Beint í efni

Ofbeldi af hálfu barna

Málsnúmer 2110179

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

11. fundur

Mál nr. 2110179 lagt fram til kynningar.

Tilkynningar til barnaverndar fyrstu níu mánuði ársins eru 377, en fyrstu níu mánuðina 2020 voru þær 380. Tilkynningum hefur fjölgað ár frá ári um 80- 100 tilkynningar, þó þetta ár virðist vera svipað fyrra ári. Þessi þróun er til samræmis við þróun tilkynninga í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu.

Ofbeldi af hálfu barns er flokkað sem áhættuhegðun barns og eru tölur sem varða þann flokk sem hér segir fyrstu níu mánuði ársins í Garðabæ árið 2020 og 2021. 58 tilfelli voru tilkynnt til barnaverndar er vörðuðu ofbeldi af hálfu barna allt árið 2020 en nú þegar hafa 50 tilfelli verið tilkynnt á þessu ári. Ef þessar tölur eru bornar saman við landið allt þá var aukning á áhættuhegðun barna fyrstu níu mánuðina milli 2020-2021. Tilvikin 2021 hafa hins vegar mörg hver verið alvarleg, fjallað um hnífaeign barna og alvarlega ofbeldistilburði gagnvart öðrum börnum.

Barnavernd Garðabæjar áréttar mikilvægi samvinnu foreldra um mál af þessu tagi en ef sú samvinna er ekki fyrir hendi við barnaverndaryfirvöld, lögreglu og fræðslustofnanir um að uppræta mál, gera jafnvel hnífa upptæka og hafa nákvæmt eftirlit með börnum sínum, þá verður flóknara að ráða niðurlögum þessa vanda.

Afneitun gagnvart hegðun barna styrkir frekari þróun andfélagslegrar hegðunar og er í andstöðu við velferð barna. Enda er nauðsynlegt í þroska hvers barns að þurfa að bera ábyrgð á hegðun sinni.

Viðbrögð við þessum tilvikum voru eftirfarandi: Samvinna er náin milli barnaverndar, fræðslusviðs, skóla og lögreglu varðandi mál af þessu tagi. Teymisfundir eru reglulegir með lögreglunni þar sem þessi mál eru tekin upp og hefur sýnileiki lögreglu verið aukinn í grunnskólunum. Hefur Biggi lögga farið við annan mann inn í grunnskólanna.

Mál nr. 2110179, ofbeldi af hálfu barna, lagt fram til umræðu. Hildigunnur Árnadóttir, umsjónarfélagsráðgjafi, fer yfir fjölda tilkynninga/atvika og forvarnir í Garðabæ ásamt mikilvægi samvinnu við foreldra, lögreglu og skóla. Þá kemur fram að haldnir eru reglulegir teymisfundir barnaverndar með lögreglu og fræðslu- og menningarsviði ásamt því að lögregla hefur verið að fara í grunnskólana til að auka sýnileika sinn.

Fjölskylduráð tekur undir mikilvægi samvinnu við alla hlutaðeigandi til að finna lausn á þessum vanda. Fjölskylduráð óskar eftir að fá að fylgjast með þróun mála hvað ofbeldi barna varðar. Þá leggur fjölskylduráð áherslu á að fjölskyldusvið og fræðslu- og menningarsvið vinni að því að styðja við foreldrarölt í Garðabæ og efla þátttöku skóla, lögreglu og foreldra í forvarnarskyni.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

34. fundur

Ef tölur 2020-2021 eru bornar saman þá voru 58 tilfelli tilkynnt til barnaverndar er vörðuðu ofbeldi af hálfu barna árið 2020 og nú þegar hafa verið tilkynnt 50 tilfelli á þessu ári. Tilvikin 2021 hafa hins vegar mörg hver verið alvarleg, fjallað um hnífaeign barna og alvarlega ofbeldistilburði gagnvart öðrum börnum. Ef foreldrar eru ekki til fullrar samvinnu við barnaverndaryfirvöld, lögreglu og fræðslustofnanir um að uppræta mál, gera jafnvel hnífa upptæka og hafa nákvæmt eftirlit með börnum sínum, þá verður flóknara að ráða niðurlögum þessa vanda. Afneitun forsjáraðila um hegðun barna sinna styrkir frekari andfélagslega hegðun þeirra og vinnur gegn velferð þeirra. Þetta verður að undirstrika.
Haldnir eru reglulegir teymisfundir með lögreglunni, en samvinna við lögreglu í þessum málum er lykilatriði, sem og viðbrögð foreldra við ofbeldi af hálfu barns. Biggi lögga hefur einnig farið inn í Grunnskólana okkar, til að auka sýnileika lögreglunnar.

Rætt um ofbeldi af hálfu barna, fjölda tilkynninga/atvika og forvarnir í Garðabæ.
Haldnir eru reglulegir teymisfundir með lögreglunni, en samvinna við lögreglu í þessum málum er lykilatriði, sem og viðbrögð foreldra við ofbeldi af hálfu barns. "Biggi lögga" hefur einnig farið inn í Grunnskólana okkar, til að auka sýnileika lögreglunnar.