Beint í efni

Forvarnir - Dale Carnegie námskeið

Málsnúmer 2008396

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

4. fundur

Endurnýjun samstarfssamnings milli Dale Carnegie og Garðabæjar.

ÍTG leggur til að samningur við Dale Carnegie verði endurnýjaður.

Farið var yfir samstarf við Dale Carnegie sem hófst 2012, vegna endurnýjunar á samningi við fyrirtækið. Lagt er upp með að Garðabær niðurgreiði námskeiðið um 30.000 fyrir hvern þátttakandi og leggi auk þess til aðstöðu til námskeiðahalds í Garðaskóla.

Næsta námskeið hefst 22. október 2026.

Þetta er skemmtilegt námskeið sem ýtir undir frumkvæði, eflir leiðtogahæfileika og eykur sjálfstraust og samkennd þátttakenda.

Að hafa jákvæða sjálfsmynd og trú á sjálfan sig hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og í dag með síauknum samanburði við jafnaldra. Á þessu námskeiði læra börn að þekkja sig sjálf betur, setja sér markmið og þjálfa færni sem gerir þeim kleift að ná markmiðunum.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

34. fundur

ÍTG hefur undanfarin ár verið í samstarfi við Dale Carnegie á Íslandi um námskeið í sjálfstyrkingu unglinga. Lagt er til að halda samstarfinu áfram í vetur.

ÍTG hefur undanfarin ár verið í samstarfi við Dale Carnegie á Íslandi um námskeið í sjálfstyrkingu unglinga. Samþykkt er að halda samstarfinu áfram í vetur.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

21. fundur

Aframhaldandi námskeið á vegum Dale Carnegie fyrir 13-15 ára haustið 2020

ÍTG samþykkir áframhaldandi kaup á námskeiði á vegum Dale Carnegie fyrir 13-15 ára haustið 2020.