Beint í efni

2. fundur

18.03.2021
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

2. fundur

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

18.03.2021

Kl. 09:00 - 11:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Bergþóra Bergsdóttir - aðalmaður
  • Elín Hoe Hinriksdóttir - aðalmaður
  • Þorkell Jóhannsson - aðalmaður
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
  • Pála Marie Einarsdóttir - umsjónarþroskaþjálfi
  • Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi

Ritari

  • Pála Marie Einarsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2103344

01

Ofbeldi gegn fötluðum á Íslandi

Mál númer 2103344 lagt fram, Rúnólfur Þórhallsson frá Greiningardeild ríkislögreglustjóra kemur og kynnir skýrslu um ofbeldi gegn fötluðum á Íslandi.

Mál númer 2103344 lagt fram, kynning Runólfs Þórhallssonar frá greiningardeild ríkislögreglustjóra. Niðurstöður erlendra rannsókna leiða í ljós að fatlaðir einstaklingar eru líklegri til að verða fyrir ofbeldi en ófatlaðir og konur og börn þar í sérstökum áhættuhópi. Áhyggjuefni er að fá mál rati inn á borð lögreglu og fyrir liggur að Löke kerfið býður ekki upp á sérstakar skráningar mála sem varða fatlað fólk. Upplýsti Runólfur að þær úrbætur standi yfir. Svipaðar rannsóknir vantar hins vegar hér á landi til að varpa ljósi á aðstæður fatlaðs fólks á Íslandi. Fyrir liggur að fjöldi heimilisofbeldismála hefur fjölgað verulega í heimsfaraldrinum og staða fatlaðs fólk mikið áhyggjuefni. Lögreglan hefur sett af stað verkefni með áherslu á fræðslu, aukna vitundarvakningu og að stuðla að bættari samvinnu lögreglu, sýslumanna, félagsþjónustu, barnaverndar og fræðasamfélagsins. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks leggur áherslu á mikilvægi samráðs og samvinnu við fatlað fólk í þeim endurbótum sem lögregluembættið stendur nú fyrir.

Málsnúmer 2002291

02

Staða biðlista í félagslegu leiguhúsnæði

Lagðar eru fram til kynningar upplýsingar um stöðu félagslegs húsnæðis í Garðabæ í febrúar 2021, fjölda umsókna á biðlista félagslegs leiguhúsnæðis og móttekinna umsókna sem ekki hafa verið samþykktar á biðlista.

Snædís Björnsdóttir, verkefnastjóri, kynnir stöðuna.

Mál nr. 2002291, tekið fyrir, kynning Snædísar Björnsdóttur verkefnastjóra á fjölskyldusviði á stöðu biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði í Garðabæ og samanburði við stöðu í mars 2020. Samráðshópurinn fjallar um málið og starfsmenn svara spurningum ráðsins.

Málsnúmer 1909412

03

Reglur um stuðningsþjónustu

Lögð eru fyrir samráðshóp um málefni fatlaðs fólks drög að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Reglurnar voru upphaflega unnar í samstarfi við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og byggðar á grunni reglna Reykjavíkurborgar um sama málefni. Breytingar hafa verið gerðar á fjölskyldusviði Garðabæjar til aðlögunar og leiðréttinga. Samskonar reglur um stuðning við fullorðna eru á undirbúningsstigi í áðurnefndu samstarfi.

Tekið er fyrir mál nr. 1909412, drög að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Samráðshópurinn fjallar um drögin og gerir ekki athugasemdir. Samþykkt er af hálfu samráðshóps um málefni fatlaðs fólk að leggja drögin fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til afgreiðslu.

Málsnúmer 2103347

04

NPA taxtar í Garðabæ

Mál 2103347 lagt fram, beiðni um umræðu um NPA taxta í Garðabæ.

Mál 2103347 tekið fyrir, umræða um NPA taxta í Garðabæ. Fram komu athugasemdir um tímagjald NPA í Garðabæ og að það hafi ekki tekið kjarasamningsbundnum hækkunum á tímabilinu 2019 til 2021. Einnig voru gerðar athugasemdir við ósamræmi í NPA töxtum á höfuðborgarsvæðinu og lögð áhersla á að taxtar verði endurskoðaðir hið minnsta einu sinni á ári. Fyrir liggur að Garðabær hefur þrískipt sínum töxtum og hækkað þá, til samræmis við launavísitölu í desember, fyrir árið 2021 en bent er á að Garðabær er enn töluvert undir töxtum stærstu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Var því komið á framfæri að þegar svo er háttað þá er umsýsluaðilum NPA samninga í Garðabæ gert erfiðara fyrir í samkeppni um starfsfólk, það er erfitt að fá gott starfsfólk og nauðsynlegt að geta greitt starfsfólki kjarasamningsbundin laun. Vísað er til þess að Reykjavík, Kópavogur og Hafnarfjörður hafi hækkað sína taxta til samræmis við kjarasamningshækkanir. Lagt er til að Garðabær endurskoði ákvörðun sína um taxta fyrir 2021 og hafi sína taxta til samræmis við þá taxta sem Reykjavíkurborg, Kópavogur og Hafnarfjörður hafa samþykkt. Mælst er til þess að samráðshópur, undirhópur SSH, verði endurvakinn þvert á sveitarfélög til að fjalla um NPA þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.