Beint í efni

6. fundur

19.05.2021
Fjölskylduráð Garðabæjar

6. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

19.05.2021

Kl. 16:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Pála Marie Einarsdóttir - umsjónarþroskaþjálfi

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1904211

01

Reglur um NPA

Lögð eru fyrir drög að reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ, sem unnin voru á fjölskyldusviði Garðabæjar. Drögin byggja á reglugerð nr. 1250/2018 um notendastýrða persónulega aðstoð og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Tekið er fyrir mál nr. 1904211, drög að reglum um NPA. Lagt fram til kynningar og umræðu. Fjölskylduráð fjallaði um einstaka liði reglnanna og gerir ekki athugasemdir við drögin. Fjölskylduráð vísar málinu til samráðshóps um málefni fatlaðs fólks og svo til afgreiðslu og samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar, að því gefnu að ekki verði gerðar efnislegar breytingar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2103347

02

NPA taxtar í Garðabæ

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness í máli nr. E-8237/2020 (A gegn Mosfellsbæ vegna NPA) lagt fram til kynningar.

Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. E-8237/2020 kynnt fyrir fundarmönnum. Starfsmenn fjölskyldusviðs reifa þýðingu dómsins fyrir framkvæmd NPA þjónustu hjá sveitarfélögum og að Mosfellsbær hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar.

Málsnúmer 2003058

03

Félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ - skjöl og vinnsla mála

Lagt er fram til kynningar bréf til íbúa á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ sem sent var út 30. apríl 2021 um endurskoðun á útreikningi húsaleigu á heimilunum. Breytingin hefur í öllum tilvikum í för með sér hækkun á innheimtri húsaleigu og er því gert ráð fyrir 6 mánaða fyrirvara á gildistöku breytingarinnar, sem áætlað er að taki gildi 1. nóvember 2021. Útbúin var reikniformúla um fjárhæð húsaleigunnar eftir afnotarými hvers íbúa. Fjárhæð húsaleigu verður þar með í samræmi við húsaleigu á heimilum fatlaðs fólks í nágrannasveitarfélögum. Jafnframt á að gera nýja húsaleigusamninga við íbúa þar sem samningsaðili verður Garðabær en ekki Fjársýsla ríkisins líkt og var í tilvikum eldri húsaleigusamninga.

Áætlun um breytingu á fjárhæð húsaleigu á heimilum fatlaðs fólks í Garðabæ er lögð fram til kynningar. Starfsmenn fjölskyldusviðs fara yfir forsendur þeirrar reikniformúlu sem liggur að baki útreikningum og það vinnulag sem stuðst var við í endurskoðunarferlinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1508464

04

Barnaverndarmál

Úrskurður í máli barns lagður fram til kynningar fyrir fjölskylduráð Garðabæjar.

Tekið er fyrir mál nr. 1508464, dómur í máli barns vegna forsjársviptingar. Dómurinn lagður fram til kynningar og upplýsinga fyrir fjölskylduráð.

Málsnúmer 2104434

05

Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging húsaleigu

Lagt er fyrir mál nr. 2104434, umsókn um styrk vegna tryggingar húsaleigu.

Umsókn nr. 2104434 um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu er samþykkt. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2104399

06

Beiðni um fjárhagsstuðning

Mál nr. 2104399 lagt fram til umræðu. Bæjarráð vísaði erindinu til nánari skoðunar fjölskylduráðs og til fjárhagsáætlunar 2022 á fundi sínum 4.5.2021.

Tekið er fyrir mál nr. 2104399, beiðni Samtaka um karlaathvarf um fjárhagslegan styrk til stuðnings starfsemi samtakanna. Óskað verður eftir upplýsingum um starfsemina frá forsvarsmönnum samtakanna til að gera frekari grein fyrir faglegu starfi þeirra og fyrirliggjandi þörf á úrræðum.

Málsnúmer 1903268

07

Tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2018-2021

Lagðar eru fram tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar til apríl 2021.

Tekið er fyrir mál nr. 1903268, tölulegar upplýsingar er varða velferð barna og fjölskyldna. Fjallað var um málið og helstu upplýsingar.

Málsnúmer 2101415

08

Málefni eldri borgara - stuðningsþjónusta

Kynning á stuðnings-og öldrunarþjónustu í Garðabæ.

Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Garðabæjar kynnir núverandi stöðu málaflokksins og fer yfir helstu áherslur stuðningsþjónustunnar.