Vinnslutillaga nýs Aðalskipulags Kópavogs 2019-2031+. Kynning skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
8. fundur
Lögð fram vinnslutillaga að endurskoðuðu Aðalskipulags Kópavogs sem hefur verið vísað til forkynningar skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Í erindi Kópavogsbæjar sem dagsett er 10.júlí sl er óskað eftir umsögn Garðabæjar um tillöguna og frestur gefinn til 31. ágúst.
Skipulagsnefnd hefur ekki fundað eftir að tillagan barst Garðabæ um mitt sumar. Skipulagsstjóri Garðabæjar óskaði eftir lengri frest hjá Kópavogsbæ til þess að vinna umsögnina en því var hafnað. Það er margt í tillögunni sem þarfnast skoðunar út frá hagsmunum Garðabæjar og tækni- og umhverfissviði falið að vinna tillögu að umsögn sem mun verða send til Kópavogsbæjar þegar hún er tilbúin.
Bæjarráð Garðabæjar
02
29. (1937). fundur
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.