Endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar sem samþykkt var í bæjarstjórn 17.02.22.
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
1. fundur
Lögð fram til kynningar.
Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun.
Á síðustu tveimur fundum skólanefndar Tónlistarskólans þann 15.04´21 og 19.10´21 lýsti nefndin yfir þeirri ósk sinni að fá fund með bæjarstjóra til að ræða stækkun á húsnæði skólans og fjölgun stöðugilda en mjög langur biðlisti hefur myndast á undanförnum árum og voru um 200 börn á biðlista í fyrra en sá biðlisti hefur nú lengst til muna. Vel var tekið í erindið af formanni nefndarinnar sem ætlaði að ræða við bæjarstjóra og koma á fundi en síðan hefur ekkert gerst. Við viljum einnig lýsa óánægju okkar yfir því að Lýðræðisstefnan sem nú er á dagskrá nefndarinnar og hefur verið samþykkt af bæjarstjórn kom aldrei inná borð hjá nefndinni en skila átti athugasemdum í nóvember s.l. Lýðræðisstefnan er mjög fín og metnaðarfull en þá þarf líka að fara eftir henni.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
3. (899). fundur
Almar Guðmundsson, fylgdi úr hlaði tillögu að endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar og gerði nánar grein fyrir vinnu við gerð nýrrar lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Almar gerði sérstaka grein fyrir viðaukum sem fylgja stefnunni og færði öllum sem komu að undirbúning að gerð stefnunnar þakkir fyrir þeirra störf. Þá fór Almar yfir nokkur atriði í aðgerðaráætlun stefnunnar.
Fram kom að um er að ræða endurskoðun á stefnu sem samþykkt var árið 2010. Skipaður var starfshópur til að vinna að málinu, leitað var eftir ábendingum íbúa og málið kynnt í fastanefndum bæjarstjórnar.
Með lýðræðisstefnu Garðabæjar eru lagðar línur fyrir farsælt samstarf til framtíðar milli kjörinna fulltrúa, stjórnsýslu og íbúa og annarra hagsmunaaðila með öflugri samráðsmenningu, rökræðum, samtali, samráði og upplýsingagjöf. Það verður gert með jákvæðni, fagmennsku og áreiðanleika í fyrirrúmi.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða lýðræðisstefnu Garðabæjar sem byggir á meginmarkmiðunum þátttöku, þekkingu og þróun. Stefnan tekur jafnframt mið af þeim undirmarkmiðum Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem Garðabær hefur valið sér til innleiðingar og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Bæjarráð Garðabæjar
03
6. (2013). fundur
Lögð fram drög að endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar sem samþykkt voru á fundi fjölskyldráðs 19. janúar 2022. Endurskoðuð stefna byggir á eldri stefnu frá árinu 2010 og á meginmarkmiðunum um þátttöku, þekkingu og þróun. Stefnan tekur jafnframt mið af þeim undirmarkmiðum Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem Garðabær hefur valið sér til innleiðingar og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Jafnframt eru lagðir fram eftirfarandi viðaukar.
Viðauki 1: Lög og reglugerðir er varða samráð.
Viðauki 2: Leiðir til að hafa áhrif.
Viðauki 3: Aðgerðaráætlun 2022-2024
Bæjarráð vísar drögum að nýrri lýðræðisstefnu Garðabæjar ásamt viðaukum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
04
1. fundur
Mál nr. 1911163 lagt fram, lokadrög að lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Hulda Hauksdóttir, upplýsingastjóri, situr fundinn undir þessum lið. Fjölskylduráð fjallar um drög að lýðræðisstefnu Garðabæjar og samþykkir þau í óbreyttri mynd. Málinu verður í kjölfarið vísað til bæjarráðs til samþykktar.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
05
37. fundur
Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri Garðabæjar kynnti vinnu við endurskoðun á lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
06
13. fundur
Drög að Lýðræðistefnu ásamt viðaukum hefur verið send til umsagnar hjá nefndum Garðabæjar og einnig kynnt á vef Garðabæjar þar sem íbúum gafst kostur á að senda inn ábendingar og athugasemdir.
Farið verður yfir bókanir nefnda og athugasemdir frá íbúum, ásamt því að skoða stefnuna með hliðsjón af öðrum ábendingum.
Hulda Hauksdóttir, upplýsingastjóri, situr fundinn undir þessum lið og kynnir stöðu málsins. Starfsmenn munu senda á nefndarmenn þeirra nefnda innan stjórnsýslu sveitarfélagsins sem ekki hafa tekið drögin til umfjöllunar beiðni um athugasemdir og tillögur að breytingum. Drögin verða í kjölfarið lögð fyrir að nýju á næsta fundi fjölskylduráðs til samþykktar stefnunnar í endanlegri útgáfu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
14. fundur
Hulda Haukssdóttir upplýsingafulltrúi Garðabæjar kynnti vinnu við endurkoðun Lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að Lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
08
28. fundur
Hulda Hauksdóttir kynnti vinnu við endurskoðun á lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
09
36. fundur
Hulda Hauksdóttir kynnir stefnuna sem er í umræðuferli hjá nefndum bæjarins.
Fyrir fundinum lágu drög að endurskoðaðri lýðræðisstefnu Garðabæjar ásamt drögum að viðaukum. Lýðræðisstefnan er unnin af þverfaglegum starfshópi starfsfólks í samráði við fjölskylduráð Garðabæjar.
Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri kynnti endurskoðun á lýðræðisstefnunni sem er í umsagnarferli hjá nefndum bæjarins og greindi frá því að fulltrúar í nefndum hafi tækifæri til að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri við úrvinnslu stefnunnar áður en hún verður lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar. Hulda fór af fundi í lok kynningar.
Menningar- og safnanefnd lýsir yfir ánægju sinni með fyrirliggjandi drög að endurskoðaðri lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Umhverfisnefnd Garðabæjar
10
38. fundur
Hulda Hauksdóttir kynnti drög að lýðræðisstefnu Garðabæjar. Umhverfisnefnd var ánægð með drögin að lýðræðisstefnu og lagði áherslu á gagnvirkni og auðvelda aðkomu íbúa að stefnumótun.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
11
4. fundur
Lagt er fram til umræðu og umsagnar drög að Lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Tekið er fyrir mál nr. 1911163. Samráðshópur lýsir yfir ánægju með drög að lýðræðisstefnu Garðabæjar, fram kom ábending um að skoða upplýsingar sem snúa að notendaráði um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ og eru í viðauka við lýðræðisstefnu.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
12
35. fundur
Lýðræðisstefna Garðabæjar er í endurskoðun. Starfshópur þvert á svið Garðabæjar hefur nú lagt drög fram til umsagnar í nefndum bæjarins og fyrir almenning á vefsíðu bæjarins. Hulda Hauksdóttir kynnti þau drög sem liggja fyrir.
ÍTG fagnar framkomnum tillögum og hvetur fólk til að kynna sér þessi nýju drög vel.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
13. fundur
Drög að lýðræðisstefnu Garðabæjar lögð fram og innihald hennar rætt. Málinu frestað til næsta fundar skipulagsnefndar.
Bæjarráð Garðabæjar
14
41. (199).. fundur
Drög að stefnunni ásamt viðaukum hefur verið send til umsagnar hjá nefndum Garðabæjar og verður einnig kynnt á vef Garðabæjar þar sem íbúar fá að senda inn ábendingar og athugasemdir.
Fjölskylduráð Garðabæjar
15
10. fundur
Unnið er að endurskoðun á Lýðræðisstefnu Garðabæjar. Lögð eru fram til kynningar skjöl er varða þá endurskoðun ásamt drögum að tímalínu verkefnis.
Fjölskylduráð samþykkir að fela fulltrúum fjölskylduráðs, Almari Guðmundssyni og Hörpu Þorsteinsdóttur, að ganga frá endanlegum drögum að stefnunni til kynningar í nefndum.
Fjölskylduráð Garðabæjar
16
9. fundur
Lagt er fram til kynningar og umræðu núverandi staða á endurskoðun Lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Tekið er fyrir mál nr. 1911163, endurskoðun á Lýðræðisstefnu Garðabæjar. Fyrir liggja drög að stefnu sem byggir á markmiðum um að efla lýðræðisleg gildi. Einnig fylgja með drög að aðgerðaráætlun. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með fram komin drög. Mun ráðið skoða innihald þeirra frekar og koma ábendingum á framfæri við Huldu Hauksdóttur.
Fjölskylduráð Garðabæjar
17
7. fundur
Lýðræðisstefna Garðabæjar er í endurskoðun. Lagt er fram til upplýsinga og kynningar fyrir fjölskylduráði staða verkefnisins og fjallað um næstu skref sem fyrir liggja.
Tekin er fyrir staða endurskoðunar lýðræðisstefnu Garðabæjar. Fjölskylduráð samþykkir að drög að stefnunni verði tekin fyrir á fundi sínum í ágúst.
Fjölskylduráð Garðabæjar
18
5. fundur
Lýðræðisstefna Garðabæjar lögð fram til kynningar.
Lagt er fyrir mál til kynningar nr. 1911163, lýðræðisstefna Garðabæjar. Hulda Hauksdóttir kynnir stöðu á vinnu við lýðræðisstefnu og áætlun um framvindu verkefnisins.
Fjölskylduráð Garðabæjar
19
3. fundur
Endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar lögð fram til kynningar.
Mál nr. 1911163 lagt fram til kynningar, Hulda Hauksdóttir fer yfir stöðu vinnslu lýðræðisstefnu Garðabæjar og framvindu hennar. Fjölskylduráð leggur áherslu á að stefnan verði reglulega á dagskrá ráðsins til að tryggja upplýsingaflæði og gefa tækifæri á umræðu og athugasemdum.
Fjölskylduráð Garðabæjar
20
10. fundur
Lýðræðisstefna Garðabæjar, framvinda og tímalína.
Mál nr. 1911163, Lýðræðisstefna Garðabæjar, lagt fram til umræðu. Farið var yfir stöðu málsins, framvindu þess og gerð grein fyrir fyrirhugaðri tímalínu.
Fjölskylduráð Garðabæjar
21
1. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1911163 endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar. Sunna Stefánsdóttir gerði grein fyrir stöðu og tímalínu í vinnu starfshóps um endurskoðun.
Fjölskylduráð Garðabæjar
22
11. fundur
Endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar. Verkefnið kynnt og tímalína þess.
Mál nr. 1911163 lagt fram til umræðu, endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar. Fjölskylduráð fjallaði um málið og verður áhersla lögð á að kalla eftir ábendingum rafrænt frá íbúum. Settur verður á fót starfshópur, tillögur að þeim hópi lagðar fram á næsta fundi ráðsins.