Beint í efni

4. fundur

08.10.2026
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

4. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Torginu ungmennahúsi

08.10.2026

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Birkir Guðlaugsson - formaður
  • Sigrún Antonsdóttir - aðalmaður
  • Dúi Þór Jónsson - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
  • Vilborg Anna S. Garðarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Sveinn Þórðarson - varamaður
  • Hannes Ingi Geirsson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Kári Jónsson

Fundurinn var haldinn í húsnæði Torgsins á Garðatorgi 1.
Gestur fundarins var Ragnhildur Jónasdóttir forstöðumaður Torgsins ungmennahúss.

Dagskrá

Málsnúmer 2511540

01

Ungmennahús Garðabæjar

Kynning á starfsemi og aðstöðu Torgsins ungmennahúss Garðabæjar.

Ragnhildur Jónasdóttir forstöðumaður fer yfir skipulag og umfang starfseminnar sem er til húsa á Garðatorgi 1 2. hæð við hlið Gróskusalarins.

Kynning á starfsemi og aðstöðu Torgsins ungmennahúss Garðabæjar.

Ragnhildur Jónasdóttir forstöðumaður fór yfir skipulag og umfang starfseminnar sem er til húsa á Garðatorgi 1, 2. hæð við hlið Gróskusalarins.

Torgið er með fasta opnunartíma þrjú kvöld í viku: þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga 17-22 með einhverja tiltekna dagskrá en annars opið hús.

Fyrirhugað er að byrja með klúbbastarfsemi en nú þegar er teikniklúbbur á fimmtudögum sem er vel sóttur.

Á Torginu starfa 5 tímavinnustarfsmenn sem skipta vöktum, einn starfsmaður í 30% auk Verkefnastjóra.

Bergið Head Space er með viðtalstíma á mánudögum fyrir 12 til 25 ára.

Á næstu tveim vikum verða Hinsegin opnanir opnaðar á Torginu fyrir félagsmiðstöðvar unglinga í Garðabæ, en einnig opið fyrir unglinga annarra sveitarfélaga. Aldur 13-17 ára.

Málsnúmer 2008396

02

Forvarnir - Dale Carnegie námskeið

Endurnýjun samstarfssamnings milli Dale Carnegie og Garðabæjar.

ÍTG leggur til að samningur við Dale Carnegie verði endurnýjaður.

Farið var yfir samstarf við Dale Carnegie sem hófst 2012, vegna endurnýjunar á samningi við fyrirtækið. Lagt er upp með að Garðabær niðurgreiði námskeiðið um 30.000 fyrir hvern þátttakandi og leggi auk þess til aðstöðu til námskeiðahalds í Garðaskóla.

Næsta námskeið hefst 22. október 2026.

Þetta er skemmtilegt námskeið sem ýtir undir frumkvæði, eflir leiðtogahæfileika og eykur sjálfstraust og samkennd þátttakenda.

Að hafa jákvæða sjálfsmynd og trú á sjálfan sig hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og í dag með síauknum samanburði við jafnaldra. Á þessu námskeiði læra börn að þekkja sig sjálf betur, setja sér markmið og þjálfa færni sem gerir þeim kleift að ná markmiðunum.

Málsnúmer 2608520

03

Stjarnan og PFG

Kynning á erindi Stjörnunnar og Pílufélags Garðabæjar vegna samstarfs þeirra og væntanlegrar inngöngu í Stjörnuna.

ÍTG tók fyrir erindi Stjörnunnar og Pílufélags Garðabæjar vegna samstarfs þeirra og væntanlegrar inngöngu í Stjörnuna.

Formanni og íþróttafulltrúa falið að taka samtalið við PFG og Stjörnuna og móta tillögu fyrir næsta fund.

Málsnúmer 2610008

04

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 50.000 til Stefáns Gunnlaugs Jónssonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026.

ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Stefáns Gunnlaugs Jónssonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026.

Málsnúmer 2609629

05

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 50.000 til Alvars Loga Helgasonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026.

ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Alvars Loga Helgasonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026.

Málsnúmer 2609628

06

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 50.000 til Brynjars Smára Elvarssonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026.

ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Brynjars Smára Elvarssonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026.

Málsnúmer 2609621

07

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 50.000 til Aron Friðrik Georgssonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026.

ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Arons Friðriks Georgssonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026.

Málsnúmer 2609447

08

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 50.000 til Bergþóru Emmu Johnsen vegna undankeppni EM í strandblaki U17 í Cardiff 30 júlí 2026.

ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Bergþóru Emmu Johnsen vegna undankeppni EM í strandblaki U17 í Cardiff 30 júlí 2026.

Málsnúmer 2609416

09

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 50.000 til Önnu Guðrúnar Yu Þórbergsdóttur vegna NM ungmenna í sveigboga U21 í Tampere, Finnlandi 1.-6. júlí 2026.

ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Önnu Guðrúnar Yu Þórbergsdóttur vegna NM ungmenna í sveigboga U21 í Tampere, Finnlandi 1.-6. júlí

Málsnúmer 2609300

10

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferðastyrkur kr. 50.000 til Huldu Kristínar Björnsdóttur vegna EM U18 í blaki 30.6 til 10.7.2026.

ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Huldu Kristínar Björnsdóttur vegna EM U18 í blaki 30.6 til 10.7.2026.