Beint í efni

Framkvæmdir - Miðgarður - fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri

Málsnúmer 1808087

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

36. fundur

Samkomulag við ÍAV vegna ágreinings um ábyrgð vegna gervigrass í Miðgarði.

Lagt var fram til kynningar samkomulag við ÍAV vegna ágreinings um ábyrgð vegna gervigrass í Miðgarði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

2. (954). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samkomulag við ÍAV um úrlausn ágreinings vegna verksamnings við fjölnota íþróttamiðstöðina Miðgarð.

Bæjarráð Garðabæjar

03

5. (2153). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði nánari grein fyrir drögum að samkomulagi við ÍAV um úrlausn ágreinings vegna verksamnings um Miðgarð.
Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að ÍAV greiði Garðabæ 27,5mkr. Samhliða greiðslu falli Garðabær frá kröfu sinni í verktryggingu VÍS.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulag við ÍAV um úrlausn ágreinings vegan verksamnings við fjölnota íþróttamiðstöðina Miðgarð.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

13. (928). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samkomulag Garðabæjar og ÍAV varðandi uppgjör vegna verksamnings um framkvæmdir við fjölnota íþróttamiðstöðina Miðgarð. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að Garðabær greiði ÍAV 55,0 mkr. og er um lúkningu að ræða á öllum kröfum sem tengjast fjárhagslegu uppgjöri verksamnings aðila. Í samkomulaginu er jafnframt kveðið á um kostnaðarskiptingu vegna endurbóta á frárennsli sem tengist jarðsigi og endurskoðun hönnunar íþróttagólfs (gervigrass).

Bæjarráð Garðabæjar

05

37. (2090). fundur

Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir drögum að samkomulagi við ÍAV um uppgjör vegna framkvæmda við fjölnota íþróttamiðstöðina Miðgarð. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að Garðabær greiði ÍAV 55,0 mkr. og er um lúkningu að ræða á öllum kröfum sem tengjast fjárhagslegu uppgjöri verksamnings aðila.
Í drögunum er jafnframt kveðið á um kostnaðarskiptingu vegna endurbóta á frárennsli sem tengist jarðsigi og endurskoðun hönnunar íþróttagólfs (gervigras).

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulag við ÍAV varðandi uppgjör vegna verksamnings um framkvæmdir við fjölnota íþróttamiðstöðina Miðgarð.

Bæjarráð Garðabæjar

06

45. (2003). fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús. Lögð fram stöðuskýrsla, dags. í nóvember 2021. Fram kom að verið er byrja að leggja gervigrasteppi á gólf hússins.

Bæjarráð stefnir á að fara í skoðunarferð í húsið eftir fund bæjarráðs 6. desember nk.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

07

25. (1983). fundur

Deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús.

Lögð fram stöðuskýrsla, dags. 3. júlí 2021.

Almar Guðmundsson, lagði fram eftirfarandi bókun.

„Undirritaður sat í undirbúnings- og dómnefnd fyrir byggingu fjölnota íþróttahúss ásamt Björgu Fenger, sem var formaður, Baldri Svavarssyni, fulltrúa minnihluta bæjarstjórnar, og Sigurði Bjarnasyni og Guðrúnu Dóru Brynjólfsdóttur sem tilnefnd voru af íþróttafélögum í Garðabæ.
Niðurstaðan var að hanna fjölnota íþróttahús með áherslu á æfingaaðstöðu fyrir knattspyrnuiðkendur, sérstaklega þá yngri. Húsið hefur aldrei verið hugsað sem vettvangur fyrir keppni í efstu deildum, nema í undantekningartilvikum, enda fer keppni í meistaraflokkum í knattspyrnu nánast eingöngu fram utandyra. Húsið verður svo sannarlega fjölnota enda verða alls um 4.800 m2 á þremur hæðum til notkunar í ýmislegt tengt líkams- og heilsurækt auk fræðslu og kennslu. Í húsinu verður m.a. að finna styrktar- og lyftingasal, svalir með hlaupaundirlagi og klifurvegg ásamt því að unnt verður að nota húsið fyrir tónleikahald.
Framganga oddvita Garðabæjarlistans í fjölmiðlum í tengslum við málið er ámælisverð enda er málflutningur hennar í öllum meginatriðum byggður á rangfærslum. Rétt er að fram komi að fulltrúar Garðabæjarlistans hafa aldrei greitt atkvæði gegn málinu né setið hjá þegar það hefur komið til afgreiðslu.“

Almar Guðmundsson, bæjarfulltrúi.

Bæjarráð Garðabæjar

08

16. (1974). fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri framkvæmda og umhverfis gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.

Lögð fram áfangaskýrsla vegna verkstöðu, fjármögnun og framvindu næstu mánuði.

Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir dagskráliðum 1-3 og Jóna Sæmundsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúar voru á fjarfundi undir sömu dagskrárliðum.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

09

28. fundur

Kynning á byggingu nýs fjölnota íþróttahúss sem nú rís í Vetrarmýrinni. Helgi Már Halldórsson arkitekt hússins mun leiða fundarmenn um bygginguna í "sýndarveruleika" og fjalla um bygginguna og möguleika hennar almennt.

Kynning á byggingu fjölnota íþróttahúss sem nú rís í Vetrarmýrinni. Helgi Már Halldórsson arkitekt hússins leiddi fundarmenn um bygginguna í "sýndarveruleika" og fjallaði um bygginguna og möguleika hennar almennt og svaraði fyrirspurnum. Guðbjörg Brá Gísladóttir fór yfir stöðu framkvæmda við bygginguna.

Bæjarráð Garðabæjar

10

4. (1962). fundur

Helgi Már Halldórsson, arkitekt fjölnota íþróttahúss, kom á fund bæjarráðs og kynnti þrívíddar teikningar af húsinu bæði að utan að innan og sýndi nánar einstök rými innanhúss.

Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri framkvæmda og umhverfis fór yfir stöðu verksamnings, verkstöðu og framvindu verksins næstu mánuði.

Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Harpa Þorsteinsdóttir, Jóna Sæmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1,2 og 3

Bæjarráð Garðabæjar

11

47. (1955). fundur

Lagður fram gerðardómur í deilumáli ÍAV og Garðabæjar um grundunaraðstæður. Í dómsorði kemur fram að Garðabæ beri að greiða Íslenskum aðalverktökum hf. kr. 165.922.853 vegna framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmmýri.

Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir málsástæðum og niðurstöðu dómsins.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

12

36. (1944). fundur

Á fund bæjarráðs kom Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda og gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

11. (870). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir samkomulagi við ÍAV vegna byggingar fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Í samkomulaginu er fjallað um úrlausn ágreinings og gerðardómsmeðferð vegna framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.

Ingvar Arnarson, tók til mál og lagði fram eftirfarandi bókun sem hann lagði fram við meðferð málsins á fundi bæjarráðs 23. júní 2020.

„Garðabæjarlistinn telur að ÍAV hafi haft allar upplýsingar þegar fyrirtækið tók þátt í alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Garðabæ. Í ljósi þessa er ekki hægt að samþykkja aukin útgjöld úr bæjarsjóði Garðabæjar vegna hönnunar og byggingu hússins. Einnig er óskiljanlegt að Garðabær ætli að samþykkja þetta mikla seinkun á afhendingu hússins án þess að rukka tafabætur. Að okkar mati hefur ÍAV ekki staðið við gerða samninga og þ.a.l. beðið mikla álitshnekki fyrir sitt framferði í þessu máli.“

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samkomulag við ÍAV með atkvæðum átta bæjarfulltrúa (AG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,GE,GS,SS). Tveir bæjarfulltrúar greiða atkvæði gegn samkomulaginu (IA,VÖÁW). Harpa Þorsteinsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

14

24. (1932). fundur

Á fund bæjarráðs kom Andri Árnason, lögmaður og gerði grein fyrir drögum að samkomulagi við IAV vegna byggingar fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Í samkomulaginu er fjallað um úrlausn ágreinings og gerðardómsmeðferð vegna framkvæmda við fjölnota í þróttahús.

Bæjarráð samþykkir samkomulagið með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,BF,GVG) gegn einu (IA).

Ingvar Arnarson, leggur fram eftirfarandi bókun.

"Garðabæjarlistinn telur að ÍAV hafi haft allar upplýsingar þegar fyrirtækið tók þátt í alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Garðabæ. Í ljósi þessa er ekki hægt að samþykkja aukin útgjöld úr bæjarsjóði Garðabæjar vegna hönnunar og byggingu hússins. Einnig er óskiljanlegt að Garðabær ætli að samþykkja þetta mikla seinkun á afhendingu hússins án þess að rukka tafabætur. Að okkar mati hefur ÍAV ekki staðið við gerða samninga og þ.a.l. beðið mikla álitshnekki fyrir sitt framferði í þessu máli."

Þar sem ágreiningur er um afgreiðslu málsins er því vísað til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar á fundi 20. ágúst nk., sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga og verður samkomulagi undirritað af bæjarstjóra með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

15

23. (1931). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþrótthús.

Bæjarráð Garðabæjar

16

22. (1930). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.

Bæjarráð Garðabæjar

17

21. (1929). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús.

Bæjarráð Garðabæjar

18

19. (1927). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundum lykilstjórnenda þar sem verið er að ræða ágreining aðila um kostnað við grundun hússins.

Bæjarráð Garðabæjar

19

15. (1924). fundur

Lagðar fram niðurstöður Mannvits um grundun hússins ásamt kostnaðaráætlun þar sem samanburður kemur fram við kröfu ÍAV um kostnað við jarðvinnu. Þá eru lögð fram svör Mannvits við fyrirspurn IAV varðandi helstu niðurstöður í skýrslunni.

Bæjarstjóri sagði að aðilar væru að fara yfir niðurstöður útreikninga og að fyrirhugaður er fundur í dag um málið með lykilstjórnenda aðila.

Bæjarráð Garðabæjar

20

8. (1917). fundur

Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála varðandi framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.

Bæjarráð Garðabæjar

21

6. (1915). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum lykilstjórnenda varðandi ágreining um viðbótarkostnað við grundun hússins.

Þá sagði bæjarstjóri frá fundi verkkaupa og verktaka, sem haldinn var 7. febrúar sl. þar sem verktakinn kynnti nýjar tillögur við hönnun á grundun hússins.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

22

2. (861). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

23

5. (1914). fundur

Á fund bæjarráðs mættu Andri Árnason, lögmaður og Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda hjá Garðabæ.

Harpa Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Guðbjörg Brá Gísladóttir, gerði grein fyrir forsendum útboðs og gögnum sem lágu fyrir á tilboðstíma. Guðbjörg Brá fór nánar yfir tímalínu vegna samskipta við verktaka og ágreining um grundun hússins.

Andri Árnason gerði nánari grein fyrir ágreiningi í málinu út frá lögfræðilegum sjónarmiðum og fór yfir rök fyrir niðurstöðu um að ekki væri fyrir hendi forsendubrestur málinu, m.t.t. fyrirliggjandi ráðgjafar varðandi jarðtæknileg atriði. Andri lýsti þeirri skoðun að rétt væri á þessu stigi, m.t.t. sérfræðiráðgjafar verkfræðinga o.fl., að hafna kröfu verktaka um viðbótarkostnað vegna grundunar hússins.

Gestir fundarins viku af fundi. Harpa Þorsteinsdóttir, vék einnig af fundi.

Umræður voru um málið.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun:
„Garðabæjarlistinn fagnar því að bæjarstjóri verði við kröfu um upplýsingagjöf vegna þeirrar stöðu sem framkvæmd fjölnota íþróttahúss er komin í. Það er fyrst nú að bæjarstjóri upplýsir bæjarráð formlega um gang mála, þrátt fyrir að fundir og formleg bréfaskrif hafi átt sér stað frá því í september 2019 á milli verktaka og verkkaupa vegna ágreinings um grundun hússins. Réttast hefði verið af bæjarstjóra að upplýsa allt bæjarráð fyrr.“

Áslaug Hulda Jónsdóttir áskildi sér rétt til gagnbókunar síðar og benti á að málið hafi verið tekið á dagskrá bæjarráðs tvívegis á fundi í janúar, á vinnufundi bæjarstjórnar 28. nóvember 2019 og á fundi bæjarráðs 21. maí 2019.

Bæjarráð Garðabæjar

24

3. (1912). fundur

Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála varðandi framkvæmdir við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.

Bæjarráð Garðabæjar

25

1. (1910). fundur

Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála vegna framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.

Bæjarráð Garðabæjar

26

19. (1880). fundur

Lögð fram fundargerð verktaka og verkkaupa um endurskoðun samningsfjárhæðar vegna neðangreindra breytinga á verkinu, dags. 15.05.2019.

Samningsfjárhæð 4.157.441.579
Lyftuhús 9.508.413
Breyting á þaki -81.300.000
Fastur botn 102.300.000
Botnplata 32.000.000
Endurgr. vsk -83.668.952
Áætlaður lokakostnaður 4.136.281.040

Bæjarráð samþykkir að gerður verði viðauki við samning vegna ofangreindra breytinga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

27

7. (847). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir færslu Vetrarbrautar og landmótunar vegna fyrirhugaðrar byggingar fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Bæjarráð Garðabæjar

28

16. (1877). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir færslu Vetrarbrautar og landmótunar vegna fyrirhugaðrar byggingar fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

29

6. fundur

Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings fyrir framkvæmdaleyfi fyrir færslu á bráðabirgðavegi við Vetrarbraut, fyrir ferginga fyrir þeim vegi og fyrir stígum meðfram Vetrarbraut og umhverfis fyrirhugað fjölnota íþróttahús eins og breyting á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar gerir ráð fyrir.
Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfið í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 enda framkvæmdir í samræmi við nýlega staðfesta deiliskipulagbreytingu.