9. fundur
9. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
16.10.2026
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Anna Ragnheiður Möller - formaður
- Ýmir Örn Finnbogason - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Haukur Þorsteinsson - aðalmaður
- Inga Amal Hasan - aðalmaður
- Joanna Marcinkowska - áheyrnarfulltrúi
- Vilborg Anna S. Garðarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
- Pála Marie Einarsdóttir - deildarstjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Verkefnaáætlun velferðarráðs 2026-2027
Drög að verkefnaáætlun velferðarráðs til júní 2027 lögð fram til umræðu. Velferðarsviði er falið að útfæra verkefna- og starfsáætlun Velferðarráðs nánar og senda á nefndarmenn.
02
Spretthópur um uppbyggingu hjúkrunarheimilis og lífsgæðakjarna í Vetrarmýri.
Skýrsla spretthóps um uppbyggingu hjúkrunarheimilis og lífsgæðakjarna í Vetrarmýri lögð fram til kynningar og umræðu. Velferðarráð lýsir ánægju með framlagða skýrslu.
03
Kynning á málaflokki fatlaðs fólks
Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri málaflokks fatlaðs fólks, kynnir þjónustu sveitarfélagsins í þágu fatlaðs fólks. Velferðarráð stefnir að frekari umfjöllun um málefni fatlaðs fólks á næstu fundum samhliða því að fara yfir tillögur sem fram koma í úttekt HLH ráðgjafar.
04
Farsæld barna
Sólveig Norðfjörð, verkefnastjóri innleiðingar farsældar í Garðabæ, fór yfir stöðu innleiðingar laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna í Garðabæ. Velferðarráð telur mikilvægt að haldið verði áfram með innleiðingu og þróun á farsældarlögum í Garðabæ.
05
Samspil og virkni í velferðarþjónustu - skýrsla sept. 2026
Skýrsla um áskoranir ríkis og sveitarfélaga í velferðarþjónustu, sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), lögð fram til kynningar.