5. fundur
5. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020
30.04.2020
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Urriðaholt Norðurhluti 4 - deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 að lokinni auglýsingu.
Engar athugasemdir bárust en umsagnir gefa tilefni til viðbragða. Umsagnir Minjastofnunar, Umhverfisstofnunar og Vegagerðar lagðar fram.
Lögð fram greinargerð skipulagsráðgjafa um viðbrögð við ábendingum í umsögnum. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir gerði grein fyrir tillögum að viðbrögðum.
Skipulagsnefnd samþykkir að eftirfarandi breyting verði gerðar á tillögunni:
Lóð og byggingarreitur að Urriðaholtsstræti 1 breytir um stærð og lögun þannig að lóðin verði örugglega utan marka fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Skipulagsnefnd fellst á aðrar lagfæringar sem lagðar eru til í greinargerð skipulagsráðgjafa. Skipulagsnefnd samþykkir svör við umsögnum sem fram koma í greinargerðinni og rökstuðing þeirra.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem deiliskipulag Urriðaholts Norðurhluta 4 í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag Urriðaholts viðskiptastrætis.
02
Urriðaholt Viðskiptastræti - fellt úr gildi
Lagt fram deiliskipulag Urriðaholts Viðskiptastrætis. Skipulagsnefnd samþykkir að við gildistöku deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 falli deiliskipulagið Urriðaholt Viðskiptastræti úr gildi. Skipulagssvæði Viðskiptasvæðis er allt innan skipulagssvæðis hins nýja deiliskipulags.
03
Urriðaholt norðurhluti 3 - afmörkun svæðis - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Norðurhluta 3 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breyttum deiliskipulagsmörkum til aðlögunar að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.
04
Urriðaholt austurhluti 1 - afmörkun svæðis - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Austurhluta 1 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breyttum deiliskipulagsmörkum til aðlögunar að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.
05
Urriðaholt vesturhluti - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Vesturhluta að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á almennum lóðaskilmálum deiliskipulagsins hvað varðar ákvæði um sérnotafleti lóðar, girðingar og skjólveggi. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.
06
Urriðaholt norðurhluti 1 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Norðurhluta 1 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á almennum lóðaskilmálum deiliskipulagsins hvað varðar ákvæði um sérnotafleti lóðar, girðingar og skjólveggi. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.
07
Urriðaholt norðurhluti 2 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Norðurhluta 2 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á almennum lóðaskilmálum deiliskipulagsins hvað varðar ákvæði um sérnotafleti lóðar, girðingar og skjólveggi. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.
08
Urriðaholt norðurhluti 3 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Norðurhluta 3 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á almennum lóðaskilmálum deiliskipulagsins hvað varðar ákvæði um sérnotafleti lóðar, girðingar og skjólveggi. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.
09
Urriðaholt austurhluti 1 - skjólveggir - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts-Austurhluta 1 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á almennum lóðaskilmálum deiliskipulagsins hvað varðar ákvæði um sérnotafleti lóðar, girðingar og skjólveggi. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr,123/2010.
10
Vetrarmýri, dsk blandaðrar byggðar.
Skipulagsráðgjafar gerðu grein fyrir mótun tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar. Þeir ráðgjafar sem voru viðstaddir fundinn voru Sigurður Einarsson Betteríinu, Jóhanna Helgadóttir Eflu, Berglind Hallgrímsdóttir Eflu, Daði Baldur Ottósson Eflu og Þráinn Hauksson Landslagi ehf. Ólöf Kristjánsdóttir hjá Mannviti fór yfir atriði er lúta að BREEAM-vottun skipulagsins. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði.
11
Hnoðraholt norður deiliskipulag
Sigurður Einarsson hjá Batterínu gerði grein fyrir mótun tillögu að Hnoðraholti norður. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði.
12
Rjúpnadalur, dsk kirkjugarðs og meðferðarstofnunar.
Þráinn Hauksson hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir mótun tillögu að deiliskipulagi Rjúpnadals. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði.
13
Leiksvæði í Sjálandi
Lögð fram tillaga að útfærslu leiksvæðis við Vesturbrú í Sjálandi. Skipulagsnefnd telur að tillagan kalli á breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að á þessum stað verði auk sparkvallar gert ráð fyrir leiksvæði barna. Tillagan er metin sem óveruleg breyting deiliskipulags og henni vísað til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum íbúða í Löngulínu 13,15,17,19,21,23,27 og 29 og Vestrbrú 1.
14
Vesturtún 25 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimiluð verði stækkun byggingarreits um 50 cm að göngstíg þannig að hann verðir í 2,5 metra frá lóðarmörkum í stað 3 m. Skiplagsnefnd mælir ekki með því að byggingarreitur verði færður nær göngustíg á þessum stað. Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
15
Grænigarður - nýtt deiliskipulag - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn til skipulagsnefndar um tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis sem gerir ráð fyrir íbúðarhúslóð umhverfis húsið Grænagarð sem stendur á svæði sem skilgreint er sem opið svæði í Aðalskipulagi Garðabæjar og sem skógræktarsvæði í deiliskipulagi Garðahverfis. Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart tillögunni en telur að setja þurfi fyrirvara um aðkomu að lóðinni sem geti breyst þegar að Garðaholt verður deiliskipulagt. Tillagan kallar á aðalskipulagsbreytingu. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
16
Austurhraun 7 og 9. Breyting á deiliskipulagi Molduhrauns
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að lóðin Ausuthraun 9 stækki sem nemi svæði sem tilheyrir bæjarlandi þar sem gert er ráð fyrir göngstíg á milli Miðhrauns og Austurhrauns. Sá stígur hefur ekki verið lagður. Í stað stígsins komi kvöð um gönguleið í gegnum lóðina á sama stað og stígurinn lá. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 vísar tillögunni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Miðhraun, Austurhraun og Vesturhraun.
17
Umferð í Garðabæ
Lögð fram skýrsla um umferð í Garðabæ sem Efla ehf hefur unnið. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framsetingu skýrslunnar og samþykkir hana fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
18
Ný miðborg eða Borgarlína
Áskorun samtaka um betri byggð lögð fram. Umræðu vísað til næsta fundar skipulagsnefndar.
19
Ferðavenjukönnun fyrir höfuðborgarsvæðið 2019
Lagt fram.Umræðu vísað til næsta fundar skipulagsnefndar.
21
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 4
Fundargerð lögð fram.
21.1 - 2003297 - Hraunhólar 7 - breyting aðkoma að húsi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Deiliskipulag í Hraunhólum og Lyngmóum er í skoðun. Tekin verður afstaða til hugmynda um aðkomu húsa við Hraunhóla frá Lyngmóum í því ferli.
21.10 - 2004270 - Lóðarmörk Árakurs og Byggakurs
21.11 - 2004259 - Breiðakur 1 - skjólveggur á lóðarmörkum
Skipulagstjóri samþykkir fyrir hönd Garðabæjar skjólveggi tillögunnar sem hér segir. Veggur sem er næst Dalakri 2 og að Vesturökrum 1,8 m með þeim fyrirvara að samþykki aðliggjandi lóðarhafa liggi fyrir og að veggur sé 60 cm frá lóðarmörkum að Vesturökrum. Veggur sem liggur að lóðarmörkum við Vesturakra 1,5 m og þá í samræmi við viðmiðunarreglur byggingarfulltrúa sem lengi hefur verið stuðst við. Veggur sem liggur fyrir hornið skal vera 1,2 að hæð og í 90 cm frá lóðarmörkum, einnig þar sem að hann beygir. Á svæði milli lóðarmarka og skjólveggja skal gróðursetja. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
21.12 - 1807087 - Víkurgata 27 (29)-Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbretingu að lokinni grenndarkynningu. Engin athugasemd hefur borist. Tillagan skoðast því samþykkt.
21.13 - 2004075 - Andvaravellir 2 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að hafa breidd hesthúss 12,21 m í stað 12m.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
21.2 - 2004053 - Langalína 14 - óskráð rými - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Umrædd breyting sem spurt er um hefur í för með sér stækkun húss um 70 m2. Í skráningartöflu kemur fram að heildarflatarmál sambýlishússins Langalína 10, 12 og 14 er 5.089,8 m2. Hámarksflatarmál samkvæmt deiliskipulagi er 5.090,0 m2 og er heimild því fullnýtt fyrir.
Skipulagsstjóri tekur ekki afstöðu til atriða sem varða byggingarreglugerð og öryggismál.
Þar sem að grenndaráhrif stækkunarinnar eru lítil sem engin gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017. Afgreiðsla málsins nær líka til sambærilegra rýma sambýlishússins.
21.3 - 2003477 - Hagaflöt 20 - Umsókn um byggingarleyfi
Þar sem að hér er um að ræða breytingu á brunagafli á lóðarmörkun (hækkun) er tillögu vísað til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Hagaflatar 18 og 22, Lindarflatar 32, 34 og 36 og Bakkaflatar 1 og 2.
Sýna skal bílageymslu innan við bílastæði sem nýtist smærri bifreiðum.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
21.4 - 1902148 - Markarflöt 51, fyrirspurn um viðbyggingu
Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Deiliskipulagsbreyting skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
21.5 - 2004225 - Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir tengibyggingu milli íbúðarhúss og bifreiðargeymslu. Bifreiðargeymsla er sambyggð bifreiðargeymslu aðliggjandi lóðar með eldvarnarvegg á milli. Í deiliskipulagi Hofstaðamýrar er gert ráð fyrir því að bifreiðargeymslur séu stakstæðar á þessum stað. Vísað til grenndarkynningar þar sem að ekkert deiliskipulag telst í gildi. Grenndarkynna skal eigendum Fífumýrar 15 og Krókamýrar 16, 20, 32 og 34.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
21.6 - 2003086 - Lyngmóar 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa sem vinnur að mótun tillögu að deiliskipulagi fyrir Lyngmóa, Hrísmóa og Kjarrmóa.
21.7 - 2004290 - Hofslundur 3 breytingar á bílskúr - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn þar sem spurt er hvort heimilað verði að bifreiðargeymslu sé breytt í íverurými.
Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi Lunda sem verður staðfest á næstu dögum skal gera ráð fyrir bifreiðargeymslu fyrir 2 bíla í öllum einbýlishúsum í Lundahverfi nema í Skógarlundi þar sem gera skal ráð fyrir bifreiðargeymslu fyrir 1 bíl.
Tillaga sem gerir ráð fyrir breytingu eins og spurt er um er því ekki í samræmi við deiliskipulag Lundahverfis.
21.8 - 1809323 - Hvannalundur 17 - breyting bílskúr
Lögð fram fyrirspurn þar sem spurt er hvort heimilað verði að bifreiðargeymslu sé breytt í íverurými.
Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi Lunda sem verður staðfest á næstu dögum skal gera ráð fyrir bifreiðargeymslu fyrir 2 bíla í öllum einbýlishúsum í Lundahverfi nema í Skógarlundi þar sem gera skal ráð fyrir bifreiðargeymslu fyrir 1 bíl.
Tillaga sem gerir ráð fyrir breytingu eins og spurt er um er því ekki í samræmi við deiliskipulag Lundahverfis.
21.9 - 2003173 - Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi
Byggingarleyfisumsókn sýnir stóra verönd við vesturhlið byggingar. Jarðvegshæð við lóðarmörk er óbreytt. Nyrsti hluti verandar eru svalir sem ná út fyrir byggingarreit. Þar er aðgengi að verönd úr stofu. Samkvæmt deiliskipulagi skulu allir hlutar byggingar vera innan byggingarreits þ.m.t. svalir. Tilgreina skal B-rými sem myndast undir "svalahluta" verandar til útreiknings nýtingarhlutfalls.
B-rymi undir svölum að norðanverðu eru ekki tilgreind í skráningatöflu og þarf að lagfæra.Hámarksnýtingarhlutfall samkvæmt deiliskipulagi er 0.45.
Þar sem að "svalahluti" verandar ná út fyrir byggingarreit lítur skipulagsstjóri svo á að um tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og vísar tillögunni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Haukaness 21, 22, 23 og 26. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.