7. fundur
7. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
18.09.2024
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
Ritari
- Snædís Björnsdóttir
Dagskrá
01
Umsókn um félagslega íbúð
Beiðni umsækjanda um endurskoðun ákvörðunar velferðarsviðs um afturköllun samþykkis á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði lögð fram til ákvörðunartöku.
Ákvörðun velferðarsviðs um afturköllun samþykkis á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði er staðfest. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarhluta fundargerðar.
02
Rannsókn á alvarlegu óvæntu atviki í þjónustu
Tilkynning Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um rannsókn á óvæntu, alvarlegu atviki í þjónustu sveitarfélagsins lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarhluta fundargerðar.
03
Trúnaðarmál
Samkomulag um uppgjör bóta vegna tjóns sem starfsmaður velferðarþjónustu varð fyrir í starfi sínu lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarhluta fundargerðar.
04
Félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ
Yfirlit yfir afgreiðslu umsókna um félagslegt leiguhúsnæði á árinu 2023 og til 31. ágúst 2024 lagt fram til kynningar.
Yfirlit yfir afgreiðslu umsókna um félagslegt leiguhúsnæði á árinu 2023 og til 31. ágúst 2024 lagt fram til kynningar og umræðu.
Fylgiskjöl
05
Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar-ágúst 2024 lögð fram til umræðu og kynningar.
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar-ágúst 2024 lögð fram til umræðu og kynningar.
Fylgiskjöl
06
Frumkvæðisathugun á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk
Bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um niðurstöður frumkvæðisathugunar á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á vefsíðum sveitarfélaga. dags. 16.05.24. Bæjarráð vísaði bréfinu til umfjöllunar velferðarráðs og fól sviðsstjóra velferðarsviðs að fara nánar yfir þau atrið sem lagt er til að bætt sé úr. Á velferðarsviði hafa verið lögð drög að minnisblaði um úrbætur á heimasíðu Garðabæjar. Lagt fram til kynningar.
Bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um niðurstöður frumkvæðisathugunar á upplýsingum um þjónustu við fatlað fólk á vefsíðum sveitarfélaga. dags. 16.05.2024 lagt fram til kynningar. Starfsfólk velferðarsviðs hefur lagt drög að minnisblaði um úrbætur á heimasíðu Garðabæjar.
Fylgiskjöl
07
Frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks
Bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, varðandi frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks, dags. 9. apríl 2024 lagt fram til kynningar.
Bréf Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, varðandi frumkvæðisathugun á þjónustu í búsetuúrræðum fatlaðs fólks, dags. 9. apríl 2024 lagt fram til kynningar. Sótt hefur verið um framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að standa straum af kostnaði vegna úttektarinnar, sem er umfangsmikil. Um er að ræða sameiginlega umsókn Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar.
Fylgiskjöl
08
Frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu
Niðurstöður Gæða- og eftirlitsstofnunar varðandi Garðabæ vegna frumkvæðisathugunar á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu, dags. 16.9.2024, lagt fram til kynningar.
Niðurstöður Gæða- og eftirlitsstofnunar varðandi Garðabæ vegna frumkvæðisathugunar á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu, dags. 16.9.2024, lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
09
OPCAT eftirlit með stöðum þar sem frelsissviptir dvelja
Frumskýrsla Umboðsmanns Alþingis um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn á grundvelli OPCAT-eftirlits með stöðum þar sem frelsissviptir dvelja, dags. 27.6.2024 lögð fram til kynningar.
Frumskýrsla Umboðsmanns Alþingis um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn á grundvelli OPCAT-eftirlits með stöðum þar sem frelsissviptir dvelja, dags. 27.6.2024 lögð fram til kynningar. Starfsfólk fjármála- og stjórnsýslusviðs og velferðarsviðs vinna að vinnslu svara Garðabæjar vegna skýrslunnar sem send verða til Umboðsmanns fyrir 1. janúar 2025.
Fylgiskjöl
10
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál frá 14. ágúst 2024 lögð fram til kynningar.
Fundargerð samráðshóps Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um velferðarmál frá 14. ágúst 2024 lögð fram til kynningar.