Beint í efni

Kynning á málaflokki fatlaðs fólks

Málsnúmer 2111034

Ferill máls

Velferðarráð Garðabæjar

01

9. fundur

Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri málaflokks fatlaðs fólks, kynnir þjónustu sveitarfélagsins í þágu fatlaðs fólks. Velferðarráð stefnir að frekari umfjöllun um málefni fatlaðs fólks á næstu fundum samhliða því að fara yfir tillögur sem fram koma í úttekt HLH ráðgjafar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

1. fundur

Mál 2111034 lagt fram til kynningar og umræðu, kynning á verkefnum í málefnum fatlaðs fólks.

Hjörtfríður St. Guðlaugsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi, situr fundinn undir þessum lið og leggur fram kynningu á verkefnum í málefnum fatlaðs fólks í Garðabæ og svarar spurningum ráðsins.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

03

4. fundur

Lögð eru fram svör starfsmanna fjölskyldusviðs Garðabæjar við fyrirspurn frá Söru Dögg Svanhildardóttur.

Mál nr. 211034, svör starfsmanna fjölskyldusviðs við fyrirspurn Söru Daggar Svanhildardóttur, lagt fram til kynningar. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólk leggur til að mótuð verði stefna í húsnæðismálum fatlaðs fólks í bæjarfélaginu.