Breiðakur 1 - skjólveggur á lóðarmörkum
Málsnúmer 2004259
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
4. fundur
Skipulagstjóri samþykkir fyrir hönd Garðabæjar skjólveggi tillögunnar sem hér segir. Veggur sem er næst Dalakri 2 og að Vesturökrum 1,8 m með þeim fyrirvara að samþykki aðliggjandi lóðarhafa liggi fyrir og að veggur sé 60 cm frá lóðarmörkum að Vesturökrum. Veggur sem liggur að lóðarmörkum við Vesturakra 1,5 m og þá í samræmi við viðmiðunarreglur byggingarfulltrúa sem lengi hefur verið stuðst við. Veggur sem liggur fyrir hornið skal vera 1,2 að hæð og í 90 cm frá lóðarmörkum, einnig þar sem að hann beygir. Á svæði milli lóðarmarka og skjólveggja skal gróðursetja. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.