Beint í efni

Félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ - þróun

Málsnúmer 2003058

Ferill máls

Velferðarráð Garðabæjar

01

4. fundur

Yfirlit yfir afgreiðslu umsókna um félagslegt leiguhúsnæði janúar til mars 2025 lagt fram til kynningar og umræðu.

Yfirlit yfir afgreiðslu umsókna um félagslegt leiguhúsnæði janúar til mars 2025 lagt fram til kynningar og umræðu.

Velferðarráð Garðabæjar

02

1. fundur

Yfirlit yfir afgreiðslu umsókna um félagslegt leiguhúsnæði á árinu 2024 lagt fram til kynningar og umræðu.

Yfirlit yfir afgreiðslu umsókna um félagslegt leiguhúsnæði á árinu 2024 lagt fram til kynningar og umræðu.

Velferðarráð Garðabæjar

03

7. fundur

Yfirlit yfir afgreiðslu umsókna um félagslegt leiguhúsnæði á árinu 2023 og til 31. ágúst 2024 lagt fram til kynningar.

Yfirlit yfir afgreiðslu umsókna um félagslegt leiguhúsnæði á árinu 2023 og til 31. ágúst 2024 lagt fram til kynningar og umræðu.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

11. fundur

Kynning á stöðu málaflokks - félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ.

Mál nr. 2003058 tekið fyrir, kynning Snædísar Björnsdóttur, verkefnastjóra fjárhagsaðstoðar og félagslegs húsnæðis í Garðabæ á stöðu félagslegs húsnæðis í Garðabæ. Fjölskylduráð fjallar um málið og starfsmenn svara spurningum ráðsins.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

05

3. fundur

Lagt er fram til kynningar bréf til íbúa á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ sem sent var út 30. apríl 2021 um endurskoðun á útreikningi húsaleigu á heimilunum. Breytingin hefur í öllum tilvikum í för með sér hækkun á innheimtri húsaleigu og er því gert ráð fyrir 6 mánaða fyrirvara á gildistöku breytingarinnar, sem áætlað er að taki gildi 1. nóvember 2021. Útbúin var reikniformúla um fjárhæð húsaleigunnar eftir afnotarými hvers íbúa. Fjárhæð húsaleigu verður þar með í samræmi við húsaleigu á heimilum fatlaðs fólks í nágrannasveitarfélögum. Jafnframt á að gera nýja húsaleigusamninga við íbúa þar sem samningsaðili verður Garðabær en ekki Fjársýsla ríkisins líkt og var í tilvikum eldri húsaleigusamninga.

Áætlun um breytingu á fjárhæð húsaleigu á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ er lögð fram til kynningar. Snædís Björnsdóttir, verkefnastjóri félagslegs húsnæðis í Garðabæ, fór yfir forsendur þeirrar reikniformúlu sem liggur að baki útreikningum og það vinnulag sem stuðst var við í endurskoðunarferlinu. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks gerir ekki athugasemdir við vinnslu málsins og niðurstöður.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

06

6. fundur

Lagt er fram til kynningar bréf til íbúa á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ sem sent var út 30. apríl 2021 um endurskoðun á útreikningi húsaleigu á heimilunum. Breytingin hefur í öllum tilvikum í för með sér hækkun á innheimtri húsaleigu og er því gert ráð fyrir 6 mánaða fyrirvara á gildistöku breytingarinnar, sem áætlað er að taki gildi 1. nóvember 2021. Útbúin var reikniformúla um fjárhæð húsaleigunnar eftir afnotarými hvers íbúa. Fjárhæð húsaleigu verður þar með í samræmi við húsaleigu á heimilum fatlaðs fólks í nágrannasveitarfélögum. Jafnframt á að gera nýja húsaleigusamninga við íbúa þar sem samningsaðili verður Garðabær en ekki Fjársýsla ríkisins líkt og var í tilvikum eldri húsaleigusamninga.

Áætlun um breytingu á fjárhæð húsaleigu á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ er lögð fram til kynningar. Starfsmenn fjölskyldusviðs fara yfir forsendur þeirrar reikniformúlu sem liggur að baki útreikningum og það vinnulag sem stuðst var við í endurskoðunarferlinu.

Fylgiskjöl