Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
48. (2101). fundur
Bæjarráð samþykkri afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Antoni Kristni Þórarinssyni, kt. 140379-4339, leyfi til að taka í notkun óuppfyllt gluggalaust rými og tengja við kjallara einbýlishússins við Haukanes 24.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
14. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir einbýlishúss sem gerir ráð fyrir því að óuppfyllt gluggalaus rými á neðri hæð (kjallara) verði tengd kjallara með dyraopnun. Um þrjú rými er að ræða, alls um 84 m2. Nýtingarhlutfall verður 0,52 þegar tillit er tekið til umræddra rýma. Telst 0,42 áður en deiliskipulag heimilar 0,45.
Við veitingu byggingarleyfis gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að vikið verði frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað umrædd gluggalaus rými varðar enda skerða þau ekki hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Bæjarráð Garðabæjar
04
43. (1951). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Antoni Kristni Þórarinssyni, kt. 140379-4339, leyfi fyrir breytingum á samþykktum teikningum einbýlishúss í byggingu að Haukanesi 24.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
06
12. fundur
Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar vegna óuppfylltra gluggalausra rýma á neðri hæð. Þau reiknast þá ekki með við útreikning nýtingarhlutfalls þar sem að grenndaráhrif þeirra rýma eru hverfandi. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
08
7. fundur
Lagðar fram nýjar aðalteikningar íbúðarhúss sem hefur verið breytt frá eldri teikningum. Þak er nú óuppbrotið og hæð þess 12,67 í stað 12,47 og 11,47.
Skipulagsstjóri bendir á að ef þak hússins er flatt og án uppbrots skal miða við 4 metra hæð yfir gólfkóta sem er 8,2 sbr. núverandi hús. Ef þak er uppbrotið er hægt að miða við rishæð sem er 5 metrar. Í deiliskipulagi er kveðið á um 1 m rishæð yfir hámarkshæð. Það er matsatriði hve stór hluti þakflatar í uppbrotnu þaki geti farið upp í rishæð. Það er mat skipulagsstóra að fyrri útfærsla hússins hafi verið með hæfilega uppbrotið þak. Ef umsækjandi óskar eftir því að leggja fram hinar breyttu teikningar þarf að óska eftir deiliskipulagsbreytingu.
Bæjarráð Garðabæjar
09
20. (1928). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Antoni Kristni Þórarinssyni, kt. 140379-4339, leyfi fyrir endurbyggingu og stækkun núverandi einbýlishúss að Haukanes 24.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
11
4. fundur
Byggingarleyfisumsókn sýnir stóra verönd við vesturhlið byggingar. Jarðvegshæð við lóðarmörk er óbreytt. Nyrsti hluti verandar eru svalir sem ná út fyrir byggingarreit. Þar er aðgengi að verönd úr stofu. Samkvæmt deiliskipulagi skulu allir hlutar byggingar vera innan byggingarreits þ.m.t. svalir. Tilgreina skal B-rými sem myndast undir "svalahluta" verandar til útreiknings nýtingarhlutfalls.
B-rymi undir svölum að norðanverðu eru ekki tilgreind í skráningatöflu og þarf að lagfæra.Hámarksnýtingarhlutfall samkvæmt deiliskipulagi er 0.45.
Þar sem að "svalahluti" verandar ná út fyrir byggingarreit lítur skipulagsstjóri svo á að um tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og vísar tillögunni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Haukaness 21, 22, 23 og 26. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.