Beint í efni

7. fundur

16.06.2021
Fjölskylduráð Garðabæjar

7. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

16.06.2021

Kl. 14:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Margrét Íris Baldursdóttir - varamaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2101387

01

Barnaverndarmál -

Mál barns er lagt fyrir fjölskylduráð Garðabæjar til umræðu og ákvörðunar um næstu skref.

Tekið er fyrir barnaverndarmál nr. 2101387. Forsvarsmenn aðila málsins komu fyrir ráðið og reifuðu sín sjónarmið. Auk þess var farið yfir ítarlega greinargerð félagsráðgjafa í barnavernd Garðabæjar og önnur fyrirliggjandi gögn málsins. Fjölskylduráð leggur fyrir fjölskyldusvið að vinna málið áfram samkvæmt nánari bókun þar um sem finna má í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2101267

02

Ættleiðing barns - beiðni um umsögn

Lagt fyrir fjölskylduráð Garðbæjar mál nr. 2101267, beiðni Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna fyrirhugaðrar ættleiðingar.

Tekin er fyrir beiðni sýslumanns um könnun á högum og mati á hæfni umsækjanda vegna fyrirhugaðrar ættleiðingar. Á grundvelli úttektar félagsráðgjafa í barnavernd og fyrirliggjandi gagna er mælt með útgáfu forsamþykkis vegna ættleiðingar barns erlendis frá til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1904211

03

Reglur um NPA

Lögð eru fyrir drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ, sem unnin voru á fjölskyldusviði Garðabæjar. Drögin byggja á reglugerð nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Drögin voru áður lögð fyrir fjölskylduráð 19.5.2021 og ekki voru gerðar athugasemdir við drögin. Síðan hafa orðið efnislegar breytingar á drögunum og eru drögin því lögð fyrir á ný.

Tekið er fyrir mál nr. 1904211, drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Lagt fram til kynningar og umræðu. Fjölskylduráð fjallar um þær athugasemdir sem borist hafa við einstaka liði reglnanna og gerir ekki athugasemdir við drögin eins og þau eru lögð fram. Fjölskylduráð vísar málinu til afgreiðslu og samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2105045

04

Endurúttekt á stuðningsfjölskyldu

Endurútekt á stuðningsfjölskyldu lögð fyrir fjölskylduráð Garðabæjar.

Tekið er fyrir mál nr. 2105045, beiðni Keðjunnar um úttekt vegna umsóknar um endurnýjun leyfis til að gerast stuðningsfjölskylda. Fyrir liggur greinargerð félagsráðgjafa í barnavernd. Á grundvelli þess og annarra gagna mælir fjölskylduráð Garðabæjar með endurútgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2105314

05

Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu

Lagt til fundar úttekt á stuðningsfjölskyldu.

Tekið er fyrir mál nr. 2105314, beiðni Keðjunnar um úttekt vegna umsóknar um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda. Fyrir liggur greinargerð ráðgjafa í barnavernd. Á grundvelli þess og annarra fyrirliggjandi gagna mælir fjölskylduráð Garðabæjar með útgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2105145

06

Ósk um endurupptöku á ákvörðun um lok á leigusamningi í félagslegri leiguíbúð

Lagt er fyrir mál nr. 2105145, beiðni um endurskoðun ákvörðunar um lok leigusamnings.

Tekið er fyrir mál nr. 2105145, beiðni um endurskoðun ákvörðunar um lok leigusamnings um félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ. Ákvörðun afgreiðsufundar húsnæðismála er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2106268

07

Umsókn um fjárhagsaðstoð - NLFÍ

Lagt er fyrir mál nr. 2106268, umsókn um niðurgreiðslu á kostnaðarhlut umsækjanda vegna endurhæfingar hjá NLFÍ.

Tekið er fyrir mál nr. 2106268 áfrýjun á synjun um fjárhagsaðstoð til niðurgreiðslu á endurhæfingu hjá heilsustofnun NLFÍ. Niðurstaða afgreiðslufundar fjárhagsaðstoðar um synjun styrks er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1911163

08

Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun

Lýðræðisstefna Garðabæjar er í endurskoðun. Lagt er fram til upplýsinga og kynningar fyrir fjölskylduráði staða verkefnisins og fjallað um næstu skref sem fyrir liggja.

Tekin er fyrir staða endurskoðunar lýðræðisstefnu Garðabæjar. Fjölskylduráð samþykkir að drög að stefnunni verði tekin fyrir á fundi sínum í ágúst.