstibúnaði Garðaskóla þar sem lagt er til að til að bæta innvist verði komið fyrir nýju loftræstikerfi fyrir 2. hæð en núverandi kerfi notað fyrir 1. hæð.

Í úttektinni er gerð grein fyrir þremur tillögum að lausnum og mælt með einni tillögu sem gerir ráð fyrir að koma fyrir airmaster samstæðum í skólastofum á 2. hæð en vera með loftræstisamstæðu upp í þakrými sem loftræstir miðjurými sömu hæðar.

Bæjarráð samþykkir að farið verði í hönnun á kerfinu og innkaupum á tækjum og búnaði.

Málsnúmer 2312195

19

Ráðningarferli vegna starfa sviðsstjóra.

Bæjarstjóri upplýsti að vegna tengsla við umsækjendur um starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs hafi hann ákveðið að víkja við undirbúning og meðferð málsins.

Bæjarstjóri vék af fundi.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að Björg Fenger, formaður bæjarráðs komi í stað bæjarstjóra að undirbúningi, málsmeðferð og ákvörðun að tillögu fyrir bæjarstjórn um ráðningu í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Bæjarráð samþykkir að sérstakur ráðgjafahópur sem í eiga sæti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri Garðabæjar, Margrét Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Vinnvinn, og Marínó Örn Tryggvason, sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Ráðgjafahópnum er ætlað að meta hæfi og hæfni umsækjenda á grundvelli þeirra sjónarmiða sem koma fram í auglýsingu um starfið og gera tillögu til formanns bæjarráðs um hverjir umsækjendur verða boðaðir í fyrsta viðtal. Viðtöl munu fara fram á starfstöð Vinnvinn.

Að loknum viðtölum verður tekin ákvörðun um að bjóða þeim sem teljast hæfastir til að gegna starfinu í annað viðtal. Að því loknu gerir formaður bæjarráðs tillögu til bæjarstjórnar um hvaða einstakling eigi að ráða til starfsins.

Ráðningarferli vegna starfs sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs verður með hefðbundnum hætti. Mannauðsstjóri og ráðgjafar fara yfir umsóknir og með tilliti til menntunar- og hæfniskrafna í auglýsingu og gera tillögu til bæjarstjóra um hverjir umsækjenda sem uppfylla fyrrgreind skilyrði verða boðaðir í viðtal.

Viðtöl munu fram á starfstöð Intellecta og þau annast bæjarstjóri, mannauðstjóri, sviðstjóri velferðarsviðs og starfsmaður Intelleccta. Að loknum viðtölum verður tekin ákvörðun um að bjóða þeim sem teljast hæfastir til að gegna starfinu í annað viðtal. Að því loknu gerir bæjarstjóri tillögu til bæjarstjórnar um hvaða einstakling eigi að ráða til starfsins.