Beint í efni

3. fundur

20.05.2021
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

3. fundur

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

20.05.2021

Kl. 09:00 - 11:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Bergþóra Bergsdóttir - aðalmaður
  • Elín Hoe Hinriksdóttir - aðalmaður
  • Þorkell Jóhannsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - forstöðumaður
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
  • Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi

Ritari

  • Pála Marie Einarsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1904211

01

Reglur um NPA

Lögð eru fyrir drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ, sem unnin voru á fjölskyldusviði Garðabæjar. Drögin byggja á reglugerð nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Tekið er fyrir mál nr. 1904211, drög að reglum um NPA. Lagt fram til kynningar og umræðu. Gerðar voru athugasemdir við nokkra liði reglnanna sem verða sendar sérstaklega á starfsmenn fjölskyldusviðs og þeim fylgt eftir í áframhaldandi umræðu um efnistök reglnanna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2105267

02

Beiðni um umsögn vegna umsóknar Ræstitækni um starfsleyfi til að veita stuðnings og stoðþjónustu í sveitarfélaginu sbr. VII kafla laga nr. 40/1991 um stuðningsþjónustu

Lagt fram til kynningar umsókn Ræstitækni um starfsleyfi til að veita stuðnings- og stoðþjónustu í sveitarfélaginu skv. kafla VII laga nr. 40/1991 um stuðningsþjónustu. Fyrir liggur að Gæða- og eftirlitsstofnun hefur aflað upplýsinga um Ræstitækni sbr. meðfylgjandi tp. og mælir með því að starfsleyfið sé veitt.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólk gerir ekki athugasemdir við að starfsleyfið verði veitt.

Málsnúmer 2003058

03

Félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ - skjöl og vinnsla mála

Lagt er fram til kynningar bréf til íbúa á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ sem sent var út 30. apríl 2021 um endurskoðun á útreikningi húsaleigu á heimilunum. Breytingin hefur í öllum tilvikum í för með sér hækkun á innheimtri húsaleigu og er því gert ráð fyrir 6 mánaða fyrirvara á gildistöku breytingarinnar, sem áætlað er að taki gildi 1. nóvember 2021. Útbúin var reikniformúla um fjárhæð húsaleigunnar eftir afnotarými hvers íbúa. Fjárhæð húsaleigu verður þar með í samræmi við húsaleigu á heimilum fatlaðs fólks í nágrannasveitarfélögum. Jafnframt á að gera nýja húsaleigusamninga við íbúa þar sem samningsaðili verður Garðabær en ekki Fjársýsla ríkisins líkt og var í tilvikum eldri húsaleigusamninga.

Áætlun um breytingu á fjárhæð húsaleigu á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ er lögð fram til kynningar. Snædís Björnsdóttir, verkefnastjóri félagslegs húsnæðis í Garðabæ, fór yfir forsendur þeirrar reikniformúlu sem liggur að baki útreikningum og það vinnulag sem stuðst var við í endurskoðunarferlinu. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks gerir ekki athugasemdir við vinnslu málsins og niðurstöður.

Fylgiskjöl