Beint í efni

47. (1955). fundur

01.12.2020
Bæjarráð Garðabæjar

47. (1955). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

01.12.2020

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID-19 - hættustig almannavarna.

Lögð fram stöðuskýrsla AHS, dags. 30.11.2020 þar sem fjallað er um helstu breytingar á milli vikna og samanburð við önnur Evrópulönd með áherslu á Norðurlöndin. Þá var kynnt greining á fjölda smita eftir aldri og kyni.

Í fundargátt eru leiðbeiningar almannavarna er varða undirbúning jólahátíðar og samverustunda fjölskyldna á jólum og áramótum sem verða kynntar starfsmönnum.

Núverandi sóttvarnarreglur þar sem m.a. er mælt fyrir um takmörkun á samkomum og skólastarfi vegna farsóttar gilda til lok dagsins í dag. Gera má ráð fyrir að hertar sóttvarnarreglur gildi áfram.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálstjóri gerðu grein fyrir stöðu mála á sínum sviðum.

Bæjarfulltrúarnir, Gunnar Valur Gíslason, Harpa Þorsteinsdóttir, Sara Dögg Svanhildardóttir og Jóna Sæmundsdóttir og voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.

Málsnúmer 2005424

02

Stöðumat starfshóps sem skipaður var til að tryggja eftirfylgni með stöðu barna í COVID-19.

Lögð fram áfangaskýrsla starfshóps vegna eftirfylgdar með stöðu barna í ljósi COVID-19, dags. í nóvember 2020.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2006130

03

Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024).

Bæjarstjóri kynnti tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir árið 2021.

Klifið - samn. frá í júlí 2020 1.000.000 Samningur frá 2015 hækkaði.

Skíðasvæði höfuðborgarsvæðis 3.200.000 Samkvæmt tillögu að áætlun.

Jöfnun úrgangsmoldar -15.500.000 Fært á kostnað við gatnagerð.

Rekstur stofnana ýmiss vörukaup -15.000.000 Aðhald stofnana - hagræðing.

Aðalskipulag -5.000.000 Dregið verði úr þjónustukaupum.

Tölvuþjónusta -5.000.000 Aðhaldskrafa - hagræðing.

Samtals lækkun kostnaðar -36.300.000


Bæjarráð vísar frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021-2024 til síðari umræðu í bæjarstjórn 3. desember 2020.

Málsnúmer 2011426

04

Bréf Kvennaráðgjafarinnar varðandi fjárframlag fyrir árið 2021, dags. 18.11.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2011384

05

Tilkynning Umhverfisstofnunar um auglýsingu vegna breytinga á starfsleyfi fyrir urðunarstað SORPU bs. í Álfsnesi, dags. 19.11.20.

Lögð fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2011429

06

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. varðandi samþykkt á nýrri gjaldskrá, dags. 24.11.20.

Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2011449

07

Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um starfs- og fjárhagsáætlun SSH fyrir árið 2021, dags. 25.11.20.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2010116

08

Umsókn Urriðaholts ehf. um framkvæmdaleyfi vegna efnisflutninga á svæði á Urriðavelli, dags. ódags.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita Urriðaholti ehf. og Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa leyfi til framkvæmda samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna losunar á 49.300 m3 jarðefnis af byggingarsvæði í Urriðaholti á svæði í norðvesturhorni golfvallar.

Fyrir liggur jákvæð afstaða umhverfisnefndar til málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2011399

09

Tilkynning Persónuverndar um ársskýrslu fyrir árið 2019

Lögð fram.

Málsnúmer 2011466

10

Áskorun á Reykjavíkurborg frá byggðaráði Skagafjarðar, dags. 24.11.20.

Málsnúmer 2011481

11

Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi könnun HÍ á starfsumhverfi kjörinna fulltrúa í sveitarfélögum, dags. 25.11.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2010425

12

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um upplýsingar varðandi íbúasamráð, dags. 20.11.20.

Lögð fram.

Málsnúmer 2011219

13

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Málsnúmer 2011450

14

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup 2020.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Málsnúmer 1808087

15

Gerðardómur í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður, dags. 23.11.20.

Lagður fram gerðardómur í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður. Í dómsorði kemur fram að Garðabæ beri að greiða Íslenskum aðalverktökum hf. kr. 165.922.853 vegna framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmmýri.

Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir málsástæðum og niðurstöðu dómsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2011230

16

Bréf Sorpu bs. varðandi samþykki fyrir lántökum vegna rekstraráætlunar 2021-2025, dags. 27.11.20.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja beiðni stjórnar Sorpu bs. um heimild til að framlengja skammtímalántöku allt að 1.100 mkr. í formi yfirdráttarheimildar á reikningi félagsins hjá Íslandsbanka hf. og nýrrar lántöku að fjárhæð 300 mkr til 10 ára. hjá Íslandsbanka hf.

Björg Fenger, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2011446

17

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um bætta stjórnsýslu í umgengnismálum, 104. mál., dags. 25.11.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2011448

18

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof, 323. mál., dags. 25.11.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2011447

19

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, áhættumat, sektir ofl.), 311. mál., dags. 25.11.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2011498

20

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Tækniþróunarsjóð, 321. mál., dags. 27.11.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2011497

21

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um opinberan stuðning við nýsköpun, 322. mál., dags. 27.11.20.

Lagt fram.