Beint í efni

17. (1926). fundur

05.05.2020
Bæjarráð Garðabæjar

17. (1926). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

fjarfundar samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. mars 2020

05.05.2020

Kl. 08:00 - 09.00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID19 - neyðarstig almannavarna.

Bæjarstjóri upplýsti að í gær hafi hafist eðlilegt starf í leik- og grunnskólum og íþróttastarf barna og ungmenna en með þeim takmörkunum sem fram koma í auglýsingu sóttvarnaryfirvalda varðandi starfsfólk o.fl. Þá hefur bókasafnið opnað og í undirbúningi er að opna Jónshús fyrir félagsstarf eldri borgara.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu atriðum í stöðuskýrslu AHS, dags. 2. maí sl.

Sviðsstjórar fóru yfir starfsemina á sínum sviðum.

Upplýsingastjóri sagði frá því að verið er að boða til samráðsfundar varðandi fyrirkomulag viðburða á höfuðborgarsvæðinu í sumar.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger og Harpa Þorsteinsdóttir, voru á fundi bæjarráðs undir dagskráliðum 1 og 2.

Málsnúmer 2003177

02

Sumarstörf ungmenna 2020.

ÁÁ fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið voru Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og Auður Jóhannsdóttir, deildarstjóri kjaradeildar.

Mannauðsstjóri gerði grein fyrir hugmyndum að ýmsum nýjum sumarstörfum sem geta komið til greina í atvinnuátaki fyrir ungt fólk en í undirbúningi er að sækja um fjárveitingar til Vinnumálastofnunar til nýrra starfa. Að svo stöddu liggja ekki fyrir hvaða reglur munu gilda um umsóknir.

Deildarstjóri kjaradeildar fór yfir kostnaðarútreikninga en fram kom að 236 ungmenni sóttu um sumarvinnu í auglýstum umsóknarfresti. Opnað var fyrir að skrá sig á biðlista og alls eru nú skráðir 188 á biðlista.

Lagðir voru fram kostnaðarútreikningar sem gera ráð fyrir að ráða alla í vinnu sem sóttu um í umsóknarfresti og þá sem eru skráðir á biðlista. Sé miðað við óbreytt vinnutímabil er launakostnaður áætlaður 315 mkr en sé miðað við styttingu vinnutímabils um eina viku er launakostnaður áætlaður 276 mkr.

Í fjárhagsáætlun er launakostnaður áætlaður um 120 mkr.

Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir að ráða öll ungmenni í sumarvinnu sem sótt hafa um og skráð verða á biðlista sem verður opinn til 31. maí. Við skipulag á fyrirkomulagi vinnu skal miða við að vinnutími verði styttur sem nemur einni viku. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá viðauka vegna aukins kostnaðar.

Málsnúmer 2001314

03

Maríugata 8 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingvari og Kristjáni ehf., kt. 660399-2089, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Maríugötu 8.

Málsnúmer 2001312

04

Maríugata 10 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingvari og Kristjáni ehf., kt. 660399-2089, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Maríugötu 8.

Málsnúmer 2001313

05

Maríugata 12 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingvari og Kristjáni ehf., kt. 660399-2089, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Maríugötu 12.

Málsnúmer 1903293

06

Urðargata 1- Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggingarfélaginu Rótum ehf., kt. 700707-0160, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Urðargötu 1.

Málsnúmer 1903292

07

Urðargata 3 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggingarfélaginu Rótum ehf., kt. 700707-0160, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Urðargötu 3.

Málsnúmer 1903291

08

Urðargata 5 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggingarfélaginu Rótum ehf., kt. 700707-0160, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Urðargötu 5.

Málsnúmer 1908042

09

Vesturtún 55a og 55b - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Erlu Lilju Kristjánsdóttur, kt. 030183-4609, og Tinnu Rán Ægisdóttur, kt. 201180-5629, leyfi fyrir nýjum kvistum og stækkun kvista við parhúsið að Vesturtúni 55a og 55b.

Málsnúmer 2004161

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðanna við Austurhraun 7 og 9.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Molduhrauns í tilefni umsóknar um stækkun á lóðinni við Austurhraun 9 og breytingar á göngustíg milli lóðanna við Austurhraun 7 og 9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Miðhraun, Austurhraun og Vesturhraun.

Málsnúmer 2004418

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna leiksvæðis við Vesturbrún.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Sjálands í tilefni að tillögu um breytingu á svæði sparkvallar sem verður þá skilgreint sem leiksvæði, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum íbúða við Löngulínu 13, 15, 17, 19, 21, 23, 27 og 29 og Vesturbrú 1.

Málsnúmer 1912215

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi brottfall deiliskipulags fyrir Viðskiptastræti Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um brottfall deiliskipulags Viðskiptastrætis Urriðaholts en tillaga er um að svæðið verði hluti af deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Málsnúmer 1912213

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Urriðaholts norður vegna afmörkunar skipulagssvæðis.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á deiliskipulagsmörkum. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1912214

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna afmörkunar skipulagssvæðis.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á deiliskipulagsmörkum. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1811125

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir en umsagnir gefa tilefni að leggja til eftirfarandi breytingu á auglýstri tillögu.

Lóðar og byggingarreitur Urriðaholtsstrætis 1 breytir um stærð og lögun til að lóðin verði utan marka fólksvangsins í Vífilsstaðahrauni.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.

Málsnúmer 1912216

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna ákvæða um skjólveggi.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts er varðar breytingu á ákvæðum skilmála um skjólveggi. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1912217

17

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna ákvæða um skjólveggi.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á ákvæðum skilmála um skjólveggi. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1912218

18

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna ákvæða um skjólveggi.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á ákvæðum skilmála um skjólveggi. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1912219

19

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna ákvæða um skjólveggi.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á ákvæðum skilmála um skjólveggi. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1912220

20

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna ákvæða um skjólveggi.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts er varðar breytingu á ákvæðum skilmála um skjólveggi. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2004377

21

Bréf íbúa við Miðskóga varðandi beiðni um breytingu á skipulagi akstursgötu við Miðskóga á Álftanesi, dags. 24.04.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2004411

22

Tilkynning frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um lækkun mánaðarlegra greiðslna vegna útgjaldajöfnunarframlaga og framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti., dags. 28.04.20.

Í tilkynningunni kemur fram að á fundi ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs hafi verið tekin ákvörðun vegna samdráttar á tekjum sjóðsins að lækka mánaðargreiðslur til sveitarfélaga vegna útgjaldajöfnunarframlaga og framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti um 12,5%.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2004427

23

Bréf Brynju Hússjóðs varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2020, dags. 24.04.20.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2004436

24

Ársreikningur og ársskýrsla heilbrigðiseftirlits fyrir árið 2019.

Málsnúmer 2004444

25

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um þjónustu við fötluð börn og ungmenni.

Málsnúmer 2004449

26

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna, 715. mál., dags. 30.04.20.

Lagt fram.