24. (1982). fundur
24. (1982). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
29.06.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2104295
01
Kinnargata 23 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Heiði Heimisdóttur, kt. 070193-3619, leyfi til að byggja einbýlishús að Kinnargötu 23.
Málsnúmer 1905367
02
Sjónarvegur 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Aðalmúr ehf., kt. 430407-1470 leyfi til breyta múrklæðningu í álklæðningu á parhúsi í byggingu að Sjónarvegi 6.
Málsnúmer 1905368
03
Sjónarvegur 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Aðalmúr ehf., kt. 430407-1470 leyfi til breyta múrklæðningu í álklæðningu á parhúsi í byggingu að Sjónarvegi 8.
Málsnúmer 2106416
04
Tilkynning Reykjavíkurborgar um auglýsingu vegna endurskoðunar stefnu um íbúðarbyggð og blandaða byggð samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur, dags. 16.06.21.
Bæjarráð vísar tilkynningunni til skipulagsstjóra og til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
Málsnúmer 1904211
05
Drög að reglum Garðabæjar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ (NPA).
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti drög að reglum Garðabæjar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ (NPA) og greindi frá að á fundi fjölskylduráð sem haldinn var 16. júní sl. hafi verið farið yfir athugasemdir sem lágu fyrir og endanleg drög samþykkt til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn. Drög að reglunum voru kynnt á fundi samráðhóps um málefni fatlaðs fólks sem haldinn var 20. maí sl. Athugasemdir sem þar komu fram voru til umfjöllunar á fundi fjölskylduráðs.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög sem reglur Garðabæjar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ (NPA).
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2106495
06
Ályktun aðalfundar Landverndar í júní 2021 um gjaldtöku fyrir nagladekk á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð vísar ályktuninni til umfjöllunar í umhverfisnefnd og felur bæjarstjóra að taka málið upp á vettvangi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105349
07
Opnun tilboða í framkvæmdir við hverfisgarð við Lynggötu.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við hverfisgarð við Lynggötu í Urriðaholti.
Hellur og lagnir ehf. kr. 36.559.200
Garðsmíði ehf. kr. 48.000.000
Garðyrkjuþjónustan ehf. kr. 39.806.000
Lóðaþjónustan ehf. kr. 35.311.500
Gott verk ehf. kr. 29.463.000
Kostnaðaráætlun kr. 35.245.980
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gott verks ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun
Málsnúmer 2103455
08
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru vegna framkvæmda við vegg á lóð við Hraungötu 10, dags. 24.06.21.
Í úrskurðinum kemur fram að ekki liggi fyrir kæranleg ákvörðun í málinu en í úrskurðarorði er lagt fyrir byggingarfulltrúa að svara án ástæðulauss dráttar, erindi kæranda frá október 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2106553
09
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi stafrænt færnimat og upplýsingakerfi sveitarfélaga og val stafrænna samvinnuverkefna, dags. 25.06.21.
Í tilkynningunni er sagt frá að stafrænt þróunarteymi á vegum Sambandsins vinnur nú að framkvæmd stafrænna samstarfsverkefna sveitarfélaga í samvinnu við stafrænt ráð sem er skipað fulltrúum sveitarfélaga úr hverjum landshluta.
Til kynningar eru 56 verkefnahugmyndir í fimm flokkum og getur hvert sveitarfélag valið þrjár verkefnahugmyndir úr hverjum flokki. Lagt er til að framkvæmdastjóri sveitarfélags fari yfir verkefnahugmyndirnar með völdum starfsmönnum sínum og svari eigi síðar en 12. ágúst nk.
Verkefnahugmyndir, sem fá mest fylgi, munu verða settar í nákvæmt ávinnings- og kostnaðarmat og endanleg ákvörðun um samstarfsverkefni verður tekin út frá þeim niðurstöðum.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og verða valdar verkefnahugmyndir kynntar í bæjarráði.