Skólabyrjun haustið 2020
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
22. fundur
Rædd var skólabyrjun 2020-2021. Í ágúst hófu 2527 nemendur nám við grunnskólana í Garðabæ. 2324 í grunnskólum Garðabæjar og 203 í sjálfstætt starfandi skólum. 220 nemendur hófu nám í 1. bekk grunnskólanna. Skólanefnd leggur áherslu á mikilvægi traustrar stoðþjónustu m.a. mönnun hjúkrunarfræðinga sem er lögbundin í grunnskólum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
31. (1939). fundur
Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, fór yfir stöðu mála varðandi skólabyrjun hjá grunn- og leikskólum og Tónlistarskóla Garðabæjar.
Útfærsla á aðlögun nýrra barna í leikskólum er í skoðun með tilliti til gildandi samkomutakmarkana.
Um 240 ný börn eru að innritast í leikskóla Garðabæjar í haust. Einnig var gerð grein fyrir stöðu framkvæmda við skólahúsnæði og mönnun í skólum. Svipaður fjöldi nemenda er á grunnskólastigi milli skólaára.
Umræður voru um áhrif Covid-19 á starfsemi skólastarfs.