Beint í efni

Ofbeldi gegn fötluðum á Íslandi

Málsnúmer 2103344

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

2. fundur

Mál númer 2103344 lagt fram, Rúnólfur Þórhallsson frá Greiningardeild ríkislögreglustjóra kemur og kynnir skýrslu um ofbeldi gegn fötluðum á Íslandi.

Mál númer 2103344 lagt fram, kynning Runólfs Þórhallssonar frá greiningardeild ríkislögreglustjóra. Niðurstöður erlendra rannsókna leiða í ljós að fatlaðir einstaklingar eru líklegri til að verða fyrir ofbeldi en ófatlaðir og konur og börn þar í sérstökum áhættuhópi. Áhyggjuefni er að fá mál rati inn á borð lögreglu og fyrir liggur að Löke kerfið býður ekki upp á sérstakar skráningar mála sem varða fatlað fólk. Upplýsti Runólfur að þær úrbætur standi yfir. Svipaðar rannsóknir vantar hins vegar hér á landi til að varpa ljósi á aðstæður fatlaðs fólks á Íslandi. Fyrir liggur að fjöldi heimilisofbeldismála hefur fjölgað verulega í heimsfaraldrinum og staða fatlaðs fólk mikið áhyggjuefni. Lögreglan hefur sett af stað verkefni með áherslu á fræðslu, aukna vitundarvakningu og að stuðla að bættari samvinnu lögreglu, sýslumanna, félagsþjónustu, barnaverndar og fræðasamfélagsins. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks leggur áherslu á mikilvægi samráðs og samvinnu við fatlað fólk í þeim endurbótum sem lögregluembættið stendur nú fyrir.