Beint í efni

25. (1886). fundur

02.07.2019
Bæjarráð Garðabæjar

25. (1886). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

02.07.2019

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Sunna Stefánsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1905364

01

Víkurgata 25 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Eirík Baldri Þorsteinssyni, kt. 270474-5869, leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 25.

Málsnúmer 1901301

02

Endurnýjun samstarfssamnings við Ungmennafélagið Stjörnuna.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir helstu áherslum og breytingum í endurnýjuðum samstarfssamningi Garðabæjar og Ungmennafélagsins Stjörnunnar.

Bæjarráð samþykkir samninginn með fjórum atkvæðum. (ÁHJ,GVG,AG,JS)

Sara Dögg Svanhildardóttir, situr hjá við afgreiðslu málsins og leggur fram eftirfarandi bókun.

"Garðabæjarlistinn leggst gegn því að ekki sé dregin fram skýr áhersla um aðgerðir um frekari útfærslur á systkinaafslætti sem og sértækar aðgerðir til að auka tækifæri fatlaðra barna til iðkunar íþrótta í samstarfsamningi Garðabæjar og UMF Stjörnunnar. Garðabær hefur undirritað sáttmála um Heilsueflandi samfélag og því vekur það furðu að ekki séu dregnar fram hvetjandi aðgerðir sem styðja við slíkan sáttmála með afgerandi hætti.

Garðabæjarlistinn leggur áherslu á mikilvægi þess að sveitarfélagið sýni frumkvæði og hvetji sérstaklega til þess að framsýni sé höfð að leiðarljósi í samningum sem þessum þar sem hvatt er sérstaklega til þess að ná enn lengra í þjónustu við börn og ungmenni með það að markmiði að tækifæri til íþróttaiðkunar gefist öllum börnum og ungmennum óháð efnahag eða annarrar stöðu.

Einnig telur Garðabæjarlistinn að mikilvægt sé að aðilar þ.e. sveitarfélagið og UMF Stjarnan sammælist í samningnum um að æfingagjöld hækki ekki umfram vísitölu á samningstímabilinu.

Garðabæjarlistinn situr því hjá við afgreiðslu samningsins."

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1906312

03

Bréf Skógræktarinnar um bindingu kolefnis og uppbyggingu skógarauðlindar á Íslandi til framtíðar, dags. í júní 2019.

Lagt fram og vísað til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1906317

04

Bréf Sveins Gauta Einarssonar varðandi vatnsveitumál, dags. 24.06.19.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og heilbrigðiseftirliti.

Bæjarráð felur upplýsingadeild að birta almennar upplýsingar um stöðu vatnsmála í Garðabæ og tilkynningar til íbúa þegar ástæða er til.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1906300

05

Bréf Þjóðskrár Íslands varðandi fasteignamat 2020, dags. 24.06.19.

Lagt fram.

Í bréfinu kemur fram að fasteignamat í Garðabæ hækkar um 6,2% milli áranna 2019 og 2020.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1904073

06

Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi álagningarprósentu fasteignaskatts, dags. 26.06.19.

Í bréfinu er áréttuð yfirlýsing stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga um að sveitarfélög hækki ekki gjaldskrár sínar á árinu 2019 umfram það sem þegar er komið til framkvæmda og að á árinu 2020 verði gjaldskrár ekki hækkaðar umfram 2,5% að hámarki en minna ef verðbólga verður lægri.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1906361

08

Bréf Urriðaholts ehf. varðandi skjólveggi í Urriðaholti, dags. 26.06.19.

Bæjarráð tekur undir sjónarmið í bréfinu um að brýnt sé að bregðast við ef íbúðareigendur í Urriðaholti virða ekki skilmála deiliskipulags varðandi uppsetningu skjólveggja.

Bæjarráð felur tækni - og umhverfssviði að hlutast til um að stöðva allar óleyfisframkvæmdir og krefjast úrbóta í þeim tilvikum sem framkvæmdir samrýmast ekki gildandi deiliskipulagsskilmálum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1906384

09

Bréf Jafnréttisstofu um samstarf vegna landsfundar sveitarfélaga um jafnréttismál 2019, dags. 18.06.19.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1904211

10

Drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ.

Félagsráðgjafi gerði grein fyrir helstu atriðum og áherslum í drögum að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ.

Bæjarráð vísar drögunum til umfjöllunar hjá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks og fjölskylduráðs.

Málsnúmer 1906289

11

Drög að samkomulagi Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar um sameiginlega bakvakt í barnaverndarmálum.

Bæjarráð samþykkir samkomulagið fyrir sitt leyti.

Málsnúmer 1507009

12

Drög að samningi um skiptingu lóðar við Gimli samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Bæjarstjóri kynnti helstu atriði samningsins og forsögu byggðar á lóðinni við Gimli.

Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.