Beint í efni

29. (1937). fundur

21.07.2020
Bæjarráð Garðabæjar

29. (1937). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

21.07.2020

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - varamaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2005371

01

Sveinskotsvör 6 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ragnhildi Gunnlaugsdóttur, kt. 270972-3579. leyfi til að byggja einbýlishús að Sveinskotsvör 6.

Málsnúmer 2007204

02

Tilkynning Kópavogsbæjar varðandi kynningu á vinnslutillögu nýs aðalskipulags Kópavogs 2019-2031 , dags. 10.07.2020.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 2006656

04

Opnun tilboða í malbikun gatna í Urriðaholti 2020.

Eftirfarandi tilboð eru lögð fram.

Háfell ehf. kr. 67.044.500

Loftorka Reykjavík ehf. kr. 53.621.704

Fagverk verktakar ehf. kr. 50.197.054

Kostnaðaráætlun kr. 65.267.000

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Fagverks Verktaka ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2007202

05

Bréf Landsnets varðandi drög að tillögu að matsáætlun fyrir Lyklafellslínu 1, dags. 08.07.20.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1811027

06

Drög að samkomulagi um úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á miðsvæði Álftaness.

Lagt fram og kynnt samkomulag Miðengis ehf. og Garðabæjar við Húsbygg ehf. um sölu byggingarréttar þriggja íbúðaþyrpinga við Breiðumýri á Álftanesi þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði 252 íbúðir.

Í samkomulaginu kemur fram að Garðabær mun kaupa 500 fermetra húsnæði í Lambamýri sem verður nýtt fyrir félags- og tómstundastarf eldri borgara. Húsnæðið verður afhent Garðabæ tilbúið til innréttingar í september 2021.

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hans að öllum skilyrðum uppfylltum.

Málsnúmer 2007312

07

Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi dagþjálfun fyrir heilabilaða í Drafnarhúsinu, dags. 17.07.17.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl