Beint í efni

Bréf Landsnets hf. varðandi stöðu umhverfismats Lyklafellslínu, dags. 07.02.22.

Málsnúmer 2007202

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

6. (2013). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.


Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

2. (2009). fundur

Á fundi bæjarráðs komu fulltrúar frá Landsneti, Rúnar Dýrmundur Bjarnason, Rut Kristinsdóttir, Smári Jóhannsson, Elín Sigríður Óladóttir og Þórarinn Bjarnason. Gerðu þau grein fyrir valkostum vegna breytinga á legu Lyklafellslínu og öðrum háspennulínum í upplandinu. Sýndar voru tillögur að tímalínu vegna málsmeðferðar og framkvæmda.

Rætt var um erindi Garðabæjar varðandi lagningu Hnoðraholtslínu í jörðu og verður boðað til sérstaks fundar með Landsneti til ræða nánar þá framkvæmd.

Fulltrúar Landsnets svöruðu fyrirspurnum um málið.

Á fundi bæjarráðs undir dagskráliðum 1 og 2 voru bæjarfulltrúarnir Gunnar Valur Gíslason og Björg Fenger. Þá voru á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagstjóri og Sólveig Helga Jóhannsdóttir, skipulagsfræðingur.

Bæjarráð Garðabæjar

03

29. (1937). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl