Beint í efni

11. (870). fundur

20.08.2020
Bæjarstjórn Garðabæjar

11. (870). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

20.08.2020

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Gunnar Einarsson
  • Guðfinnur Sigurvinsson
  • Stella Stefánsdóttir
  • Valborg Ösp Á. Warén
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður.

Almar Guðmundsson, annar varaforseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. júní 2020 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2006027F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 23/6 ´20.

Ingvar Arnarson, ræddi 10. tl., umsókn Bjargs íbúðafélags um stofnframlag til almennra íbúða.

Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2006035F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 26/6 ´20.

Fundargerðin sem er 1 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2006036F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 30/6 ´20.

Fundargerðin sem er 10 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2007004F

04

Fundargerð bæjarráðs frá 7/7 ´20.

Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2007013F

05

Fundargerð bæjarráðs frá 14/7 ´20.

Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2007017F

06

Fundargerð bæjarráðs frá 21/7 ´20.

Ingvar Arnarson, ræddi 6. tl., drög að samkomulagi um úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á miðsvæði Álftaness.

Gunnar Einarsson, ræddi 6. tl., drög að samkomulagi um úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á miðsvæði Álftaness og sagði frá því að samkomulag við Húsbygg ehf. hafi verið undirritað sl. föstudag.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., drög að samkomulagi um úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á miðsvæði Álftaness.

Fundargerðin sem er 7 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2007022F

07

Fundargerð bæjarráðs frá 28/7 ´20.

Fundargerðin sem er 4 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2008003F

08

Fundargerð bæjarráðs frá 11/8 ´20.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., COVID19 - hættustig almannavarna.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skólabyrjun haustið 2020.

Fundargerðin sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2008008F

09

Fundargerð bæjarráðs frá 18/8 ´20.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 7. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur milli Urriðaholts og Ásgarðs.

Gunnar Einarsson, ræddi 7. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur milli Urriðaholts og Ásgarðs og sagði frá viðræðum við Strætó bs. og tillögum sem unnið er að um bættar almenningssamgöngur í Urriðaholti.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 7. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur milli Urriðaholts og Ásgarðs og sagði frá umræðu um málið í stjórn Strætó bs.

Fundargerðin sem er 7 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2006038F

10

Fundargerð fjölskylduráðs frá 1/7 ´20.

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., endurnýjun forvarnarstefnu Garðabæjar og 6. tl., endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2006011F

11

Fundargerð leikskólanefndar frá 16/6 ´20.

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., framtíðarsýn og uppbyggingu leikskóla.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., framtíðarsýn og uppbyggingu leikskóla.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2007007F

12

Fundargerð skipulagsnefndar frá 9/7 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2006024F

13

Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 18/6 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2003008F

14

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 10/3 ´20.

Stella Stefánsdóttir, ræddi almennt um starfsemi Hönnunarsafnsins í sumar.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 6. tl., húsnæðismál Hönnunarsafnsins.

Gunnar Einarsson, sagði frá því undir umfjöllun um fundargerðina að fundarsalur bæjarstjórnar í Sveinatungu hafi verið tilnefndur til hönnunarverðlauna sem nefnast Dezeen Awards 2020.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2007008F

15

Fundargerð umhverfisnefndar frá 8/7 ´20.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., snyrtilegt umhverfi 2020.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001426

16

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 29/6 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001161

17

Fundargerð stjórnar SSH frá 6/7 ´20.

Ingvar Arnarson, ræddi 12. tl., skilavegi - yfirfærslu vega til sveitarfélaga.

Gunnar Einarsson, ræddi 12. tl., skilavegi - yfirfærslu vega til sveitarfélaga.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001493

18

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsv. frá 19/6 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001425

19

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 19/6 ´20.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., leiðanet og stöðu mála við undirbúning Borgarlínu.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001357

20

Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 22/6, 9/7 og 31/7 ´20.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., fg frá 31/7´20 aðgerðaráætlun um heildarlausn úrgangsmála á höfuðborgarsvæðinu. Jóna gerði grein fyrir helstu þáttum áætlunarinnar.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 2003017

21

Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 22/6 ´20.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2001494

22

Fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 27/5 og 3/6 ´20.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1808087

23

Samkomulag við ÍAV vegna byggingar fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir samkomulagi við ÍAV vegna byggingar fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Í samkomulaginu er fjallað um úrlausn ágreinings og gerðardómsmeðferð vegna framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.

Ingvar Arnarson, tók til mál og lagði fram eftirfarandi bókun sem hann lagði fram við meðferð málsins á fundi bæjarráðs 23. júní 2020.

„Garðabæjarlistinn telur að ÍAV hafi haft allar upplýsingar þegar fyrirtækið tók þátt í alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Garðabæ. Í ljósi þessa er ekki hægt að samþykkja aukin útgjöld úr bæjarsjóði Garðabæjar vegna hönnunar og byggingu hússins. Einnig er óskiljanlegt að Garðabær ætli að samþykkja þetta mikla seinkun á afhendingu hússins án þess að rukka tafabætur. Að okkar mati hefur ÍAV ekki staðið við gerða samninga og þ.a.l. beðið mikla álitshnekki fyrir sitt framferði í þessu máli.“

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samkomulag við ÍAV með atkvæðum átta bæjarfulltrúa (AG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,GE,GS,SS). Tveir bæjarfulltrúar greiða atkvæði gegn samkomulaginu (IA,VÖÁW). Harpa Þorsteinsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2003237

24

Frumvarp til að tryggja að sveitarstjórnir geti starfað við neyðarástand.

Eftirfarandi tillaga er lögð fram samkvæmt dagskrá fundarins.

„Bæjarstjórn Garðabæjar. gerir eftirfarandi samþykkt með vísan til VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020 og auglýsingar um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, (1. og 5. tl.) skv. sama ákvæði, dags. 11. ágúst 2020.

Auglýsing er birt vegna neyðarástands í samfélaginu af völdum COVID-19 farsóttar.

Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar þegar bæjarstjórn, bæjarráð og nefndir koma að nýja saman samkvæmt hefðbundnu fundarformi.

Samþykkt þessi gildir til 10. nóvember 2020, sbr. auglýsingu um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðbirgðaákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.“

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.