Beint í efni

14. fundur

29.11.2023
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

14. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

29.11.2023

Kl. 14:45 - 15:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2304158

01

Kumlamýri 1- Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram breyttir aðaluppdrættir þar sem óskað er eftir því að bæta við svefnherbergi á neðri hæð að Kumlamýri 1. Breytingin rúmast innan byggingarreits og er í samræmi við deiliskipulagsskilmála.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis hvað deiliskipulag varðar.

Málsnúmer 2302464

02

Hákotsvör 7 - Breyting á glugga - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um nýja útfærslu á gluggum byggingar. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Hákotsvör.

Grenndaráhrif eru hverfandi og ekki þess eðlis að ákvæði deiliskipulags hefði áhrif á útfærsluna.

Með vísan í 2.ml. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr.123/2010 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis þar sem gert er ráð fyrir umræddri útfærslu enda verður ekki séð að hún varði hagsmuni annarra en umsækjanda.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2311418

03

Langafit 18 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Löngufit 18. Viðbygging rúmast innan byggingarreits og er nýtingarhlutfall undir leyfilegum mörkum.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt hvað samræmi við deiliskipulag varðar. Lagfæra þarf uppgefna lóðarstærð á uppdrætti.

Málsnúmer 2003173

04

Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir einbýlishúss sem gerir ráð fyrir því að óuppfyllt gluggalaus rými á neðri hæð (kjallara) verði tengd kjallara með dyraopnun. Um þrjú rými er að ræða, alls um 84 m2. Nýtingarhlutfall verður 0,52 þegar tillit er tekið til umræddra rýma. Telst 0,42 áður en deiliskipulag heimilar 0,45.

Við veitingu byggingarleyfis gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að vikið verði frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað umrædd gluggalaus rými varðar enda skerða þau ekki hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2310123

05

Holtsbúð 49- Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir kjallara undir bílskúr.

Útfærsla er í samræmi við deiliskipulag Ásbúðar og Holtsbúðar en þar er kveðið á um að fleiri gólf geti verið innan byggingarreits.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis samkvæmt framlögðum aðaluppdráttum.

Málsnúmer 2310513

06

Eskiholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram fyrirspurn um byggingarleyfi á glerskála/sólskála undir svölum sunnan megin við Eskiholt 1.

Uppdrættir sýna að glerskáli undir svölum nær út fyrir byggingarreit á suðvestur húshorni byggingar og er það metið sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Í samræmi við 2 ml. 3. mgr. 44 gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2311061

07

Vetrarbraut 21a, b, c. - óveruleg dsk br.

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að lóðunum nr 21a og 21b við Vetrarbraut verði víxlað þannig að dæluhús verður nú á nr. 21a, áfram á 120m² lóð og tengistöð verður nú á nr. 21b, áfram á 84m² lóð. Skilmálar fyrir lóðirnar í kafla 4.14 í greinargerð eru óbreyttir.

Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðarbæjar og Veitna.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2203099

08

Grímsgata 6 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi. Útfærsla sorpgeymslu víkur frá ákvæðum og er staðstæð á lóð enda er pláss á lóð til staðar. Með vísan í sambærilega afgreiðslu vegna Lautargötu 4 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað ofangreind atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.