Tillaga um að fundir bæjarstjórnar og nefnda verði með fjarfundarbúnaði.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
12. (1970). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga.
"Bæjarráð samþykkir að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins, sbr. 1. tl. í auglýsingu ráðherra. Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. 5. tl. í auglýsingu ráðherra. Samþykkt þessi gildir til 30. apríl 2021, sbr. auglýsing nr. 1436/2020, um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðaákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020"
Tillagan samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
17. (876). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi tillögu.
"Fyrir hönd Garðabæjarlistans bóka ég hér með tillögu um að bæjarstjórnarfundum sem fram fara í gegnum fjarfundabúnað verði streymt hér eftir þar sem slík útfærsla er einföld og án kostnaðar. Þannig megi fá prufu og reynslu af fyrirkomulaginu til framtíðar. Opin og gagnsæ umræða skiptir máli nú þegar við sjáum fram á framlengingu fundarhalda í gegnum fjarfundarbúnað og því er brýnt að tryggja aðgengi að pólitískri umræðu eins og kostur er."
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.
Lögð var fram eftirfarandi tillaga um að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar og nefnda.
"Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins, sbr. 1. tl. í auglýsingu ráðherra. Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. 5. tl. í auglýsingu ráðherra. Samþykkt þessi gildir til 10. mars 2021, sbr. auglýsing nr. 1076/2020, um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI: bráðbirgðaákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020"
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
03
44. (1952). fundur
Vegna neyðarástands af völdum Covid-19 farsóttar, hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tekið ákvörðun um að framlengja heimild allra sveitarstjórna, til að víkja tímabundið frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjarfundi og staðfestingu fundargerða. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins, sbr. 1. tl. í auglýsingu ráðherra. Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. 5. tl. í auglýsingu ráðherra. Samþykkt þessi gildir til 10. mars 2021, sbr. auglýsing nr. 780/2020, um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI: bráðbirgðaákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020“
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
11. (870). fundur
Eftirfarandi tillaga er lögð fram samkvæmt dagskrá fundarins.
„Bæjarstjórn Garðabæjar. gerir eftirfarandi samþykkt með vísan til VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020 og auglýsingar um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, (1. og 5. tl.) skv. sama ákvæði, dags. 11. ágúst 2020.
Auglýsing er birt vegna neyðarástands í samfélaginu af völdum COVID-19 farsóttar.
Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar þegar bæjarstjórn, bæjarráð og nefndir koma að nýja saman samkvæmt hefðbundnu fundarformi.
Samþykkt þessi gildir til 10. nóvember 2020, sbr. auglýsingu um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðbirgðaákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.“
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
05
32. (1940). fundur
Vegna neyðarástands af völdum Covid19 farsóttar, hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tekið ákvörðun um að framlengja heimild allra sveitarstjórna, til að víkja tímabundið frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjarfundi og staðfestingu fundargerða.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins, sbr. 1. tl. í auglýsingu ráðherra.
Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. 5. tl. í auglýsingu ráðherra.
Samþykkt þessi gildir til 10. nóvember 2020, sbr. auglýsing nr. 780/2020, um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI: bráðbirgðaákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020“