Beint í efni

4. fundur

27.04.2020
afgreiðslufundir skipulagsstjóra

4. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

27.04.2020

Kl. 11:30 - 12:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna María Guðmundsdóttir
  • Eysteinn Haraldsson
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2003297

01

Hraunhólar 7 - breyting aðkoma að húsi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Deiliskipulag í Hraunhólum og Lyngmóum er í skoðun. Tekin verður afstaða til hugmynda um aðkomu húsa við Hraunhóla frá Lyngmóum í því ferli.

Málsnúmer 2004053

02

Langalína 14 - óskráð rými - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Umrædd breyting sem spurt er um hefur í för með sér stækkun húss um 70 m2. Í skráningartöflu kemur fram að heildarflatarmál sambýlishússins Langalína 10, 12 og 14 er 5.089,8 m2. Hámarksflatarmál samkvæmt deiliskipulagi er 5.090,0 m2 og er heimild því fullnýtt fyrir.

Skipulagsstjóri tekur ekki afstöðu til atriða sem varða byggingarreglugerð og öryggismál.

Þar sem að grenndaráhrif stækkunarinnar eru lítil sem engin gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017. Afgreiðsla málsins nær líka til sambærilegra rýma sambýlishússins.

Málsnúmer 2003477

03

Hagaflöt 20 - Umsókn um byggingarleyfi

Þar sem að hér er um að ræða breytingu á brunagafli á lóðarmörkun (hækkun) er tillögu vísað til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Hagaflatar 18 og 22, Lindarflatar 32, 34 og 36 og Bakkaflatar 1 og 2.

Sýna skal bílageymslu innan við bílastæði sem nýtist smærri bifreiðum.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1902148

04

Markarflöt 51, fyrirspurn um viðbyggingu

Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Deiliskipulagsbreyting skoðast því samþykkt.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2004225

05

Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir tengibyggingu milli íbúðarhúss og bifreiðargeymslu. Bifreiðargeymsla er sambyggð bifreiðargeymslu aðliggjandi lóðar með eldvarnarvegg á milli. Í deiliskipulagi Hofstaðamýrar er gert ráð fyrir því að bifreiðargeymslur séu stakstæðar á þessum stað. Vísað til grenndarkynningar þar sem að ekkert deiliskipulag telst í gildi. Grenndarkynna skal eigendum Fífumýrar 15 og Krókamýrar 16, 20, 32 og 34.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2003086

06

Lyngmóar 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa sem vinnur að mótun tillögu að deiliskipulagi fyrir Lyngmóa, Hrísmóa og Kjarrmóa.

Málsnúmer 2004290

07

Hofslundur 3 breytingar á bílskúr - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn þar sem spurt er hvort heimilað verði að bifreiðargeymslu sé breytt í íverurými.

Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi Lunda sem verður staðfest á næstu dögum skal gera ráð fyrir bifreiðargeymslu fyrir 2 bíla í öllum einbýlishúsum í Lundahverfi nema í Skógarlundi þar sem gera skal ráð fyrir bifreiðargeymslu fyrir 1 bíl.

Tillaga sem gerir ráð fyrir breytingu eins og spurt er um er því ekki í samræmi við deiliskipulag Lundahverfis.

Málsnúmer 1809323

08

Hvannalundur 17 - breyting bílskúr

Lögð fram fyrirspurn þar sem spurt er hvort heimilað verði að bifreiðargeymslu sé breytt í íverurými.

Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi Lunda sem verður staðfest á næstu dögum skal gera ráð fyrir bifreiðargeymslu fyrir 2 bíla í öllum einbýlishúsum í Lundahverfi nema í Skógarlundi þar sem gera skal ráð fyrir bifreiðargeymslu fyrir 1 bíl.

Tillaga sem gerir ráð fyrir breytingu eins og spurt er um er því ekki í samræmi við deiliskipulag Lundahverfis.

Málsnúmer 2003173

09

Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi

Byggingarleyfisumsókn sýnir stóra verönd við vesturhlið byggingar. Jarðvegshæð við lóðarmörk er óbreytt. Nyrsti hluti verandar eru svalir sem ná út fyrir byggingarreit. Þar er aðgengi að verönd úr stofu. Samkvæmt deiliskipulagi skulu allir hlutar byggingar vera innan byggingarreits þ.m.t. svalir. Tilgreina skal B-rými sem myndast undir "svalahluta" verandar til útreiknings nýtingarhlutfalls.

B-rymi undir svölum að norðanverðu eru ekki tilgreind í skráningatöflu og þarf að lagfæra.Hámarksnýtingarhlutfall samkvæmt deiliskipulagi er 0.45.

Þar sem að "svalahluti" verandar ná út fyrir byggingarreit lítur skipulagsstjóri svo á að um tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og vísar tillögunni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Haukaness 21, 22, 23 og 26. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 2004270

10

Lóðarmörk Árakurs og Byggakurs

Málsnúmer 2004259

11

Breiðakur 1 - skjólveggur á lóðarmörkum

Skipulagstjóri samþykkir fyrir hönd Garðabæjar skjólveggi tillögunnar sem hér segir. Veggur sem er næst Dalakri 2 og að Vesturökrum 1,8 m með þeim fyrirvara að samþykki aðliggjandi lóðarhafa liggi fyrir og að veggur sé 60 cm frá lóðarmörkum að Vesturökrum. Veggur sem liggur að lóðarmörkum við Vesturakra 1,5 m og þá í samræmi við viðmiðunarreglur byggingarfulltrúa sem lengi hefur verið stuðst við. Veggur sem liggur fyrir hornið skal vera 1,2 að hæð og í 90 cm frá lóðarmörkum, einnig þar sem að hann beygir. Á svæði milli lóðarmarka og skjólveggja skal gróðursetja. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Málsnúmer 1807087

12

Víkurgata 27 (29)-Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbretingu að lokinni grenndarkynningu. Engin athugasemd hefur borist. Tillagan skoðast því samþykkt.

Málsnúmer 2004075

13

Andvaravellir 2 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að hafa breidd hesthúss 12,21 m í stað 12m.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.