Beint í efni

11. (1920). fundur

17.03.2020
Bæjarráð Garðabæjar

11. (1920). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

17.03.2020

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1911325

01

Ársreikningur Garðabæjar 2019.

Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mættu á fund bæjarráðs.

Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2019, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.

Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikninginn Garðabæjar 2019 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 19. mars 2020 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 2. apríl 2020.

Málsnúmer 2001444

02

COVID-19 - neyðarstig almannavarna.

Bæjarstjóri gerði almennt grein fyrir aðgerðum bæjarins vegna neyðarstigs almannavarna og reglum heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólahaldi og samkomum. Lýsti hann verkefninu framundan við að halda starfsemi bæjarins gangandi og hvernig einstaka vinnustaðir eru að bregðast við til að veita þjónustu en um leið að verja vinnustaðinn og starfsmennina með takmörkun á aðgengi og fjarvinnu. Bæjarstjóri sagði frá hugmyndum um aðkomu sveitarfélaganna að efnahagsaðgerðum.

Sviðstjórar gerðu grein fyrir aðgerðum og helstu áherslum sem verið er að vinna að varðandi starfsemi sem fellur undir þeirra svið.

Upplýsingastjóri sagði frá samskiptum og samráði við almannavarnir og upplýsingastjóra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu varðandi almenna upplýsingamiðlun til íbúa á rsvæðinu.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2003237

03

Tilkynning frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi frumvarp til að tryggja að sveitarstjórnir geti starfað við neyðarástand, dags. 12.03.20.

Lögð fram.

Málsnúmer 2002116

04

Langamýri 3 -Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Birgi Þór Karlssyni, kt. 020657-2279, leyfi fyrir innri breytingum við núverandi hús að Löngumýri 3.

Málsnúmer 1812022

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Garðahraun efra-Fólkvangur.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að nýju samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag fyrir fólkvanginn Garðahraun efra. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum. Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til eftirfarandi breytingar við auglýsta tillögu: Stikuð leið sem liggur til vesturs frá aðalstíg í miðjum fólkvangi sunnan við Hádegishól verði felld út. Gert verði ráð fyrir aðalstíg sem liggur með deiliskipulagsmörkum Molduhrauns frá fyrirhuguðum aðalstíg meðfram fyrirhugaðri stofnbraut (framlenging Álftanesvegar) að tengingu við aðalstíg í miðjum fólkvangi til móts við lóðina Vesturhraun 5. Deiliskipulagssvæði fólkvangsins stækki sem nemur breidd stígsins á kostnað deiliskipulagssvæðis Molduhrauns. Tenging frá aðalstíg í miðjum fólkvangi að Molduhrauni til móts við Vesturhraun 5 breytist úr stikaðri leið. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Tillaga skipulagsnefndar er lögð fyrir að nýju þar sem allar tilskildar umsagnir lágu ekki fyrir við afgreiðslu málsins í bæjarstjórn 5. september 2019.

Málsnúmer 1903082

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Bæjargarð.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að nýju samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum. Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til eftirfarandi breytingar við auglýsta tillögu. Stígur, skilgreindur sem "aðrir stígar" sem tillaga gerir ráð fyrir vestur frá aðalstíg í hrauninu að fyrirhugaðri stofnbraut (framlengingu Álftanesvegar) fyrir norðan Hádegishól verði felldur út. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Tillaga skipulagsnefndar er lögð fyrir að nýju þar sem allar tilskildar umsagnir lágu ekki fyrir við afgreiðslu málsins í bæjarstjórn 5. september 2019.

Málsnúmer 2002116

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Löngumýri 3.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á einbýlishúsinu við Löngumýri 3. Fallið var frá grenndarkynningu samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr skipulagslaga þar sem leyfisskyld framkvæmd varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.

Málsnúmer 2001227

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Iðnbúð og Smiðsbúð.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkja tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Iðnbúðar og Smiðsbúðar vegna stækkunar á byggingarreit lóðarinnar við Smiðsbúð 3. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2003107

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breyting á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts er varðar lóðir við Maríugötu 2-24, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að mænishæð allra raðhúsa í Maríugötu sem liggja að opna svæðinu Miðgarði lækkar um 1 metra eða úr 6 metrum í 5 metra.

Skipulagsnefnd samþykkir samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.

Málsnúmer 2003119

10

Tilkynning frá stjórnarráðinu varðandi skýrslu starfshóps um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar frá flugeldum, dags. 06.03.20.

Lögð fram.

Málsnúmer 2002152

11

Fundarboð/frestun aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga 2020.

Lögð fram tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um frestun á landsþingi Sambandsins og frestun á aðalfundi Lánasjóðs sveitarfélaga.

Málsnúmer 2003149

12

Tilkynning frá Umhverfisstofnun varðandi áætlun um refaveiðar 2020-2022, dags. 06.03.20.

Lögð fram.

Málsnúmer 2003046

13

Drög að samstarfssamningi og vallarsamningi Garðabæjar og UMFÁ.

Bæjarráð samþykkir samstarfssamning við UMFÁ og samning um rekstur íþróttasvæðis.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2002397

14

Drög að samningi Garðabæjar og Skátafélagsins Vífils um hátíðarhöld á sumardaginn fyrsta og 17. júní.

Bæjarráð samþykkir samning við Skátafélagið Vífil um framkvæmd hátíðarhalda á sumardaginn fyrsta og 17. júní í Garðabæ.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003233

15

Drög að samstarfssamningi Garðabæjar og Skátafélagsins Svana.

Bæjarráð samþykkir samstarfssamning við Skátafélagið Svani.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2002186

16

Opnun tilboða í gatnagerð í Breiðumýri á miðsvæði Álftaness.

Eftirfarandi tilboð bárust í útboði vegna framkvæmda við gatnagerð í Breiðumýri.

1 Karina ehf. kr. 204.633.900

2 Loftorka Reykjavík ehf kr. 204.280.000

3 Grafa og grjót ehf. kr. 232.668.200

4 Garðyrkjuþjónustan ehf. kr. 274.497.600

5 PK Verk ehf. kr. 248.345.000

6 Jón og Margeir ehf. kr. 219.740.000

7 D. ING - Verk ehf. kr. 259.963.500

8 Óskatak ehf. kr. 225.902.600

9 Bjössi ehf. kr. 247.000.000

10 Berg verktakar kr. 228.174.500

11 Háfell ehf. kr. 211.500.370

12 Ístak ehf. kr. 260.689.262

Kostnaðaráætlun kr. 235.410.110

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Loftorku Reykjavík hf., með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 1811027

17

Tilboð í lóðir á miðsvæði Álftaness.

Tilboð voru lögð fram á fundi bæjarráðs 10. mars 2020.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum forsvarsmenn Dverghamra ehf. sem áttu hæstu boð í einstaka lóðir og viðræðum við forsvarsmenn óstofnaðs félags á ábyrgð Þingvangs ehf. og Íslenskra fasteigna ehf. sem átti hæsta boð í allar þrjár lóðirnar.

Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

Málsnúmer 2003234

18

Bréf Kvenfélags Garðabæjar varðandi hátíðarhöld 17. júní, dags. 12.03.20.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindi um að hátíðarhlaðborð á 17. júní nk. verði í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar ásamt því að vera á innitorgi á Garðatorgi. Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu og úrlausnar bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003235

19

Bréf Kvenfélags Garðabæjar varðandi samkomulag um rekstur samkomuhússins að Garðaholti, dags. 12.03.20.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2003236

20

Bréf kórs Vídalínskirkju varðandi styrk vegna söngferðalags til Ungverjalands, dags. 10.03.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2020.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1911304

21

Drög að samningi við Parallel ráðgjöf ehf. varðandi þjónustu við mótun verkefna í stafrænni framþróun.

Bæjarráð samþykkir samning við Parallel ráðgjöf ehf. varðandi ráðgjöf við mótun verkefna í stafrænni framþróun.

Málsnúmer 2003252

22

Bréf Myndstefs varðandi meint brot á sæmdarrétti höfundar, dags. 11.03.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl