Beint í efni

Tilkynning Mannvits varðandi staðfestingu á BREEAM vottun 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts, dags. 29.03.23.

Málsnúmer 1811125

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

14. (2067). fundur

Í tilkynningunni kemur fram að gefið hefur verið út vottunarskírteíni til staðfestingar á BREEAM vottun 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Með staðfestingunni liggur fyrir að heildarskipulag Urriðaholts er vottað af BREEAM Commmunities.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem er svæði fyrir nýja íbúðarbyggð og atvinnustarfsemi norðan við Urriðaholtsstræti auk útivistarsvæðis næst Flóttamannaveginum. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. og var samhliða auglýst breyting á aðalskipulagi. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:
Feldur verður niður glertengigangur á 3. og 4. hæð miðhluta fjölbýlishússins við Urriðaholtsstræti 9, en miðhlutinn er 2 hæðir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær. (Mál nr. 1811125)

Bæjarráð Garðabæjar

03

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem er svæði fyrir nýja íbúðarbyggð og atvinnustarfsemi norðan við Urriðaholtsstræti auk útivistarsvæðis næst Flóttamannaveginum. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. og var samhliða auglýst breyting á aðalskipulagi. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Skipulagsnefnd samþykkti að til að koma á móts við athugasemdir um útsýnisskerðingu að leggja til eftirfarandi breytingar við auglýsta tillögu.

Miðhluti fjölbýlishúss við Urriðaholtsstræti 9 er 2 hæðir og verður feldur út glertengigangur á 3. og 4. hæð.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

4. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 að lokinni auglýsingu í damræmi við 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Deiliskipulagstillagan nær til svæðis fyrir nýja íbúðabyggð og atvinnustarfsemi norðan við Urriðaholtsstræti, auk útivistarsvæðis næst Flóttamannavegi. Hluti af deiliskipulagstillögunni er endurskoðun á deiliskipulagi fyrsta áfanga Urriðaholts, sem kallað er Viðskiptastræti og náði yfir húsin næst gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Holtsvegar. Hæðir húsa á skipulagssvæðinu verða á bilinu 4-6 hæðir. Fjöldi íbúða verður 218 (36 þegar byggðar), og atvinnuhúsnæði verður um 48.000 m2 (um 11.000 þegar byggt eða í byggingu).
Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis og var í kynningu frá 11.desember 2020 til 22.janúar 2021.
Athugasemdir bárust frá íbúum við Urriðaholtsstræti og eru þær lagðar fram.
Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs og Alta ehf hafa fundað með fulltrúum húsfélagsins og farið yfir tillögurnar og athugasemdirnar.
Gerðar eru athugasemdir við hæðafjölda bygginga og skerðingar á útsýni til norðurs frá fjölbýlishúsum við Urriðaholtsstræti.
Skipulagsnefnd bendir á að með nýju deiliskipulagi verði byggingar fjær byggð við vestanvert Urriðaholtsstræti og þar að auki lægri en gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Breytingarnar séu því verulega til bóta hvað varðar útsýni frá aðliggjandi byggð.
Skipulagsnefnd leggur til að komið verði til móts við athugsemdir um útsýnisskerðingu með því að bil milli húshluta verði 2 hæðir og ekki gert ráð fyrir tengingum milli húshluta á 3.og 4.hæð.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna sem deiliskipulag Urriðaholts Norðurhluta 4 með ofangreindri breytingu í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Einnig samþykkt umhverfisskýrsla sem er hluti af tillögunni í samræmi við lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Við gildistöku deiliskipulags Norðurhluta 4 fellur deiliskipulag Urriðaholts Viðskiptastrætis úr gildi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 að lokinni auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Frestur til að skila inn athugasemdum rann út þann 22. janúar 2021.
Athugasemdir sem bárust innan tilskilins frests lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

16. (875). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. (Mál nr.1811125)

Bæjarráð Garðabæjar

07

43. (1951). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

11. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 að lokinni forkynningu ásamt umsögnum og ábendingum sem borist hafa. Tillagan er lögð fram óbreytt efnislega en uppfærð hvað ferlið varðar.
Þegar að deiliskipulagstillagan verður staðfest fellur úr gildi deiliskipulag Urriðaholts viðskiptastrætis. Breytingar á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 og Austurhluta þar sem afmörkun svæðanna var breytt til aðlögunar að deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 hafa tekið gildi með birtingu auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda nr. 475/2020.
Skipulagsnefnd samþykkir auglýsingu tillgönnar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skal hún kynnt samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

13. (872). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Kynningin skal auglýst með áberandi hætti. (Mál nr. 1811125)

Bæjarráð Garðabæjar

10

36. (1944). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Kynningin skal auglýst með áberandi hætti.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

9. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta. Er hér um óbreytta tillögu að ræða frá fyrri auglýsingu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

12. (871). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að endurauglýsa tillögu að lýsingu fyrir deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 30. gr. skipulagslaga. Endurauglýsing tillögunnar skal birt samhliða auglýsingu á tillögu að lýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi, sjá lið 4 í fundargerð. (Mál nr. 1811125)

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

12. (871). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að endurauglýsa tillögu að lýsingu fyrir deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 30. gr. skipulagslaga. Endurauglýsing tillögunnar skal birt samhliða auglýsingu á tillögu að lýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi, sjá lið 4 í fundargerð. (Mál nr. 1811125)

Bæjarráð Garðabæjar

14

34. (1942). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að endurauglýsa tillögu að lýsingu fyrir deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 30. gr. skipulagslaga. Endurauglýsing tillögunnar skal birt samhliða auglýsingu á tillögu að lýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi, sjá lið 4 í fundargerð.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

8. fundur

Lögð fram tillaga að lýsingu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulags fyrir Urriðaholt Norður 4 ásamt matslýsingu.
Deiliskipulag fyrir norðurhluta 4 í Urriðholti hefur farið í gegnum kynningarferli skv. lögum. Við lokaafgreiðslu Skipulagsstofnunar var bent á að ekki væri ljóst hvernig áform um íbúðarbyggð við Lautargötu á svæði 5.04 Vþ samræmdust aðalskipulagi Garðabæjar. Engar athugasemdir voru gerðar við önnur svæði deiliskipulagsins.
Í skilmálun aðalskipulags fyrir reit 5.04 Vþ er sagt að meirihluti byggðar í þeim reit skuli vera atvinnuhúsnæði en láðst hefur að geta þess hvaða önnur landnotkun sé þar heimil. Til að skýra þetta verður lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar á þann veg að skýrt komi fram að íbúðarbyggð sé leyfð á því svæði sem um ræðir í stað atvinnuhúsnæðis.
Vegna þessa þarf að endurauglýsa Deiliskipulag Urriðaholts norðurhluta 4 og er ráðgert að auglýsa það með óbreyttum skilmálum og uppdrætti. Markmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að setja það fram á skýran hátt að innan reits 5.04 Vþ sé íbúðarbyggð einnig heimil og að í skilmálum fyrir reitinn komi fram að heimild fyrir íbúðarhúsnæði miði við að það sé innan við 50% af heildar byggingarmagni reitsins.
Engin breyting er áformuð á uppdrættinum, bara skilmálum um reitinn 5.04 Vþ.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu og matslýsingu.

Bæjarráð Garðabæjar

16

31. (1939). fundur

Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hafi yfirfarið gögn deiliskipulags fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. maí sl. Skipulagsstofnun gerir athugasemdir við deiliskipulagið og bendir á að ekki sé ljóst hvernig áform um uppbyggingu íbúða á umræddu svæði sem skilgreint er sem verslun og þjónusta samræmist landnotkun í gildandi aðalskipulagi.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.

Bæjarstjórn Garðabæjar

17

8. (867). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir en umsagnir gefa tilefni að leggja til eftirfarandi breytingu á auglýstri tillögu.
Lóðar og byggingarreitur Urriðaholtsstrætis 1 breytir um stærð og lögun til að lóðin verði utan marka fólksvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga. (Mál nr. 1811125)

Bæjarráð Garðabæjar

18

17. (1926). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir en umsagnir gefa tilefni að leggja til eftirfarandi breytingu á auglýstri tillögu.

Lóðar og byggingarreitur Urriðaholtsstrætis 1 breytir um stærð og lögun til að lóðin verði utan marka fólksvangsins í Vífilsstaðahrauni.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

19

5. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 að lokinni auglýsingu.
Engar athugasemdir bárust en umsagnir gefa tilefni til viðbragða. Umsagnir Minjastofnunar, Umhverfisstofnunar og Vegagerðar lagðar fram.
Lögð fram greinargerð skipulagsráðgjafa um viðbrögð við ábendingum í umsögnum. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir gerði grein fyrir tillögum að viðbrögðum.
Skipulagsnefnd samþykkir að eftirfarandi breyting verði gerðar á tillögunni:
Lóð og byggingarreitur að Urriðaholtsstræti 1 breytir um stærð og lögun þannig að lóðin verði örugglega utan marka fólkvangsins í Vífilsstaðahrauni.
Skipulagsnefnd fellst á aðrar lagfæringar sem lagðar eru til í greinargerð skipulagsráðgjafa. Skipulagsnefnd samþykkir svör við umsögnum sem fram koma í greinargerðinni og rökstuðing þeirra.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem deiliskipulag Urriðaholts Norðurhluta 4 í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag Urriðaholts viðskiptastrætis.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

3. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 að lokinni auglýsingu. Umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Engar athugasemdir bárust innan tilskilins frests.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

21

19. (859). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samhliða samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis þar sem gert er ráð fyrir að skipulag verði fellt úr gildi og breytingu á 3. áfanga norðurhluta og austurhluta Urriðaholts vegna nýrrar afmörkunar deiliskipulagssvæða.

Bæjarráð Garðabæjar

22

48. (1909). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samhliða samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis þar sem gert er ráð fyrir að skipulag verði fellt úr gildi og breytingu á 3. áfanga norðurhluta og austurhluta Urriðaholts vegna nýrrar afmörkunar deiliskipulagssvæða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

23

17. fundur

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Alta ehf gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 og þeim breytingum sem gerðar hafa verið á tillögunni í kjölfar forkynningar.
Lagt er til að deiliskipulag Viðskiptastrætis verði fellt úr gildi og nær deiliskipulagstillagan til þess svæðis einnig.
Gert er ráð fyrir 182 íbúðareiningum við 3 botnlangagötur. Lagt er til að heiti gatnanna verði Vörðugata, Grímsgata og Lautargata. Innan deiliskipulagssvæðisins er einnig fjölbýlishúslóðin Urriðaholtsstræti 10-12 sem var hluti af deiliskipulagi Viðskiptastrætis en þar hefur verið gert ráð fyrir 36 íbúðareiningum og helst það óbreytt.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Tillaga kallar á breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 3 og Urriðaholts austurhluta vegna afmörkunar deiliskiplagssvæða. Skipulagsnefnd vísar þeim breytingartillögu til auglýsingar og skulu þær auglýstar samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta 4.
Við gildistöku deiliskipulags Norðurhluta 4 mun deiliskipulag Urriðaholts Viðskiptastrætis falla úr gildi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

24

16. fundur

Skipulagsráðgjafar Alta og Arkís Hrafnhildur Brynjólfsdóttir og Edda K.Einarsdóttir og framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf Jón Pálmi Guðmundsson kynntu drög að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 sem unnið hefur verið að á vegum Urriðaholts í samráði við tækni-og umhverfissvið. Kynnt greining á gróðurfari í norðurhlíð Urriðaholts sem hefur verið lögð til grundvallar í mótunarvinnunni. Vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði og til umfjöllunar í umhverfisnefnd.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

25

11. fundur

Fulltrúar Urriðaholts ehf og deiliskipulagshöfundar kynntu drög að deiliskipulagi Urriðaholts Austurhluta 2 sem nú er lagt til að að verði nefnt 4. áfangi deiliskipulags norðurhluta Urriðaholts.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

26

5. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta 2.
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Alta ehf gerði grein fyrir tillögunni fyrir hönd Urriðaholts ehf. Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf og Egill Guðmundsson arkitekt hjá Arkís og deiliskipulagshöfundur tillögnnar voru viðstaddir fundinn. Tillagan hefur verið unnin í samráði við tækni-og umhverfissvið á grundvelli verkefnislýsingar sem bæjarstjórn hefur samþykkt og hefur verið auglýst. Lagðar fram umsagnir sem borist hafa vegna lýsingarinnar.
Tillagan gerir ráð fyrir um 188-200 íbúðareiningum í fjölbýli og 17.000-20.000 fermetrum atvinnuhúsnæðis. Landi hallar öllu til norðurs að Vífilsstaðahrauni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur.

Bæjarstjórn Garðabæjar

27

18. (840). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um skipulags- og matslýsingu vegna fyrirhugaðrar vinnu við gerð deiliskipulag fyrir 2. áfanga austurhluta Urriðaholts, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 8. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum. Sjá einnig 38. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð Garðabæjar

28

45. (1860). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skipulags- og matslýsingu vegna fyrirhugaðrar vinnu við gerð deiliskipulag fyrir 2. áfanga austurhluta Urriðaholts, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 8. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum, Sjá einnig 38. gr. skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

29

15. fundur

Lögð fram skipulags-og matslýsing á deiliskipulagi nýs uppbyggingarsvæðis í Urriðaholti, Austurhluta II og endurskoðunar á deiliskipulagi Viðskiptastrætis. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta ehf gerði grein fyrir lýsingunni.
Markmið deiliskipulagstillgöunnar verður að deiliskipulagt verði íbúðarbyggð með 180-200 íbúðum í minna og stærra fjölbýli. Gert verður ráð fyrir því að skógræktarsvæði það sem er í suðausturhlíð Urriðaholts haldi sér. Í vestari hluta svæðisins verður gert ráð fyrir atvinnustarfsemi norðan við Urriðaholtsstræti. Miðað verður við um 23-25.000 fermetra atvinhhuhúsnæðis.
Deiliskipulagið fellur undir lög um mat á umhverfisáhrifum vegna þess að Urriðaholtsstræti er tengibraut samkvæmt aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagslýsinguna í samræmi við 1. mgr.40.gr.skipulagslaga nr. 123/2010 og matslýsinguna í samræmi við 8. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.

Bæjarstjórn Garðabæjar

30

17. (839). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila Urriðaholti, sem landeiganda, að láta vinna á sinn kostnað, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulag fyrir 2. áfanga austurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð Garðabæjar

31

43. (1858). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila Urriðaholti, sem landeiganda, að láta vinna á sinn kostnað, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulag fyrir 2. áfanga austurhluta Urriðaholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

32

14. fundur

Framkvæmdastjóri Urriðaholts Jón Pálmi Guðmundsson og Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsráðgjafi hjá Alta ehf kynntu drög að deiliskipulagi 2.áfanga Austurhluta Urriðaholts.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita Urriðaholti heimild til þess að vinna deiliskipulag 2.áfanga Austurhluta Urriðaholts sbr. 2.mgr.38.gr.skipulagslaga nr.123/2010.