NPA taxtar í Garðabæ
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
6. fundur
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness í máli nr. E-8237/2020 (A gegn Mosfellsbæ vegna NPA) lagt fram til kynningar.
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. E-8237/2020 kynnt fyrir fundarmönnum. Starfsmenn fjölskyldusviðs reifa þýðingu dómsins fyrir framkvæmd NPA þjónustu hjá sveitarfélögum og að Mosfellsbær hefur áfrýjað dómnum til Landsréttar.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
02
2. fundur
Mál 2103347 lagt fram, beiðni um umræðu um NPA taxta í Garðabæ.
Mál 2103347 tekið fyrir, umræða um NPA taxta í Garðabæ. Fram komu athugasemdir um tímagjald NPA í Garðabæ og að það hafi ekki tekið kjarasamningsbundnum hækkunum á tímabilinu 2019 til 2021. Einnig voru gerðar athugasemdir við ósamræmi í NPA töxtum á höfuðborgarsvæðinu og lögð áhersla á að taxtar verði endurskoðaðir hið minnsta einu sinni á ári. Fyrir liggur að Garðabær hefur þrískipt sínum töxtum og hækkað þá, til samræmis við launavísitölu í desember, fyrir árið 2021 en bent er á að Garðabær er enn töluvert undir töxtum stærstu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Var því komið á framfæri að þegar svo er háttað þá er umsýsluaðilum NPA samninga í Garðabæ gert erfiðara fyrir í samkeppni um starfsfólk, það er erfitt að fá gott starfsfólk og nauðsynlegt að geta greitt starfsfólki kjarasamningsbundin laun. Vísað er til þess að Reykjavík, Kópavogur og Hafnarfjörður hafi hækkað sína taxta til samræmis við kjarasamningshækkanir. Lagt er til að Garðabær endurskoði ákvörðun sína um taxta fyrir 2021 og hafi sína taxta til samræmis við þá taxta sem Reykjavíkurborg, Kópavogur og Hafnarfjörður hafa samþykkt. Mælst er til þess að samráðshópur, undirhópur SSH, verði endurvakinn þvert á sveitarfélög til að fjalla um NPA þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.