Beint í efni

21. fundur

28.08.2020
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

21. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

28.08.2020

Kl. 15:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2007056

01

Emilía Katrín Matthíasdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Emilía Katrín Matthíasdóttir kt.3005042210 vegna ferðar með HSÍ U16 ára til Færeyja 31. júlí til 3. ágúst 2020

ÍTG samþykkir að greiða kr. 20.000,- í ferðastyrk til Emilíu Katrínar Matthíasdóttur kt.3005042210 vegna ferðar með HSÍ U16 ára til Færeyja 31. júlí til 3. ágúst 2020

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2008280

02

Ásthildur Bertha Bjarkadóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ásthildur Bertha Bjarkadóttir kt. 0404022090 vegna U18 í handbolta í Færeyjum 31. júlí 2020

ÍTG samþykkir að greiða kr. 20.000,- í ferðastyrk til Ásthildar Berthu Bjarkadóttur kt. 0404022090 vegna U18 í handbolta í Færeyjum 31. júlí 2020

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2008145

03

Katrín Tinna Jensdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Katrín Tinna Jensdóttir kt.3107022180 ferðastyrkur vegna U18 HSÍ til Færeyja 31. júlí 2020

ÍTG samþykkir að greiða kr. 20.000,- í ferðastyrk til Katrínar Tinnu Jensdóttur kt.3107022180 vegna U18 HSÍ til Færeyja 31. júlí 2020

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2008574

04

Merking göngu og hlaupaleiða - sumarstarf 2020

Greinargerð sumarstarfshóps 2020 sem vann að afla gagna til að merkja göngu- og hlaupaleiðir inn á kortavef Garðabæjar map.is/gardabaer/

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2008070

05

Gagnaöflun og úrvinnsla - Heilsueflandi Garðabær

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2008573

06

Markaðssetning kvennaíþrótta - sumarátak 2020

Greinargerð frá starfshópi sumarstarfsmanna 2020 sem unnu að markaðsátaki kvennaíþrótta á samfélagsmiðlum.

Lagt fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2006537

07

Æfingar í stað vinnuskóla

Erindið fjallar um að unglingar fái að stunda æfingar í "afreksskóla" í stað vinnuskóla á sumrin.

Lagt var fram erindi er varðar málefni unglinga til að fá að stunda æfingar í „afreksskóla“ í stað sumarvinnu vinnuskólans. ÍTG tók vel í að hugmyndin verði skoðuð nánar en telur mikilvægt að mótaðar verði einfaldar en skýrar reglur verði hugmyndin að veruleika.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2006023

08

Forvarnavika Garðabæjar 2020

Forvarnavika Garðabæjar verður 7. tilm 14. október 2020.

Slagorð vikunnar sem unnið er út frá verður "að standa með sjálfum sér". Unnið er að mótun dagskrár í samvinnu við fulltrúa Ungmennaráðs Garðabæjar.

Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 7. til 14. október 2020.

Slagorð vikunnar sem unnið er út frá verður "að standa með sjálfum sér". Unnið er að mótun dagskrár í samvinnu við fulltrúa Ungmennaráðs Garðabæjar en einnig þvert á deildir og svið.

Málsnúmer 2008396

09

Forvarnir - Dale Carnegie námskeið H2020

Aframhaldandi námskeið á vegum Dale Carnegie fyrir 13-15 ára haustið 2020

ÍTG samþykkir áframhaldandi kaup á námskeiði á vegum Dale Carnegie fyrir 13-15 ára haustið 2020.

Málsnúmer 2006244

10

Umsókn í forvarnarsjóð - Sleikur

Sótt er um styrk úr forvarnarsjóði til að framleiða námsefni í kynfræðslu og kynhegðun á unglingastigi.

ÍTG samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 200.000,- með kaupum á spilinu "Sleik" til allra félagsmiðstöðva og elstu bekkja grunnskóla bæjarins. Jafnframt munu höfundar kenna notkun spilsins og taka þátt dagskrá forvarnaviku Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2006364

11

Beiðni um að taka við rekstri á íþróttahúsinu Mýrinni.

Ósk Stjörnunnar um formlegar viðræður um að félagið yfirtaki rekstur á íþróttahúsinu og sundlauginni Mýrinni.

Ósk Stjörnunnar um formlegar viðræður um að félagið yfirtaki rekstur á íþróttahúsinu og sundlauginni Mýrinni var lögð fram til kynningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2007276

12

Almenningsmótaröðin Víkingar - keppni innan Garðabæjar

Meðbyr ehf. hefur fengið framkvæmdaleyfi hjá bæjarráði fyrir skipulagningu tveggja almenningsíþróttaviðburða, fjallahjólakeppnin Landsnet MTB og hlaupið Eldslóðin, í landi Garðabæjar 25. og 26. september 2020, að því gefnu að jákvæðar umsagnir fáist frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem hefur umsjón með Heiðmörk og Umhverfisstofnun vegna hluta leiðar sem fer um friðland. Einnig skal tryggt að skipuleggjandi fari að gildandi samkomutakmörkunum og hugi að sóttvörnum við framkvæmd íþróttaviðburðanna.

Bæjarráð vísar bréfinu og styrkbeiðninni til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.

ÍTG samþykkir að veita Meðbyr ehf. styrk að upphæð kr. 200.000,- vegna tveggja almenningsíþróttaviðburða, fjallahjólakeppnin Landsnet MTB og hlaupið Eldslóðin, í landi Garðabæjar 25. og 26. september 2020. Skilyrði er að styrkurinn fari til að greiða þóknun til frjálsra félaga eða samtaka innan Garðabæjar sem aðstoða við framkvæmd viðburðanna.

Málsnúmer 2003215

13

Covid 19 aðgerðir í íþróttamiðstöðvum

Íþróttafulltrúi skírði til hvaða aðgerða hefði verið gripið í íþróttamiðstöðvum og sundlaugum bæjarins í annarri bylgju Covid 19 nú þegar skólahald er að hefjast.

Fylgiskjöl

Undir önnur mál var sagt frá framkvæmdum í Vetrarmýri, Íþróttamiðstöðinni Mýrinni, æfingaaðstöðu GKG, íþróttasvæðinu Breiðumýri á Álftanesi þar sem unnið er að lýsingu knattspyrnuvallar og nýju gólfi íþróttahússins.
GJ benti á vinsældir Frisbígolfvallarins við Vífilsstaði og þörfinni á að opna fleiri slíka velli.
GJ benti einni á að undirbúa þyrfti hver sæi um lagningu gönguskíðabrauta í vetur.
GPL spurði um skipulag í Urriðaholti hvað varðar íþróttaaðstöðu þar.