Beint í efni

Drög að reglum Garðabæjar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ (NPA).

Málsnúmer 1904211

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

24. (1982). fundur

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti drög að reglum Garðabæjar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ (NPA) og greindi frá að á fundi fjölskylduráð sem haldinn var 16. júní sl. hafi verið farið yfir athugasemdir sem lágu fyrir og endanleg drög samþykkt til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn. Drög að reglunum voru kynnt á fundi samráðhóps um málefni fatlaðs fólks sem haldinn var 20. maí sl. Athugasemdir sem þar komu fram voru til umfjöllunar á fundi fjölskylduráðs.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög sem reglur Garðabæjar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ (NPA).

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

7. fundur

Lögð eru fyrir drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ, sem unnin voru á fjölskyldusviði Garðabæjar. Drögin byggja á reglugerð nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Drögin voru áður lögð fyrir fjölskylduráð 19.5.2021 og ekki voru gerðar athugasemdir við drögin. Síðan hafa orðið efnislegar breytingar á drögunum og eru drögin því lögð fyrir á ný.

Tekið er fyrir mál nr. 1904211, drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Lagt fram til kynningar og umræðu. Fjölskylduráð fjallar um þær athugasemdir sem borist hafa við einstaka liði reglnanna og gerir ekki athugasemdir við drögin eins og þau eru lögð fram. Fjölskylduráð vísar málinu til afgreiðslu og samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

03

3. fundur

Lögð eru fyrir drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ, sem unnin voru á fjölskyldusviði Garðabæjar. Drögin byggja á reglugerð nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Tekið er fyrir mál nr. 1904211, drög að reglum um NPA. Lagt fram til kynningar og umræðu. Gerðar voru athugasemdir við nokkra liði reglnanna sem verða sendar sérstaklega á starfsmenn fjölskyldusviðs og þeim fylgt eftir í áframhaldandi umræðu um efnistök reglnanna.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

6. fundur

Lögð eru fyrir drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ, sem unnin voru á fjölskyldusviði Garðabæjar. Drögin byggja á reglugerð nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Tekið er fyrir mál nr. 1904211, drög að reglum um NPA. Lagt fram til kynningar og umræðu. Fjölskylduráð fjallaði um einstaka liði reglnanna og gerir ekki athugasemdir við drögin. Fjölskylduráð vísar málinu til samráðshóps um málefni fatlaðs fólks og svo til afgreiðslu og samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar, að því gefnu að ekki verði gerðar efnislegar breytingar.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

05

7. fundur

Drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ lögð fram til kynningar.

Mál nr. 1904211, drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ, lögð fram til kynningar. Drögin voru rædd og starfsmönnum falið að leggja lokahönd á vinnuna og upplýsa fjölskylduráð um framvinduna. Drögin verða lögð fram á næsta fundi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.

Bæjarráð Garðabæjar

06

25. (1886). fundur

Félagsráðgjafi gerði grein fyrir helstu atriðum og áherslum í drögum að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ.

Bæjarráð vísar drögunum til umfjöllunar hjá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks og fjölskylduráðs.