6. (2013). fundur
6. (2013). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
15.02.2022
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021.
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2021. Almennt lækkar ánægja íbúa á árinu 2021 í öllum sveitarfélögum sem könnunin nær til. Þrátt fyrir það er í öllum meginatriðum niðurstaðan jákvæð í helstu málaflokkum og íbúar ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.
Bæjarfulltrúi, Björg Fenger var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2 með fjarfundarbúnaði. Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 3.
02
Skýrsla VSÓ um greiningu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis leik- og grunnskóla í Garðabæ til ársins 2040.
Á fund bæjarráðs mætti Samúel Torfi Pétursson, verkfræðingur hjá VSÓ ráðgjöf ehf. og gerði grein fyrir niðurstöðum skýrslu á þörf fyrir uppbyggingu húsnæðis grunn- og leikskóla í Garðabæ til ársins 2040.
Bæjarráð vísar skýrslunni til umfjöllunar í skólanefnd grunnskóla, leikskólanefnd og skipulagsnefnd.
03
Tillaga að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum.
Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum. Skipulags- og matslýsing hefur verið kynnt og tekin fyrir í skipulagsnefnd ásamt athugasemdum. Tillaga að deiliskipulagi til forkynningar var kynnt á fundi skipulagsnefndar 27. janúar sl. og vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
04
Samningur við ráðgjafa varðandi mótun tillagna að rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Bæjarráð samþykkir samning við Eflu hf. og Arkþing/Nordic ehf um skipulagsráðgjöf á þróunarsvæði A vegna rammahluta aðalskipulags.
Auglýst var eftir ráðgjöfum til að vinna að gerð rammahluta aðalskipulags á þróunarsvæði A og byggir val á ráðgjöfum á niðurstöðu matshóps sem staðfest var á fundi bæjarráðs 14. desember 2021.
05
Holtsvegur 20 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði leyfi til að byggja sex deilda leikskóla að Holtsvegi 20.
06
Bréf Skátafélagsins Svana varðandi uppbyggingu á aðstöðu við Breiðumýri, dags. 01.02.22.
Bæjarráð vísar bréfinu á þessu stigi til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
07
Endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Lögð fram drög að endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar sem samþykkt voru á fundi fjölskyldráðs 19. janúar 2022. Endurskoðuð stefna byggir á eldri stefnu frá árinu 2010 og á meginmarkmiðunum um þátttöku, þekkingu og þróun. Stefnan tekur jafnframt mið af þeim undirmarkmiðum Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem Garðabær hefur valið sér til innleiðingar og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Jafnframt eru lagðir fram eftirfarandi viðaukar.
Viðauki 1: Lög og reglugerðir er varða samráð.
Viðauki 2: Leiðir til að hafa áhrif.
Viðauki 3: Aðgerðaráætlun 2022-2024
Bæjarráð vísar drögum að nýrri lýðræðisstefnu Garðabæjar ásamt viðaukum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
08
Drög að nýjum samþykktum um hundahald í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.
Bæjarráð vísar samþykktunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
09
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi tillögu um nefndarlaun fyrir ungmennaráð.
Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundaráðs að fulltrúar í ungmennaráði fái á árinu 2022 greidd hálf nefndarlaun vegna funda í ungmennaráði og formaður full nefndarlaun. Miðað er við allt að 8 fundi á ári.
10
Bréf Landsnets hf. varðandi stöðu umhverfismats Lyklafellslínu, dags. 07.02.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
Fylgiskjöl
11
Erindi Íslandspósts varðandi póstþjónustu í Garðabæ.
Í erindinu eru kynntar hugmyndir Íslandspósts um breytingar á póstþjónustu sem gerir ráð fyrir að afgreiðslu póstsins í Litlatúni verði lokað en í þess stað verði sett upp póstbox á fjórum stöðum í Garðabæ þar sem þar sem einstaklingar geta móttekið póstsendingar.
Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs varðandi tillögur að nánari staðsetningu póstboxa.
12
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 332. mál., dags. 11.02.22.
Lagt fram.
13
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga varðandi auglýsingu eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 11.02.22.
Lagt fram.
14
Stöðumat á húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018 - 2025.
Lagður fram til kynningar viðauki við húsnæðisáætlun Garðabæjar þar sem gerð er grein fyrir uppbyggingu á húsnæði eftir hverfum á tímabilinu 2022-2031.
Fylgiskjöl
15
Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samræmingu úrgangsflokkunar, dags. 20.01.22.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu samstarfshóps aðildarsveitarfélaganna um samræmda úrgangsflokkun á höfuðborgarsvæðinu og samþykkir yfirlýsingu um samstarf sveitarfélaganna vegna málsins. Bæjarstjóra falið fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita yfirlýsinguna.