Beint í efni

Kumlamýri 1- Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2304158

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

48. (2101). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Svölu B Heiðberg Guðmundsdóttur, kt. 250395-2139, leyfi til að stækka parhús í byggingu við Kumlamýri 1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

15. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

14. fundur

Lagðir fram breyttir aðaluppdrættir þar sem óskað er eftir því að bæta við svefnherbergi á neðri hæð að Kumlamýri 1. Breytingin rúmast innan byggingarreits og er í samræmi við deiliskipulagsskilmála.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis hvað deiliskipulag varðar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

34. (2087). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Svölu B. Heiðberg Guðmundsdóttur, kt. 250395-2139, leyfi til að byggja parhús á lóðinni að Kumlamýri 1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

9. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

06

7. fundur

Lagðir fram aðaluppdrættir parhúseingarinnar Kumlamýri 1 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í umsögn þá bendir skipulagsstjóri á að hávaxinn gróður meðfram lóðarmörkum eins og hann er sýndur á framlögðum útlitsuppdráttum er ekki í samræmi við deiliskipulag en þar segir m.a. í grein 5.3.13. í greinargerð að á þeim hluta lóðar sem snýr að opnum svæðum skuli aðeins gera ráð fyrir runnagróðri. Því skal annaðhvort breyta útlitsteikningu eða sækja um breytingu deiliskipulags hvað þetta ákvæði varðar.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar varðandi útfærslu á hæð langveggja og heildarstærð þá gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað þessi atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.