Beint í efni

34. fundur

12.10.2021
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

34. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

12.10.2021

Kl. 16:15 - 17:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2109217

01

Vettvangur fyrir samfélagslega nýsköpun í Garðabæ.

Til kynningar!

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 2109239

02

Fyrstu áfangaskýrslur um óbein áhrif COVID-19

Til kynningar!

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 2109387

03

Samningar við félög til undirritunar 2021

Komið er að endurnýjun samstarfssamninga Garðabæjar við nokkur félög í Garðabæ varðandi rekstur þeirra og barna- og unglingastarf, með gildistíma árið 2021 til og með 2023. Þau félög sem um ræðir eru: Golfklúbbarnir GKG, Oddur og GÁ. Hestamannafélögin Sprettur og Sóti. Taflfélagið, Tennisfélagið og Garðasókn.

Samningarnir eru efnislega eins og fyrri samningar en með uppfærðum fjárhæðum sem taka mið af fjárhagsáætlun Garðabæjar.

ÍTG samþykkir endurnýjun samstarfssamninga Garðabæjar við nokkur félög í Garðabæ varðandi rekstur þeirra og barna- og unglingastarf, með gildistíma árið 2021 til og með 2023. Þau félög sem um ræðir eru: Golfklúbbarnir GKG, Oddur og GÁ. Hestamannafélögin Sprettur og Sóti. Taflfélag Garðabæjar, Tennisfélag Garðabæjar og Garðasókn.

Samningarnir eru efnislega eins og fyrri samningar en með uppfærðum fjárhæðum sem taka mið af fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021.

Málsnúmer 2008396

04

Forvarnir - Dale Carnegie námskeið

ÍTG hefur undanfarin ár verið í samstarfi við Dale Carnegie á Íslandi um námskeið í sjálfstyrkingu unglinga. Lagt er til að halda samstarfinu áfram í vetur.

ÍTG hefur undanfarin ár verið í samstarfi við Dale Carnegie á Íslandi um námskeið í sjálfstyrkingu unglinga. Samþykkt er að halda samstarfinu áfram í vetur.

Málsnúmer 2104353

05

Forvarnavika Garðabæjar 2021

Dagskrá forvarnaviku Garðabæjar 13. - 20. október 2021

Dagskrá forvarnaviku kynnt.

Málsnúmer 2110164

06

Starfsáætlun ÍTG 21-22

Starfsáætlunin lögð fram og samþykkt.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2110165

07

Lög um farsæld barna

Lög um farsæld barna taka gildi 1. janúar 2022

Rætt um lögin um farsæld barna sem taka gildi 1. janúar 2022. Bent var á mikilvægi samstarfs fagaðila. Ákveðið að fá nánari upplýsingar á næsta fundi varðandi stöðuna á innleiðingunni í bænum.

Málsnúmer 2110179

08

Ofbeldi af hálfu barna

Ef tölur 2020-2021 eru bornar saman þá voru 58 tilfelli tilkynnt til barnaverndar er vörðuðu ofbeldi af hálfu barna árið 2020 og nú þegar hafa verið tilkynnt 50 tilfelli á þessu ári. Tilvikin 2021 hafa hins vegar mörg hver verið alvarleg, fjallað um hnífaeign barna og alvarlega ofbeldistilburði gagnvart öðrum börnum. Ef foreldrar eru ekki til fullrar samvinnu við barnaverndaryfirvöld, lögreglu og fræðslustofnanir um að uppræta mál, gera jafnvel hnífa upptæka og hafa nákvæmt eftirlit með börnum sínum, þá verður flóknara að ráða niðurlögum þessa vanda. Afneitun forsjáraðila um hegðun barna sinna styrkir frekari andfélagslega hegðun þeirra og vinnur gegn velferð þeirra. Þetta verður að undirstrika.

Haldnir eru reglulegir teymisfundir með lögreglunni, en samvinna við lögreglu í þessum málum er lykilatriði, sem og viðbrögð foreldra við ofbeldi af hálfu barns. Biggi lögga hefur einnig farið inn í Grunnskólana okkar, til að auka sýnileika lögreglunnar.

Rætt um ofbeldi af hálfu barna, fjölda tilkynninga/atvika og forvarnir í Garðabæ.

Haldnir eru reglulegir teymisfundir með lögreglunni, en samvinna við lögreglu í þessum málum er lykilatriði, sem og viðbrögð foreldra við ofbeldi af hálfu barns. "Biggi lögga" hefur einnig farið inn í Grunnskólana okkar, til að auka sýnileika lögreglunnar.

Önnur mál:
a. Samtalsfundur um mótun skipulags í Urriðakotshrauni og Urriðavatnsdölum á félagssvæði Golfklúbbsins Odds og í fyrirhuguðum fólkvangi með hagaðilum v/stækkunar Urriðavallar verður haldinn fimmtudaginn 14. okt í Sveinatungu, nefndarmönnum ÍTG boðið að mæta.