Afgreiðsla starfshóps vegna eftirfylgni með börnum í Covid-19 um tillögur Velferðarvaktarinnar.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
3. (1961). fundur
Yfirfélagsráðgjafi fór nánar yfir störf samráðshópsins og gerði grein fyrir tölulegum upplýsingum um fjölda tilkynninga er varða börn og samanburði milli ára. Fram kom að ekki eru merki um fjölgun tilkynninga á árinu 2020 umfram það sem almennt hefur verið milli ára. Einnig var farið yfir tölulegar upplýsingar um fjölda einstaklinga sem fá greidda fjárhagsaðstoð á árinu 2020 en umsóknum fjölgaði á árinu 2020. Farið var yfir helstu atriði í reglum um fjárhagsaðstoð er varðar stuðning við barnafjölskyldur og námsmenn.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir og Harpa Þorsteinsdóttir, voru á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
02
47. (1955). fundur
Lögð fram áfangaskýrsla starfshóps vegna eftirfylgdar með stöðu barna í ljósi COVID-19, dags. í nóvember 2020.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
24. fundur
Farið yfir stöðu vellíðunarkvarða R&G sem kynntar voru fyrr um daginn. Verulegar áhyggjur komu fram á þeim fundi um líðan unglinga þar sem allir mælikvarðar hafa fallið um 5-10 prósentustig.
Áætlun um að félagsmiðstöðvarnar í Garðabæ taki upp "rafrænt Ungmennahús" fyrir 16-18 ára var kynnt.
Fjölskylduráð Garðabæjar
04
10. fundur
Fjölskylduráð hefur óskað eftir upplýsingum frá starfshópi sem tryggir eftirfylgni með stöðu barna vegna COVID 19. Farið verður yfir þau gögn sem starfshópurinn hefur aflað sem og tillögur starfshópsins um á hvaða hátt er hægt að styðja við börn og fjölskyldur í ljósi þessa heimsfaraldurs.
Mál nr. 2005424 lagt fram, eftirfylgni með stöðu barna vegna COVID 19. Hildigunnur Árnadóttir fer yfir þau gögn sem fyrir liggja um stöðu barna og þær aðgerðir sem þegar hefur verið farið í og tillögur að mikilvægum skrefum. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju sinni með vinnu starfshópsins, leggur áherslu á hann starfi áfram og veiti upplýsingar um stöðu mála til bæjarráðs og þeirra nefnda á vegum bæjarins sem fara með málefni barna í Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
05
35. (1943). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálastjóri gerðu grein fyrir störfum starfshóps sem skipaður var samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar frá 7. maí sl. til að styðja við aðgerðir Garðabæjar til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna. Starfshópurinn hefur komið saman þrisvar sinnum og hefur fylgst með fjölmörgum atriðum er varðar stöðu barna. Sérstaklega hefur verið fylgst með líðan barna sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður og börnum af erlendum uppruna. Fulltrúar í starfshópnum hittast reglulega utan hefðbundinna funda og
eru í góðu samstarfi við skólastjórnendur, forstöðumenn félagsmiðstöðva, forsvarmenn frjálsra félaga o.fl.
Verið er að móta tillögur um götuvakt þar sem fylgst verður með hópamyndun o.fl. Í því sambandi hefur verið rætt um samstarf sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.