Ungmennahús Garðabæjar
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
4. fundur
Kynning á starfsemi og aðstöðu Torgsins ungmennahúss Garðabæjar.
Ragnhildur Jónasdóttir forstöðumaður fer yfir skipulag og umfang starfseminnar sem er til húsa á Garðatorgi 1 2. hæð við hlið Gróskusalarins.
Kynning á starfsemi og aðstöðu Torgsins ungmennahúss Garðabæjar.
Ragnhildur Jónasdóttir forstöðumaður fór yfir skipulag og umfang starfseminnar sem er til húsa á Garðatorgi 1, 2. hæð við hlið Gróskusalarins.
Torgið er með fasta opnunartíma þrjú kvöld í viku: þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga 17-22 með einhverja tiltekna dagskrá en annars opið hús.
Fyrirhugað er að byrja með klúbbastarfsemi en nú þegar er teikniklúbbur á fimmtudögum sem er vel sóttur.
Á Torginu starfa 5 tímavinnustarfsmenn sem skipta vöktum, einn starfsmaður í 30% auk Verkefnastjóra.
Bergið Head Space er með viðtalstíma á mánudögum fyrir 12 til 25 ára.
Á næstu tveim vikum verða Hinsegin opnanir opnaðar á Torginu fyrir félagsmiðstöðvar unglinga í Garðabæ, en einnig opið fyrir unglinga annarra sveitarfélaga. Aldur 13-17 ára.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
48. fundur
Kynnt verður tillaga að nafni á ungmennahúsið á Garðatorgi 1 eftir nafnasamkeppni sem fram fór við vígslu þess.
Farið var yfir niðurstöður nafnasamkeppni sem haldin var við vígslu ungmennahússins á Garðatorgi. Í kosningu sem fram fór í tengslum við samkeppnina varð nafnið Torgið fyrir valinu meðal þeirra sem tóku þátt.
Íþrótta- og tómstundaráð fagnar nýju nafni ungmennahúss Garðabæjar og telur það vel endurspegla þann vettvang sem húsið á að vera fyrir ungt fólk í bænum; mannlífstorg ungmenna í bænum. Ráðið óskar húsinu og starfseminni til hamingju með nafnið Torgið og hlakkar til áframhaldandi öflugs starfs í þágu ungmenna í Garðabæ.