11. fundur
11. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
20.10.2021
Kl. 16:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Umsókn um félagslega heimaþjónustu
Synjun á umsókn um heimaþjónustu lögð fyrir fjölskylduráð.
Tekið er fyrir mál nr. 2107459 áfryjun vegna umsóknar um félagslega heimaþjónustu. Fjölskylduráð samþykkti umsókn um heimaþjónustu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
02
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Umsókn um námsstyrk lögð fyrir ráðið.
Tekið er fyrir mál nr. 2109272 umsókn um námsstyrk vegna náms á framhaldsskólastigi. Fjölskylduráð samþykkti umsóknina. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging
Lögð er fyrir ráðið umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.
Tekið er fyrir mál nr. 2110187, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
04
Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging
Umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu lögð fyrir fjölskylduráð.
Tekið er fyrir mál nr. 2110209, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
05
Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging húsaleigu
Lögð er fyrir ráðið umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.
Tekið er fyrir mál nr. 2110194, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.
06
Félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ - skjöl og vinnsla mála
Kynning á stöðu málaflokks - félagslegt leiguhúsnæði í Garðabæ.
Mál nr. 2003058 tekið fyrir, kynning Snædísar Björnsdóttur, verkefnastjóra fjárhagsaðstoðar og félagslegs húsnæðis í Garðabæ á stöðu félagslegs húsnæðis í Garðabæ. Fjölskylduráð fjallar um málið og starfsmenn svara spurningum ráðsins.
07
Fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif COVID-19
Mál nr. 2109239, fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif COVID-19 lagðar fram og kynntar.
08
Tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021
Mál 1903268 lagt fram til kynningar, tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2021.
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð fyrstu níu mánuði ársins lögð fram til kynningar og umræðu.
09
Vettvangur fyrir samfélagslega nýsköpun í Garðabæ.
Bréf Almannaheilla um samfélagslega nýsköpun lagt fram til kynningar
Mál nr. 2109217, erindi frá Almannaheill, samtökum þriðja geirans lagt fram til kynningar. Í bréfinu kemur m.a. fram að félagasamtökin hafa fengið starfsaðstöðu í Garðabæ og að óskað er eftir stuðningi við starfsemi samtakanna sem snýr að samfélagslegri nýsköpun. Fjölskylduráð fagnar framtakinu og beinir til fjölskyldusviðs að skoða möguleika á samstarfsflötum.
10
Ofbeldi af hálfu barna
Mál nr. 2110179 lagt fram til kynningar.
Tilkynningar til barnaverndar fyrstu níu mánuði ársins eru 377, en fyrstu níu mánuðina 2020 voru þær 380. Tilkynningum hefur fjölgað ár frá ári um 80- 100 tilkynningar, þó þetta ár virðist vera svipað fyrra ári. Þessi þróun er til samræmis við þróun tilkynninga í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu.
Ofbeldi af hálfu barns er flokkað sem áhættuhegðun barns og eru tölur sem varða þann flokk sem hér segir fyrstu níu mánuði ársins í Garðabæ árið 2020 og 2021. 58 tilfelli voru tilkynnt til barnaverndar er vörðuðu ofbeldi af hálfu barna allt árið 2020 en nú þegar hafa 50 tilfelli verið tilkynnt á þessu ári. Ef þessar tölur eru bornar saman við landið allt þá var aukning á áhættuhegðun barna fyrstu níu mánuðina milli 2020-2021. Tilvikin 2021 hafa hins vegar mörg hver verið alvarleg, fjallað um hnífaeign barna og alvarlega ofbeldistilburði gagnvart öðrum börnum.
Barnavernd Garðabæjar áréttar mikilvægi samvinnu foreldra um mál af þessu tagi en ef sú samvinna er ekki fyrir hendi við barnaverndaryfirvöld, lögreglu og fræðslustofnanir um að uppræta mál, gera jafnvel hnífa upptæka og hafa nákvæmt eftirlit með börnum sínum, þá verður flóknara að ráða niðurlögum þessa vanda.
Afneitun gagnvart hegðun barna styrkir frekari þróun andfélagslegrar hegðunar og er í andstöðu við velferð barna. Enda er nauðsynlegt í þroska hvers barns að þurfa að bera ábyrgð á hegðun sinni.
Viðbrögð við þessum tilvikum voru eftirfarandi: Samvinna er náin milli barnaverndar, fræðslusviðs, skóla og lögreglu varðandi mál af þessu tagi. Teymisfundir eru reglulegir með lögreglunni þar sem þessi mál eru tekin upp og hefur sýnileiki lögreglu verið aukinn í grunnskólunum. Hefur Biggi lögga farið við annan mann inn í grunnskólanna.
Mál nr. 2110179, ofbeldi af hálfu barna, lagt fram til umræðu. Hildigunnur Árnadóttir, umsjónarfélagsráðgjafi, fer yfir fjölda tilkynninga/atvika og forvarnir í Garðabæ ásamt mikilvægi samvinnu við foreldra, lögreglu og skóla. Þá kemur fram að haldnir eru reglulegir teymisfundir barnaverndar með lögreglu og fræðslu- og menningarsviði ásamt því að lögregla hefur verið að fara í grunnskólana til að auka sýnileika sinn.
Fjölskylduráð tekur undir mikilvægi samvinnu við alla hlutaðeigandi til að finna lausn á þessum vanda. Fjölskylduráð óskar eftir að fá að fylgjast með þróun mála hvað ofbeldi barna varðar. Þá leggur fjölskylduráð áherslu á að fjölskyldusvið og fræðslu- og menningarsvið vinni að því að styðja við foreldrarölt í Garðabæ og efla þátttöku skóla, lögreglu og foreldra í forvarnarskyni.