Beint í efni

Leiksvæði í Sjálandi - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2004418

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

6. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

4. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Sjálands að lokinni grenndarkynningu sem gerir ráð fyrir því að sparkvöllur við Vesturbrú breytist í leiksvæði og sparkvöll. Lögð fram tillaga að nýrri útfærslu leiksvæðis og sparkvallar sem var einnig kynnt þeim sem grenndarkynning náði til. Engar athugasemdir hafa borist. Breytingartillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Sjálands í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

3. (881). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna breyttrar tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sjálands á svæði sparkvallar sem verður þá skilgreint sem leiksvæði og sparkvöllur, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum íbúða við Löngulínu 13, 15, 17, 19, 21, 23, 27 og 29 og Vesturbrú 1. (Mál nr. 2004418)

Bæjarráð Garðabæjar

04

6. (1964). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna breyttrar tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sjálands á svæði sparkvallar sem verður þá skilgreint sem leiksvæði og sparkvöllur, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum íbúða við Löngulínu 13, 15, 17, 19, 21, 23, 27 og 29 og Vesturbrú 1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Sjálands að lokinni grenndarkynningu sem gerir ráð fyrir því að sparkvöllur við Vesturbrú breytist í leiksvæði og sparkvöll. Lögð fram tillaga að nýrri útfærslu leiksvæðis og sparkvallar sem hefur verið kynnt stjórn húsfélagsins við Löngulínu 15-23.
Skipulagsnefnd vísar tillögu að breytingu deiliskipulags til grenndarkynningar að nýju og skal útfærsla leiksvæðis og sparkvallar einnig kynnt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

7. fundur

Lögð fram tillaga að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem borist hafa. Tillaga að útfærslu leiksvæðis fylgdi breytingartillögunni.
Tillögu vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði, skipulagsnefnd leggur til að ærslabelgur verði tekinn út.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

8. (867). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

8. (867). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Sjálands í tilefni að tillögu um breytingu á svæði sparkvallar sem verður þá skilgreint sem leiksvæði, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum íbúða við Löngulínu 13, 15, 17, 19, 21, 23, 27 og 29 og Vesturbrú 1. (Mál nr. 2004418)

Bæjarráð Garðabæjar

09

17. (1926). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Sjálands í tilefni að tillögu um breytingu á svæði sparkvallar sem verður þá skilgreint sem leiksvæði, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum íbúða við Löngulínu 13, 15, 17, 19, 21, 23, 27 og 29 og Vesturbrú 1.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

5. fundur

Lögð fram tillaga að útfærslu leiksvæðis við Vesturbrú í Sjálandi. Skipulagsnefnd telur að tillagan kalli á breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að á þessum stað verði auk sparkvallar gert ráð fyrir leiksvæði barna. Tillagan er metin sem óveruleg breyting deiliskipulags og henni vísað til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum íbúða í Löngulínu 13,15,17,19,21,23,27 og 29 og Vestrbrú 1.