Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um styrk til tveggja almenningsíþróttaviðburða.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (1943). fundur
Bæjarráð staðfestir samþykkt íþrótta- og tómstundaráðs um að veita styrk að fjárhæð kr. 200.000 vegna tveggja almenningsíþróttaviðburða, fjallahjólakeppni og hlaupakeppninni Eldslóðin. Styrkurinn er veittur með því skilyrði að hann fari til að greiða þóknun til frjálsra félaga eða samtaka innan Garðabæjar sem aðstoða við framkvæmd viðburðanna.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
21. fundur
Meðbyr ehf. hefur fengið framkvæmdaleyfi hjá bæjarráði fyrir skipulagningu tveggja almenningsíþróttaviðburða, fjallahjólakeppnin Landsnet MTB og hlaupið Eldslóðin, í landi Garðabæjar 25. og 26. september 2020, að því gefnu að jákvæðar umsagnir fáist frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem hefur umsjón með Heiðmörk og Umhverfisstofnun vegna hluta leiðar sem fer um friðland. Einnig skal tryggt að skipuleggjandi fari að gildandi samkomutakmörkunum og hugi að sóttvörnum við framkvæmd íþróttaviðburðanna.
Bæjarráð vísar bréfinu og styrkbeiðninni til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
ÍTG samþykkir að veita Meðbyr ehf. styrk að upphæð kr. 200.000,- vegna tveggja almenningsíþróttaviðburða, fjallahjólakeppnin Landsnet MTB og hlaupið Eldslóðin, í landi Garðabæjar 25. og 26. september 2020. Skilyrði er að styrkurinn fari til að greiða þóknun til frjálsra félaga eða samtaka innan Garðabæjar sem aðstoða við framkvæmd viðburðanna.
Bæjarráð Garðabæjar
03
31. (1939). fundur
Bæjarráð samþykkir að veita Meðbyr ehf. framkvæmdaleyfi fyrir skipulagningu tveggja almenningsíþróttaviðburða, fjallahjólakeppnin Landsnet MTB og hlaupið Eldslóðin, í landi Garðabæjar 25. og 26. september 2020, að því gefnu að jákvæðar umsagnir fáist frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem hefur umsjón með Heiðmörk og Umhverfisstofnun vegna hluta leiðar sem fer um friðland. Einnig skal tryggt að skipuleggjandi fari að gildandi samkomutakmörkunum og hugi að sóttvörnum við framkvæmd íþróttaviðburðanna.
Bæjarráð vísar bréfinu og styrkbeiðninni til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.