35. (1943). fundur
35. (1943). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
08.09.2020
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID19 - hættustig almannavarna.
Bæjarstjóri sagði frá fundi almannavarna sl. föstudag og fór nánar yfir helstu áherslur sem fram komu á fundinum. Farið var yfir kynningarefni frá fundinum. Nýjar reglur um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tóku gildi í gær. Þar sem m.a. er kveðið á um að fjöldatakmörkun hækki úr 100 í 200 og nálægðartakmörkun breytist úr 2 metrum í 1 metra.
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 3.
Málsnúmer 2005424
02
COVID19 - eftirfylgni með stöðu barna.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálastjóri gerðu grein fyrir störfum starfshóps sem skipaður var samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar frá 7. maí sl. til að styðja við aðgerðir Garðabæjar til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna. Starfshópurinn hefur komið saman þrisvar sinnum og hefur fylgst með fjölmörgum atriðum er varðar stöðu barna. Sérstaklega hefur verið fylgst með líðan barna sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður og börnum af erlendum uppruna. Fulltrúar í starfshópnum hittast reglulega utan hefðbundinna funda og
eru í góðu samstarfi við skólastjórnendur, forstöðumenn félagsmiðstöðva, forsvarmenn frjálsra félaga o.fl.
Verið er að móta tillögur um götuvakt þar sem fylgst verður með hópamyndun o.fl. Í því sambandi hefur verið rætt um samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
Málsnúmer 2006130
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024) - forsendur.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir forsendum og vinnuferlum vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2021 (2021-2024). Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði 27. október 2020 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 5. nóvember 2020. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 3. desember 2020. Bæjarráð samþykkir forsendur og verkferla fjárhagsáætlunar 2021-2024.
Málsnúmer 2009055
04
Bréf IOGT um neikvæð áhrif áfengis, dags. 24.08.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í íþrótta- og tómstundaráði, fjölskylduráði og ungmennaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006153
05
Erindi Lækjakórs um heimild til að láta vinna tillögu að deiliskipulagi fyrir Sveinskots-reit, dags. 03.09.20.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2008639
06
Bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar varðandi ársreikning 2019, dags. 01.09.20.
Lagt fram.
Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun:
„Garðabæjarlistinn telur það skjóta skökku við að styrktarsjóður Garðasóknar hafi fjárveitingarvald úr bæjarsjóði. Samkvæmt samþykktum sjóðsins hefur bæjarsjóður Garðabæjar skuldbundið sig til að jafna árlegt framlag Garðasóknar. Að auki er sérstakt að gefa sjóð, sem stendur í 20 milljónum og ávaxtaði fé sitt um ca. 1,4 milljónir á milli ára, 1,6 milljónir af skattpeningum Garðbæinga. Við teljum þeim peningum betur varið í að styrkja félagsþjónustu bæjarins.“
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2007276
07
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um styrk til tveggja almenningsíþróttaviðburða.
Bæjarráð staðfestir samþykkt íþrótta- og tómstundaráðs um að veita styrk að fjárhæð kr. 200.000 vegna tveggja almenningsíþróttaviðburða, fjallahjólakeppni og hlaupakeppninni Eldslóðin. Styrkurinn er veittur með því skilyrði að hann fari til að greiða þóknun til frjálsra félaga eða samtaka innan Garðabæjar sem aðstoða við framkvæmd viðburðanna.
Málsnúmer 2009050
08
Erindi Alþjóða Geðheilbrigðisdagsins um styrk, dags. 01.09.20.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.