Beint í efni

Drög að viðauka við samkomulag um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar á miðsvæði Álftaness.

Málsnúmer 1811027

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

42. (2000). fundur

Bæjarstjóri kynnti viðauka við samkomulag um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar á miðsvæði Álftaness.

Í viðaukanum er gert ráð fyrir að greiðsla vegna sölu byggingarréttar lóða við Hestamýri verði greidd fyrir lok nóvember 2021 í stað lok september 2022 og gegn 1% afslætti að kaupverði byggingarréttar lóðarinnar.

Þá er gert ráð fyrir breytingu á framkvæmdatíma byggingu húsa á lóðunum. Framkvæmdir við munu hefjast í nóvember 2021 í stað janúar 2021 og ljúka í maí 2025 í stað mars 2024.

Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti.

Bæjarráð Garðabæjar

02

41. (1949). fundur

Bæjarstjóri kynnti drög að samkomulagi við Miðengi ehf. sem gerir ráð fyrir að greiðsla vegna byggingarréttar lóðar við Lambamýri að fjárhæð kr. 466.666.666 renni óskert til Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir samkomulagið og veitir heimild til veðsetningar vegna útgáfu á veðskuldabréfi að fjárhæð kr. 280.000.000.

Bæjarráð Garðabæjar

03

29. (1937). fundur

Lagt fram og kynnt samkomulag Miðengis ehf. og Garðabæjar við Húsbygg ehf. um sölu byggingarréttar þriggja íbúðaþyrpinga við Breiðumýri á Álftanesi þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði 252 íbúðir.

Í samkomulaginu kemur fram að Garðabær mun kaupa 500 fermetra húsnæði í Lambamýri sem verður nýtt fyrir félags- og tómstundastarf eldri borgara. Húsnæðið verður afhent Garðabæ tilbúið til innréttingar í september 2021.

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans að öllum skilyrðum uppfylltum.

Bæjarráð Garðabæjar

04

13. (1922). fundur

Tilboð voru lögð fram á fundi bæjarráðs 10. mars 2020.

Á fundinum var upplýst um tilkynningu sem barst í tölvupósti í gær frá Dverghömrum ehf., sem áttu hæsta tilboð í hverja einstaka lóð, að félagið væri fallið frá tilboðinu

Í ljósi þess samþykkir bæjarráð að hafna öllum tilboðum í lóðirnar, sbr. ákvæði 2. ml. 3. mgr. í gr. 3.4 í úthlutunar- og útboðsskilmálum fyrir sölu byggingarréttar á lóðum við Breiðumýri á Álftanesi.

Bæjarstjóra falið að ræða við Þingvang ehf. og Íslenskar fasteignir ehf. sem áttu f.h. óstofnaðs félags hæsta tilboð í allar þrjár lóðirnar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

12. (1921). fundur

Tilboð voru lögð fram á fundi bæjarráðs 10. mars 2020.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og sagði frá viðræðum við aðila

Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

Bæjarráð Garðabæjar

06

11. (1920). fundur

Tilboð voru lögð fram á fundi bæjarráðs 10. mars 2020.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum forsvarsmenn Dverghamra ehf. sem áttu hæstu boð í einstaka lóðir og viðræðum við forsvarsmenn óstofnaðs félags á ábyrgð Þingvangs ehf. og Íslenskra fasteigna ehf. sem átti hæsta boð í allar þrjár lóðirnar.

Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

Bæjarráð Garðabæjar

07

10. (1919). fundur

Eftirfarandi tilboðs bárust í lóðir á miðsvæði Álftaness.

Breiðumýri (allar lóðir)

Óstofnað félag - Þingvangur og ísl, fasteignir ehf. kr. 1.069.200.000

Reir verk ehf. kr. 985.000.000

Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. kr. 651.000.000

FS Glaðheimar ehf. kr. 422.000.000

Fiðluhús ehf. kr. 360.000.000

Sérverk ehf. kr. 355.000.000

Lambamýri

Dverghamrar ehf kr. 378.000.000

Óstofnað félag - Þingvangur og ísl, fasteignir ehf. kr. 356.400.000

Grásteinsmýri

Dverghamrar ehf kr. 546.000.000

Óstofnað félag - Þingvangur og ísl, fasteignir ehf. kr. 356.400.000

Hestamýri

Dverghamarar ehf kr. 462.000.000

Óstofnað félag - Þingvangur og ísl, fasteignir ehf. kr. 356.400.000

F6569 ehf. kr. 270.000.000

FS Glaðheimar ehf. kr. 171.000.000

Bæjarráð vísar málinu á þessu stigi til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

2. (861). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

09

3. (1912). fundur

Bæjarráð samþykkir úthlutunar- og útboðsskilmála fyrir sölu byggingarréttar á lóðum við Breiðumýri á Álftanesi.

Bæjarráð Garðabæjar

10

24. (1885). fundur

Bæjarráð samþykkir samning við ÍSB fasteignir um uppbyggingu íbúðarbyggðar á miðsvæði Álftaness ásamt samningi við Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka um sölumeðferð á byggingarrétti lóða.