Beint í efni

31. (1939). fundur

11.08.2020
Bæjarráð Garðabæjar

31. (1939). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

11.08.2020

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID19 - hættustig almannavarna.

Á fund bæjarráðs mætti Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna á höfuðborgarsvæðinu og fór yfir stöðu mála. Sviðsstjórar fóru yfir þær samkomutakmarkanir sem nú eru í gildi og áhrif þeirra á starfsemi Garðabæjar.

Bæjarfulltrúinn Gunnar Valur Gíslason sat fund bæjarráðs undir dagskrárlið 1.

Málsnúmer 2008125

02

Skólabyrjun haustið 2020

Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, fór yfir stöðu mála varðandi skólabyrjun hjá grunn- og leikskólum og Tónlistarskóla Garðabæjar.

Útfærsla á aðlögun nýrra barna í leikskólum er í skoðun með tilliti til gildandi samkomutakmarkana.

Um 240 ný börn eru að innritast í leikskóla Garðabæjar í haust. Einnig var gerð grein fyrir stöðu framkvæmda við skólahúsnæði og mönnun í skólum. Svipaður fjöldi nemenda er á grunnskólastigi milli skólaára.

Umræður voru um áhrif Covid-19 á starfsemi skólastarfs.

Málsnúmer 1904109

03

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023)- viðaukar 5-6

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu að viðaukum nr. 5 og 6 við fjárhagsáætlun Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 5 og 6 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 5 - æskulýðs- og íþróttamál.

Aðgangseyrir sundlauga kr. 9.000.000

Útleiga fasteigna kr. 2.500.000

Félagsmiðstöðvar (velferð barna og ungmenna) kr. 2.000.000

Covid útgjöld kr. 2.000.000

Hestamannafélagið Sóti (bygging reiðskemmu) kr. 10.000.000

Styrkur til íþrótta og heilsurækt kvenna (19. júní sjóður) kr. 4.000.000

Ásgarður íþróttamiðstöð v. lokunar sundlaugar kr. -1.000.000

Mýrin íþróttamiðstöð kr. -500.000

Íþróttahús Sjálandsskóla kr. -500.000

Aðrir styrkir til íþrótta- og æskulýðsmála kr. -2.000.000

Samtals breyting kr. 25.500.000

Kostnaðarauka mætt.

Niðurlagning á 19. júní sjóði samkvæmt

samþykkt bæjarstjórnar frá 4. júní 2020 kr. 24.900.000

Lækkun á varasjóði kr. 600.000

Viðauki 6 - hreinlætismál.

Leggja þarf Sorpu bs. til aukið fjármagn á árinu 2020 til að takast á við vanda vegna ófjármagnaðra fjárfestinga sbr. tillögu stjórnar byggðasamlagsins sem samþykkt var á fundi bæjarráðs 7. júlí 2020.

Lagt er til að eigendur leggi til Sorpu bs. 1.000 mkr. á árunum 2020 og 2021 eða 500 mkr. hvort ár. Hlutur Garðabæjar nemur 36,3 mkr. á árinu 2020.

Stofnframlag til Sorpu 08210-9911 kr. 36.300.000

Kostnaðarauka mætt.

Lækkun á varasjóði 31916-7179 kr. -36.300.000

Málsnúmer 2002243

04

Hellagata 2 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rent Nordic ehf., kt. 700113-1160, leyfi til að byggja raðhús að Hellagötu 2.

Málsnúmer 2008101

05

Hellagata 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rent Nordic ehf., kt. 700113-1160, leyfi til að byggja raðhús að Hellagötu 4.

Málsnúmer 2008102

06

Hellagata 6 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Rent Nordic ehf., kt. 700113-1160, leyfi til að byggja raðhús að Hellagötu 6.

Málsnúmer 2007012

07

Fluguvellir 4 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Forsætisbýlinu ehf., kt. 440505-0740 leyfi til að byggja kvisti á þak og gera innri breytingar við núverandi hestshús að Fluguvöllum 4.

Málsnúmer 2005031

08

Maríugata 17 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GT Verktökum ehf., kt. 651004-2090, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 17.

Málsnúmer 2005033

09

Maríugata 19 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GT Verktökum ehf., kt. 651004-2090, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 19.

Málsnúmer 2005030

10

Maríugata 21 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GT Verktökum ehf., kt. 651004-2090, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 21.

Málsnúmer 2006307

11

Litlabæjarvör 17 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóhönnu Ríkarðsdóttur Færseth, kt. 191181-7199, leyfi til að byggja einbýlishús að Litlabæjarvör 17.

Málsnúmer 2008069

12

Bréf (afrit) landeigenda að spildu í landi Breiðabólstaða varðandi umgengni á landi, dags. 17.07.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissviðs og heilbrigðiseftirlits og felur bæjarstjóra að ræða við hlutaðeigandi aðila.

Málsnúmer 2007276

13

Erindi Meðbyrs ehf. varðandi umsókn um leyfi fyrir tveimur almenningsíþróttaviðburðum í landi Garðabæjar ásamt beiðni um styrk, dags. 02.08.20.

Bæjarráð samþykkir að veita Meðbyr ehf. framkvæmdaleyfi fyrir skipulagningu tveggja almenningsíþróttaviðburða, fjallahjólakeppnin Landsnet MTB og hlaupið Eldslóðin, í landi Garðabæjar 25. og 26. september 2020, að því gefnu að jákvæðar umsagnir fáist frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem hefur umsjón með Heiðmörk og Umhverfisstofnun vegna hluta leiðar sem fer um friðland. Einnig skal tryggt að skipuleggjandi fari að gildandi samkomutakmörkunum og hugi að sóttvörnum við framkvæmd íþróttaviðburðanna.

Bæjarráð vísar bréfinu og styrkbeiðninni til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.

Málsnúmer 2007767

14

Bréf Kópavogsbæjar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnorðaholts og Smalaholts vegna lóðar við Þorrasali 37, dags. 23.07.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.

Málsnúmer 2008085

15

Bréf H.F. varðandi útbreiðslu kerfils í Garðabæ, dags. 04.08.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í umhverfisnefnd.

Málsnúmer 2008064

16

Tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu um styrk til Garðabæjar til að auka félagsstarf fullorðins fatlaðs fólks, dags. 09.07.20.

Í tilkynningunni kemur fram að ráðuneytið hefur tekið til meðferðar umsókn forstöðumanns heimilisins að Miðskógum og samþykkt að veita Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 1.600.000 til að auka félagsstarf fatlaðs fólks sumarið 2020.

Málsnúmer 1811125

17

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi afgreiðslu á deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts, dags. 23.07.20.

Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hafi yfirfarið gögn deiliskipulags fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem samþykkt var í bæjarstjórn 7. maí sl. Skipulagsstofnun gerir athugasemdir við deiliskipulagið og bendir á að ekki sé ljóst hvernig áform um uppbyggingu íbúða á umræddu svæði sem skilgreint er sem verslun og þjónusta samræmist landnotkun í gildandi aðalskipulagi.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.