1. fundur
1. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
19.01.2022
Kl. 16:00 - 18:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Stuðningsfjölskylda í barnavernd
Umsókn um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda.
Mál nr. 2111190 lagt fram, beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu. Anný Rós Ævarsdóttir, félagsráðgjafi í barnavernd, situr fundinn undir þessum lið. Fjölskylduráð Garðabæjar mælir með útgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.
02
Tölulegar upplýsingar og kynning á málefnum fatlaðs fólks
Mál 2111034 lagt fram til kynningar og umræðu, kynning á verkefnum í málefnum fatlaðs fólks.
Hjörtfríður St. Guðlaugsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi, situr fundinn undir þessum lið og leggur fram kynningu á verkefnum í málefnum fatlaðs fólks í Garðabæ og svarar spurningum ráðsins.
03
Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun
Mál nr. 1911163 lagt fram, lokadrög að lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Hulda Hauksdóttir, upplýsingastjóri, situr fundinn undir þessum lið. Fjölskylduráð fjallar um drög að lýðræðisstefnu Garðabæjar og samþykkir þau í óbreyttri mynd. Málinu verður í kjölfarið vísað til bæjarráðs til samþykktar.
04
Beiðni um endurúttekt á stuðningsfjölskyldu
Málið lagt fyrir venga endurúttektar á stuðningsfjölskyldu.
Mál nr. 2108091 lagt fram, beiðni um endurúttekt á stuðningsfjölskyldu. Fjölskylduráð Garðabæjar mælir með endurútgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.
05
Beiðni um minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.
Minnisblað um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn lagt fram til kynningar.
Tekið er fyrir mál nr. 2112135, kynning á minnisblaði um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til til þess að mæta líðan ungmenna og styðja við þau í gegnum heimsfaraldurinn.
06
Tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021
Mál 1903268 lagt fram til kynningar, tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2021.
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð árið 2021 lagt fram til umræðu.